Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 8
8 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR
Góð sjón er lykilatriði í umferðinni
SÉRÐU FRAM Á VEGINN?
SJÓNMÆLING OG UMGJÖRÐ
Ef þú ert með F plús fjölskyldutryggingu hjá VÍS færðu sjónmælingu og
gleraugnaumgjörð endurgjaldslaust í verslunum Pro optik við kaup á
sjónglerjum. Kynntu þér málið á www.vis.is eða á næstu þjónustuskrifstofu VÍS.
Níu af hverjum tíu bílstjórum sem valda umferðaróhappi segja ástæðuna vera að þeir hafi ekki séð nógu vel.
Ef þú notar gleraugu eða linsur þarftu að muna eftir þeim þegar þú keyrir og vera viss um að þau séu af
réttum styrk. Þannig eflir þú öryggi í umferðinni.
Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 www.vis.is
Elica háfar
glæsileg hönnun
og fágað yfirbragð
VÍSINDI „Því hefur verið fleygt að
meiri úrkoma sé hér í Mosfellsbæ
en í Reykjavík,“ segir í erindi
Jóhönnu Hansen bæjarverkfræð-
ings, sem leggur til við bæjarráð
að keypt verði sjálfvirk veður-
athugunarstöð til að kanna málið.
„Sú hugmynd hefur komið upp
að sett verði á laggirnar veður-
athugunarstöð í Mosfellsbæ. Sér-
staklega hefur verið þrýst á það í
framhaldi af óveðrasömu tíðar-
fari undanfarna mánuði,“ segir
Jóhanna.
Að því er kemur fram í erindi
bæjarverkfræðingsins skiptist
veður mjög eftir svæðum í Mos-
fellsbæ. „Þannig eru Teigarnir
öðruvísi en svæðið um Lágafells-
skóla og síðan er talsvert meiri
vindur neðst í Töngum, Holtum
og í nýju íbúðarhverfi í Leir-
vogs tungu,“ segir Jóhanna, sem
leggur til að sjálfvirkri veður-
athugunarstöð verði komið fyrir
á áhaldahúsi bæjarins.
Upplýsingar frá stöðinni myndu
verða tengdar inn á vef Mosfells-
bæjar. Það segir Jóhanna að
myndi auka þjónustu við bæjar-
búa mikið. Svipaður háttur væri
þegar hafður á í Garðabæ.
Veðurstöðin, sem kostar tæpar
850 þúsund krónur, á að mæla
vindátt, vindhraða, lofthita,
loft raka, loftþrýsting, sólar-
geislun og regn. Bæjarráðið seg-
ist jákvætt fyrir málinu. - gar
Bæjarverkfræðingur vill sjálfvirka veðurathugunarstöð ofan á áhaldahúsið:
Segir vætusamt í Mosfellsbæ
ÁHALDAHÚSIÐ Bæjarverkfræðingur í
Mosfellsbæ segir að veðurathugunar-
stöð á áhaldahúsi bæjarins myndi gefa
góða mynd af veðurfari í Teigahverfi.
VESTMANNAEYJAR Bæjarstjórn
Vestmannaeyja leggst gegn því að
heilbrigðisráðuneytið noti öryggi
fólks sem skiptimynt í samning-
um um sjúkraflug og hvetur til
þess að sjúkraflug úr Eyjum verði
starfrækt áfram á sólarhrings-
vöktum, segir í ályktun bæjar-
stjórnar á fimmtudag.
Í útboði ráðuneytisins er sú
nýlunda að falla frá þessari kröfu,
segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Vestmannaeyja.
„En í ljósi landfræðilegrar stöðu
og atvinnulífs þarf hér að vera
sjúkraflug allan sólarhringinn.
Þetta eru einhverjir tugir skipta á
ári sem við notum þessa þjón-
ustu,“ segir Elliði.
Bæjarstjóri telur það einnig ein-
kennilega mótvægisaðgerð að
hækka álögur á þjóðveginn til
Eyja. Eimskip hafi tilkynnt um
væntanlega hækkun gjaldskrár
sinnar um rúm átta prósent.
„Og Herjólfur er þjóðvegur,“
segir Elliði, sem hvetur ríkið til að
hafa jafnræði í heiðri á þjóð vegum
landsins; annað hvort að niður-
greiða Herjólf eða taka upp gjald-
töku á öðrum þjóðvegum.
Rétt sé að Eimskip hafi hækkað
gjöldin en ekki ríkið, en „Eimskip
hækkar af því að það fæst ekki
aukið framlag frá ríkinu til að
reka þjóðveginn“. - kóþ
Dregið úr sjúkraflugi og rukkað meira í Herjólf:
Öryggi fólks nýtt
sem skiptimynt
ELLIÐI
VIGNISSON
Bæjarstjórinn
skorar á sam-
gönguráðherra
og ráðherra
Suðurlands að
koma í veg fyrir
auknar álögur á
heimili í Eyjum,
sem stafi af
framkvæmd
samnings Vega-
gerðarinnar við
Eimskip.
M
YN
D
/Ó
SK
A
R
P
. F
R
IÐ
R
IK
SS
O
N
BREIÐAVÍK Niðurstöður nefndarmanna sem fóru yfir
starfsemi Breiðavíkur urðu til þess að lagðar voru
fram tillögur við Barnaverndarstofu um hvernig
betur mætti tryggja velferð barna í samtímanum.
Meðal annars er lagt til að settar
verði takmarkanir á þann fjölda
barnaverndarmála sem hver
sérfræðingur hafi til umfjöllunar.
Fjöldi tilkynninga til barna verndar-
yfirvalda hefur tvöfaldast á
síðustu fimm árum án þess að
starfsmönnum hafi fjölgað í
samræmi við það. Álag á hvern
starfsmann hefur því vaxið mikið.
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, tekur undir
tillögur nefndarmanna og segir
þær í takt við sínar hugmyndir.
Hann segir fjölgun mála á hvern starfsmann hafa
verið eitt helsta áhyggjuefni Barnaverndarstofu,
þar sem við stóraukið álag aukist líkur á mistökum,
en yfir átta þúsund barnaverndarmál voru tilkynnt á
síðasta ári að sögn Braga.
Bragi tekur þó fram að margar af tilkynningunum
snúi að léttari málum en áður komu inn á borð
barnaverndar. Þeim þurfi þó að sinna og það taki
tíma frá vinnslu erfiðari mála.
Breiðavíkurnefndin leggur einnig til að sveitar-
félög tryggi framboð af stuðningsúrræðum til að
styrkja börn og fjölskyldur þeirra svo komast megi
hjá vistun utan heimilis. Sé tekin ákvörðun um að
vista barn utan heimilis megi að mati nefndarinnar
styrkja núgildandi eftirlitskerfi, auka gæði þess
starfs sem hér er unnið og bæta réttarstöðu barna á
öllum stigum máls. Vinna á úrbótum á þessum
þáttum innan Barnaverndarstofu hefur að sögn
Braga staðið yfir í um ár og er búist við því að niður-
stöður verði lagðar fram innan tíðar.
Bragi bendir þó á að neikvæð umræðu fjölmiðla
um meðferðastofnanir undanfarin misseri, svo sem í
tengslum við Breiðavík, Byrgið og gamla unglinga-
heimilið við Dalbraut, hafi reynt á starfsmenn og
hafi líklega orðið til þess að draga úr trausti
foreldra á meðferðarstofnunum. „Ég held að fólk
geri sér ekki nægilega vel grein fyrir því að
stofnanir samtímans, ætlaðar börnum, eiga lítið
sameiginlegt með stofnunum eins og Breiðavík,“
segir Bragi og bætir við: „Foreldrar geta alveg
treyst því að börnunum þeirra er ekki hætta búin
inni á þessum stofnunum í dag og mikil vinna er
lögð í að gæta að velferð þeirra.“ karen@frettabladid.is
Breiðavíkurnefndin
lítur til samtímans
Breiðavíkurnefnd leggur til að fjöldi mála sem sérfræðingar á sviði barna-
verndar vinni að sé takmarkaður. Yfir átta þúsund tilkynningar bárust til barna-
verndaryfirvalda á síðasta ári. Það er um tvöföldun frá því fyrir fimm árum.
EKKI HÆTTA BÚIN Á MEÐFERÐARSTOFNUNUM Fjöldi tilkynn-
inga til barnaverndaryfirvalda hefur tvöfaldast á síðustu fimm
árum án þess að starfsmönnum hafi fjölgað í samræmi við
það. Álag á hvern starfsmann hefur því vaxið mikið og segir
forstjóri Barnaverndarstofu að við stóraukið álag aukist líkur á
því að mistök verði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BRAGI
GUÐBRANDSSON