Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 24
6 FERÐALÖG
H
elsinki er borg umkringd vatni,
enda staðsett á skaga sem
teygir sig út í Eystrasalt. Hún á
sér 450 ára sögu þar sem Svíar
og Rússar börðust um sjóleiðir hennar og
áhrif þessara tveggja nágranna eru
bersýnileg. Rómantískur arkitektúr og
kommúnistabyggingar raðast hlið við hlið
og sameina slavneska melankólíu og skand-
ínavíska frjálshyggju. Helsinki liggur
vestur eftir breiðgötunum Pohjoisesplan-
adi og Eteläesplanadi norður eftir Manner-
heimintie þar sem er að finna stór söfn og
lestarstöðina sem er byggð í art nouveau-
stíl. Hönnun er kennimerki Helsinki-
borgar og þar er að finna stórfenglegar
byggingar eins og óperuhúsið og Kiasma-
nýlistasafnið, og svo hannaði Alvar Aalto
margar af 20. aldar byggingum borgarinn-
ar eins og til dæmis Finlandia Hall. Þegar
maður skreppur til höfuðborgar Finnlands
er nauðsynlegt að bregða sér í sánu, fara á
söfn og kíkja í hönnunarbúðir, og gæða sér
á mat á hinum frábæru veitingastöðum
sem er að finna í borginni.
HIPP & KÚL
HELSINKI
Slavnesk melankólía mætir sænskri frjálshyggju. Tískuljósmyndarinn
Yvan Rodic myndar uppáhaldsstaðina sína í höfuðborg Finnlands.
YRJÖNKATU-SUNDLAUGIN Slakaðu á í elstu sánu borgarinnar sem
var opnuð árið 1928. Hér geturðu sprangað um nakinn í æðislegu
gamaldags umhverfi. ( Yrjönkatu 21b)
HELSINKI 10 Mikilvægasta „konsept“-búðin í Helsinki þar sem hægt er að finna bæði
finnska og alþjóðlega hluti, allt frá fatnaði og bókum upp í tónlist og húsbúnað.
(Eerikinkatu 3)
EROTTAJA BAR Lítill og svalur bar með frábæru andrúmslofti. Sóttur
af listatýpum og fjölmiðlafólki. (Erottajankatu 15-17)
WE GOT BEEF Þessi staður verður að vera síðasti áfangastaður
næturinnar í Helsinki. Um klukkan tvö að næturlagi fara allir sem
eru eitthvað á þennan svakalega smart næturklúbb.
(21 Iso Roobertinkatu)
DESIGN FORUM FINLAND Gallerí og verslun þar sem þú getur skoðað
eða keypt frægustu hönnunarverk Finna. (Erottajankatu 7)
HOTELLI SEURAHUONE Þetta hótel hefur verið einn frægasti staður Finnlands allt frá opnun
þess árið 1833. Hér er að finna dásamlegt, virðulegt andrúmsloft og sérlega góða þjónustu.
(Kaivokatu 12)
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐURINN?
Sticks´n´Sushi finnst mér alltaf bestur. Ég
elska sushi-ið þar, alltaf jafn ljúffengt. Hann
er á mörgum stöðum um borgina. Ekkert
sérstaklega barnvænn þegar líða tekur
á kvöldið en það er hægt að leysa með
Sticks´n´Sushi take-away. www.sushi.dk
HVAR ER BEST AÐ FÁ SÉR ÖL? Á Charlie´s
Bar hjá snillingnum Emil bruggara. Þar eru
yfir 100 tegundir af bjór og 10 dælur í gangi
með nýrri tegund af bjór hvern dag. Charli-
e´s Bar er (Pilestræde 33, 1112 KBH) niðri í
bæ, mitt í verslunarparadísinni.
FLOTTASTI BARINN? Karrier Bar er aðal
„hittið“ þessa dagana. Hann er í gömlu
sláturhúsi á Flæsketorvet og er rosalega artí.
Mjög hrár staður með hrika-
lega flottum listaverkum. Þar
er meðal annars rosalega
flott ljós eftir Ólaf Elíasson
og verk eftir marga af bestu
ungu listamönnunum í dag.
www.karrierebar.com
NÝJASTA UPPGÖTVUNIN?
Arna vinkona mín færði
mér lítinn sætan kassa með 8 stykkjum af
„Flødeboller“ frá Magasin. Ég er ekki búin
að hugsa um annað síðan þær kláruðust.
BESTU GÖTURNAR TIL AÐ KAUPA FÖT?
Það er mjög þægilegt að fara í Gallery K
(Antonigade 2), þar er Designers Remix,
Day, Malene Birger, Evisum, stór H&M og
Mood sem selur æðislega
hluti fyrir heimilið. Mér finnst
Østerbrogade og allar litlu
göturnar út frá henni alltaf
æði. Þar eru m.a. Moshi
Moshi-búðirnar þrjár, Lola
Pagola sem er geggjuð skó-
búð, Norman Copenhagen og
fullt af litlum sætum búðum
með barnafötum.
BESTI STAÐURINN TIL AÐ VERA MEÐ
BÖRN? Frederiksberg-dýragarðurinn er
yndislegur staður fyrir börn. Hann er opinn
allt árið og algert möst. Þar er einnig góður
og barnvænn veitingastaður. Fyrir fólk sem
er með ungbarn og á bæjarrölti er mjög
þægilegt og gott að fara og fá sér að borða
á efstu hæðinni í Illum, þar sem er sérstakt
barnasvæði.
RÓMANTÍSKASTI GÖNGUTÚRINN? Mér
finnst Kaupmannahöfn mjög rómantísk í
heild sinni, sérstaklega þegar fer að hlýna.
Það er svo mikið líf alls staðar og allir garðar
fullir af fólki með nestiskörfur og börnum að
leika sér.
HEIMAMAÐURINN Kaupmannahöfn
HELGA ÓLAFSDÓTTIR, FATAHÖNNUÐUR
www.ultimathule.is
Spennandi ferðir um allan heim