Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 86
34 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR HVAÐ SEGIR MAMMA? Bubbi Morthens hefur vaðið fyrir neðan sig. Hann er með þeim fyrstu til að bóka tónleika í nýja tónlistar- og ráðstefnuhúsinu sem nú rís á hafnarbakkanum í Reykjavík. Hið glæsilega mannvirki verður tekið í notkun í desember árið 2009 og Bubbi er þegar búinn að bóka sína árlegu Þorkláksmessutónleika í stóra sal húss- ins það ár og síðan næstu Þorkláksmessur á eftir. Í húsinu verða fjórir salir. Sá stærsti tekur 1.800 manns í sæti og þar ætlar Bubbi að spila. Hann vonast því klárlega eftir fleiri gestum en á fyrri Þorláksmessutónleika því bæði Hótel Borg og Nasa, þar sem Bubbi hefur spilað til þessa á Þorláksmessu, taka meira en helmingi færri. Aðrir salir í nýja húsinu eru ráðstefnu- salurinn, sem tekur 750 manns í sæti, æfinga- salurinn sem tekur 450 manns í sæti, og minnsti salurinn, sem tekur 200 manns í sæti. Portus group sér um pantanir og þótt Bubbi hafi ekki verið sá fyrsti til að bóka er hann sá fyrsti til að bóka mörg ár í röð fram í tímann. Það er annars að frétta af Bubba að nýja platan hans, sem ber vinnuheitið Fjórir naglar, mun koma út 6. júní, á 52 ára afmælisdegi Kóngsins. Platan er sú fyrsta með frumsömdu efni síðan skilnaðarplötutvennan Ást og Í 6 skrefa fjarlægð frá Paradís kom út um sumarið 2005. Nýju plötuna gerði Bubbi með Pétri Ben sem sá um upptökur og hljómsveit sinni Stríð og friður. Bubbi skrifar á aðdáendasíðu sína, bubbi.is, að þrettán lög hafi verið tekin upp og að þessi plata „eigi eftir að koma mönnum á óvart“. - glh Bubbi bókar nýja tónlistarhúsið HÉR VERÐUR BUBBI Á ÞORLÁKSMESSU 2009 Tölvu- teikning sýnir útlit stóra salarins. Herranótt sýnir nú verkið Nosfer- atu – í skugga vampírunnar í Tjarnarbíói, þar sem gerviblóðið flýtur um sviðið. Ólafur S. Þor- valdz, sem jafnframt leikstýrir uppsetningunni, vann leikgerðina upp úr bíómyndinni Shadow of the Vampire frá árinu 2001. Hún er hins vegar byggð á upprunalegu Nosferatu-myndinni frá árinu 1922. „Sagan okkar er sú að leik- stjórinn, Murnau, hafi ráðið alvöru vampíru til að leika Nosferatu, gegn því að hún fái eitthvað fyrir sinn snúð,“ útskýrir Ólafur íbygg- inn. Það er Ásta Fanney Sigurðar- dóttir, sem er á þriðja ári við MR, sem bregður sér í gervi vampír- unnar í uppsetningunni. Hún hefur áður leikið skipstjóra og hermann í uppsetningu Herranætur á Birt- íngi árið 2006. „Nú er ég hokin 900 ára gömul karlkyns vampíra,“ segir Ásta, sem eins og við má búast leitar ekki mikið í eigin reynslubanka við túlkunina. „Ég er samt búin að finna eitt sem við eigum sameiginlegt. Ég er svo hvít á hörund að ég má eiginlega ekki sjá sól, þá fæ ég sólarexem,“ segir hún og hlær við. Ásta fær, eins og gefur að skilja, sinn skerf af því blóði sem flýtur um sviðið á sýningum. „Ég spýti blóði, drekk blóð og slefa blóði allan tímann,“ segir hún. „Ég er alltaf að ljúga því að fólki að þetta sé svínablóð, en þetta er í alvörunni síróp, vatn, matarlitur og kakó. Þetta er mjög sætt og ekkert rosa- lega gott á bragðið, en mun skárra en einhver tómatsósublanda sem var prófuð fyrst. Hún var ógeð,“ segir Ásta. Magnús Örn Sigurðsson, sem leikur leikstjórann, er blessunar- lega laus við blóðbaðið, fyrir utan stöku slettur. Hann er einnig á þriðja ári við MR, og hefur tekið þátt í Herranótt frá því að hann hóf nám við skólann. „Fyrst lék ég franskan náunga í Birtíngi, og í fyrra lék ég krimmavin aðalpers- ónunnar í DJ Lilli. Nú er ég orðinn snarklikkaður leikstjóri,“ útskýrir Magnús, sem segir uppfærsluna afar skemmtilega. „Þetta er líka svo magnað gervi sem Ásta Fanney er í, hún líkist helst skrímsli. Það tók mig tíma að venj- ast henni,“ segir hann brosandi. Magnús hefur horft á uppruna- legu Nosferatu-myndina, en hefur hins vegar verið bannað að horfa á Shadow of the Vampire til að hún hafi ekki of mikil áhrif á leikinn. „Ég er orðinn mjög spenntur að horfa á hana þegar við erum hætt að sýna,“ segir hann. Leikstjóri er Ólafur S. Þorvaldz, en hljómsveitin Rökkurró sér um tónlist. sunna@frettabladid.is ÁSTA FANNEY SIGURÐARDÓTTIR: LEIKUR AÐALHLUTVERKIÐ Í SÝNINGU HERRANÆTUR Í MR Blóðugir menntskælingar á leiksviði Í SKUGGA VAMPÍRUNNAR Ásta Fanney Sigurðardóttir leikur vampíru og spýtir og slefar blóði mestalla sýninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BÍÓ/LEIKHÚS Leikgerðin er unnin upp úr bíómyndinni Shadow of the Vampire, sem fjallar um gerð kvikmyndarinnar Nosferatu, frá árinu 1922. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BLÓÐI DRIFIÐ MR Þáttakendur í uppsetningu Herranætur kynntu leikritð á föstudag með því að liggja blóði drifnir vítt og breitt á skólasvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Hann Axel er skemmtilegur og góður strákur og það gætu allar mömmu verið stoltar af því að eiga svona strák fyrir son. Hann er duglegur að læra og maður þarf eiginlega aldrei að hafa neinar áhyggjur af honum.“ Sigurbjörg Sigurðardóttir er mamma Axels Kristinssonar sem vann Úr að ofan- keppnina í MR á dögunum. „Með barnaskákmótinu viljum við heiðra Guðfríði Lilju, sem gegnt hefur embætti forseta Skáksambands Íslands með glæsibrag síðustu árin. Hún hefur því miður lýst því yfir að hún ætli að hætta í vor og er þá skarð fyrir skildi,“ segir Hrafn Jökulsson rithöfundur og skákfrömuður. Hrafn brunaði á mölina nú fyrir helgi en hann er búsettur norður við Íshaf, í Trékyllisvík, þar sem hann sinnir ritstörfum með meiru. En hann hefur annað augað á framgangi skákar og nú liggur mikið við. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir þingmaður dregur sig nú í hlé sem formaður Skáksambands Íslands. Hún mun setja barnaskákmót sem haldið verður í Ráðhúsinu og hefst það klukkan tvö í dag. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður mennta- ráðs borgarinnar, leikur fyrsta leikinn. Þótt Hrafn sé fjarri sollinum heldur hann við skákvakningunni sem við hann og skákfélagið Hrókinn má kenna. „Öll börn eru velkomin á mótið en einmitt nú í vikunni er tveimur námskeiðum Hróksins í Vesturbæjar- og Austurbæjarskóla að ljúka. Í vikunni ætla ég að sækja heim skóla í Reykjavík og Kópavogi, og færa börnum „Skák og mát“ frá Hróknum og Eddu. Alls hafa verið gefnar 25 þúsund bækur til verkefnisins. Efalítið er það stærsta bókagjöf seinni ára hérlendis.“ - jbg Guðfríður Lilja kvödd GUÐFRÍÐUR LILJA Lætur nú af embætti forseta Skáksam- bandsins en til heiðurs henni er efnt til mikils skákmóts í Ráðhúsinu í dag. HRAFN JÖKULSSON Þótt búsettur sé norður við íshaf stuðlar hann sem fyrr að framgangi skákarinnar. EKKI RÁÐ NEMA Í TÍMA SÉ TEKIÐ Þorláksmessur Bubba frá og með 2009 komnar á hreint. Hvað er að frétta? Það er bara allt gott að frétta. Augnlitur: Blár. Starf: Sellóleikari. Fjölskylduhagir: Á lausu. Hvaðan ertu? Góð spurning. Ég fæddist í Reykjavík en mamma og pabbi eru að norðan. Ertu hjátrúarfull? Nei, alls ekki. Uppáhaldssjónvarpsþátturinn: Project Runway. Uppáhaldsmatur: Ég fékk mjög góða fiskisúpu hjá frænku minni um daginn. Fallegasti staðurinn: Eyjafjörður. iPod eða geislaspilari: iPod. Hvað er skemmtilegast? Að spila kammermúsík. Hvað er leiðinlegast? Að rífast. Helsti veikleiki: Óþolinmæðin. Helsti kostur: Það sem kallað er á frönsku: joi de vivre. Helsta afrek: Að skipuleggja þessa kvartett-tón- leikaferð til Íslands. Mestu vonbrigðin: Ég held ég sé of ung til að hafa orðið fyrir alvöru vonbrigðum. Hver er draumurinn? Að geta spilað tónlist allt mitt líf. Hver er fyndnastur/fyndnust? Margaret Cho. Snillingur. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Margt fer í taugarnar á mér en það er oftast út af því að ég er ekki sátt við sjálfa mig. Hvað er mikilvægast? Að vera opin fyrir möguleikum í lífinu. HIN HLIÐIN SÆUNN ÞORSTEINSDÓTTIR SELLÓLEIKARI Skemmtilegast að spila kammermúsík 16.04. 1984
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.