Fréttablaðið - 24.02.2008, Síða 76

Fréttablaðið - 24.02.2008, Síða 76
24 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Vá! Hvað er þetta? Ég veit það vel. Hún stjórnar þættinum „Góðan dag- inn, Ísland!“ Hún er sjónvarps- stjarna! Palli, mér þykir leitt að þurfa að segja þér þetta, en þú átt ekki séns í Sesselju Fróða! Takk... Ég reyni! En þetta bragðast meira að segja betur! Þú ert góð! Því skal ég trúa! Jú, jú... Gömlu pitsu- sneiðarnar sem ég finn stundum aftast í ísskápnum eru yfirleitt grænar! Og við hittum meira að segja á nokkra fæðu- flokka með þessu! Ertu ekki vanur að borða svolítið grænt? Ja hér! Ég hefði aldrei trúað því að græn- meti gæti bragðast svona vel! Wokað grænmeti með núðlum! Hún tilheyrir ekki einu sinni sömu tegund og mamma! Hún er á sama aldri og mamma þín! Ég horfi oft á það. Passaðu þig nú! Ooo - gætirðu fundið hana fyrir mig? Ég var að lesa rosa goða uppskrift að mjólk og kökum. Flott hjá þér. Hún er akkúrat þar sem þú vilt hafa hana. Ekkert mál, ég merkti síðuna. Undanfarið hafa margir pistlahöf- undar í flestum blöðum keppst við að segja skoð- anir sínar á Val- entínusardeginum sem hefur verið gerður að holdgerv- ingi bandarísks kap- ítalisma. Það þykir greinilega ekki töff á meðal pistlahöfunda að halda þann dag hátíðlegan. Ég er svo sem ekkert öðruvísi í þeim efnum, hef aldrei séð nokkra ástæðu til að fagna þeim degi. Að miklu leyti er ég sammála mörg- um þeirra sem hafa tjáð sig um þennan dag ástarinnar. Það á svo sem ekkert að vera einhver einn dagur þar sem haldið er upp á ást- ina − hún er nú frekar þess eðlis að haldið sé upp á hana á hverjum einasta degi. Svo eru samt sumir sem þurfa bara svona daga til þess að minna sig á að vera góðir við konur eða menn. Þá finnst mér gáfulegra að halda í gamlar íslenskar hefðir í þessum málum. Dæmi um þær eru auðvitað bóndadagurinn og konudagurinn, sem er í dag. Gaml- ir og góðir íslenskir dagar þar sem bæði kynin fá sinn dag. Og það er enn betra að þeir dagar eru ekki afmarkaðir bara fyrir ástfangna, eins og umræddur Valentínusar- dagur. Það er til dæmis hverjum sem er velkomið að óska mér til hamingju með daginn í dag. En það eru fleiri dagar sem væri hægt að halda hátíðlega í þessu samhengi. Af hverju auglýsa til dæmis blómabúðir og veitinga- staðir aldrei neitt fyrir kvenrétt- indadaginn 19. júní eða kvennafrí- daginn 24. október? Það væri svolítið gaman að fá blóm með hamingjuóskum á kvenréttinda- daginn. Þannig væri hægt að fagna því hversu lengi konur á Íslandi hafa haft kosningarétt en minnast þess um leið að því er ekki eins farið alls staðar. Svo myndi ég alveg vilja fara út að borða á kvennafrídaginn. Ég myndi samt ekkert vilja láta bjóða mér heldur myndi ég borga sjálf. Þannig gæti ég fagnað því að ég er sjálfstæð og vinnandi. Það er nógu að fagna. STUÐ MILLI STRÍÐA Fleiri og fjölbreyttari hátíðisdagar ÞÓRUNN ELÍSABET BOGADÓTTIR VILL HALDA FLEIRI KONUDAGA Þú veist ekki hvað það er erfitt að raka sig þegar maður hefur enga spegilmynd! er íbúð með aðgengi að vinnuaðstöðu, sem ætluð er til dvalar fyrir íslenska listamenn. Stofan er í eigu Reykjavíkurborgar, menntamálaráðuneytisins og Seðlabanka Íslands og er stað- sett í miðborg Parísar, skammt frá Notre Dame dómkirkjunni. Þeir sem í stofunni dvelja greiða dvalargjöld sem ákveðin eru af stjórn Cité Internationale des Arts er rekur stofuna, ásamt fl eiri listamannaíbúðum og miðast við kostnað af rekstri hen- nar. Þessi gjöld eru lægri en almenn leiga í París og á árinu 2008 verða þau 330 evrur á mánuði fyrir einstakling en 420 evrur á mánuði fyrir tvo. Úthlutun er lágmark tveir mánuðir í senn skv. reglum Cité en vegna fjölda umsókna undanfarin ár hefur dvalartími að jafnaði verið 2 mánuðir. Dvalargestir skuldbinda sig til að hlíta reglum Cité Internation- ale des Arts varðandi afnot af húsnæði og vinnuaðstöðu, þ.á m. er ætlast til að þeir nýti stofuna allan úthlutunartíma sinn. Hér með auglýst eftir umsóknum um afnot Kjarvalsstofu tímabilið 1. ágúst 2008 til 31. júlí 2009. Umsóknareyðublöð fást á Rafrænni Reykjavík á www.reykjavik.is og á vef Menningar- og ferðamálasviðs, www.reykjavik.is/menningogferdamal. Einnig má nálgast umsóknareyðublöð, ásamt reglum sem gilda um afnot af Kjarvalsstofu, í upplýsingaþjónustu Ráðhúss Reykjavíkur. Umsóknir skulu stílaðar á stjórnarnefnd Kjarvalsstofu, Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar, Ingólfsnausti - Vesturgötu 1, 101 Reykjavík. Fyrri umsóknir þarf að endurnýja, eigi þær að koma til greina við þessa úthlutun. Umsóknir skulu berast í síðasta lagi þriðjudaginn 25. mars 2008. Stjórnarnefnd Kjarvalsstofu KJARVALSSTOFA Í PARÍS 27. febrúar 28. febrúar 2.mars
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.