Fréttablaðið - 24.02.2008, Side 16
16 24. febrúar 2008 SUNNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Minnisvarði um Sveinbjörn Eg-
ilsson, rektor og skáld, var af-
hjúpaður á æskuslóðum hans í
Innri-Njarðvík þegar 200 ár voru
liðin frá fæðingu hans. Svein-
björn er best þekktur sem fyrsti
rektor Lærða skólans í Reykja-
vík en hann var guðfræðing-
ur, kennari, þýðandi og skáld
og þýddi meðal annars Hómers-
kviður. Foreldrar Sveinbjörns
voru efnaðir bændur og nam
Sveinbjörn guðfræði við Hafnar-
háskóla og fékk kennarastöðu
við Bessastaðaskóla þegar heim
kom. Skólinn var svo fluttur til
Reykjavíkur og varð Sveinbjörn
þá rektor. Hann vann að ýmiss
konar þýðingum fyrir skólann og tók saman
orðabók yfir íslenskt skáldamál
sem varð síðar uppsláttarrit fyrir
rannsóknir á fornum íslenskum
kveðskap. Sveinbjörn samdi
nokkuð af ljóðum og sálmum,
meðal annars Heims um ból.
Veturinn 1849-50 kom upp
svokallað Pereat-mál við Lærða
skólann en það hófst með því
að Sveinbjörn skikkaði nemend-
ur skólans til að vera í bindindis-
félagi og voru þeir ósáttir við það.
Nemendurnir gengu úr félaginu
og við það reiddist Sveinbjörn og
las þeim skammarræðu sem þeir
svöruðu með því að hrópa „per-
eat“ eða niður með hann.
Sveinbjörn lét af störfum ári
síðar og lést stuttu seinna.
ÞETTA GERÐIST 24. FEBRÚAR 1991:
Minnisvarði um Sveinbjörn
ELTON JOHN FÉKK NAFNBÓTINA
SIR ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1998
„Ég er heimsins frægasti
hommi.“
Tónlistarmaðurinn Elton John
kom út úr skápnum sem tví-
kynhneigður árið 1976 en tók
það til baka nokkrum árum
seinna og kom út úr skápnum
sem samkynhneigður.
MERKISATBURÐIR:
1630 Þrettán hús og önnur
verðmæti brenna til kaldra
kola á Skálholtsstað.
1821 Mexíkó öðlast sjálfstæði
frá Spáni.
1863 Forngripasafn Íslands
stofnað.
1917 Bylting brýst út í Rússlandi.
1918 Eistland lýsir yfir sjálfstæði
frá Rússum.
1924 Íhaldsflokkurinn stofnaður.
Fimm árum síðar samein-
ast hann Frjálslyndaflokkn-
um undir nafninu Sjálf-
stæðisflokkur.
1924 Stytta af Ingólfi Arnarsyni
afhjúpuð á Arnarhóli.
1957 Sjómannasamband ís-
lands stofnað.
1984 Írak hefur loftárásir á Íran.
1998 Elton John sleginn til ridd-
ara.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
systir og frænka,
Svandís Júlíusdóttir
Skúlagötu 78, 105 Reykjavík,
Lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, mánu-
daginn 18. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í
Reykjavík, þriðjudaginn 26. febrúar kl. 13.00.
Karl Valur Guðjónsson Díana Björnsdóttir
Brynja Guðjónsdóttir Sveinn Þór Hallgrímsson
Júlíus Kristinsson Lotte Knudsen
Kristján Kristinsson
Egill Kristinsson Hafdís Ósk Gísladóttir
barnabörn og aðrir aðstandendur.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Jónína Hannesdóttir
Skálagerði 15, Reykjavík,
áður til heimilis að Kolbeinsgötu 6, Vopnafirði, sem
lést á Vífilsstöðum 14. febrúar, verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju mánudaginn 25. febrúar kl.13.00.
Hólmfríður Kjartansdóttir Sigurður Adolfsson
Inga Hanna Kjartansdóttir
Kjartan Þórir Kjartansson Áshildur Kristjánsdóttir
Baldur Kjartansson Hrönn Róbertsdóttir
Erla Kjartansdóttir Ágúst Borgþór Sverrisson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar og tengdamóðir,
Arnóra Friðrikka Salóme
Guðjónsdóttir
síðast til heimilis að Sléttuvegi 13
Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnudaginn
17. febrúar sl. Útförin fer fram frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 26. febrúar nk. kl. 14.00.
Eiríkur Valdimarsson
Arnfríður H. Valdimarsdóttir Ólafur Árnason
Magnúsína G. Valdimarsdóttir Þór G. Þórarinsson
Sigurjóna Valdimarsdóttir Kristjón Sigurðsson
Arnór V. Valdimarsson Guðlaug Jónsdóttir
Páll G. Valdimarsson Soffía Gísladóttir
Sigurborg Valdimarsdóttir Jón Egilsson
Guðjón Valdimarsson Ólafía G. Einarsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Eitt af þeim verkefnum sem hlaut
styrk í úthlutun Félags- og trygginga-
málaráðherra til atvinnumála kvenna
nýverið var Sjóræningjahúsið á
Patreksfirði. Alda Davíðsdóttir er for-
stöðukona sýningarinnar og höfundur
að verkefninu. Hún hefur nýlokið BA-
námi í ferðamálafræðum frá Háskól-
anum á Hólum og dreif sig strax að
því loknu í mastersnám í menningar-
stjórnun við Háskólann á Bifröst.
„Þetta kom allt saman til þegar ég
var að ljúka námi í ferðamálafræði
við Háskólann á Hólum og vissi það
að ég þyrfti að gera eitthvað þegar
ég kæmi heim,“ segir Alda en hún
er fædd og uppalin á Patreksfirði.
„Ég var orðin leið á því að vera í ein-
hverri vinnu sem ég hafði enga sér-
staka ánægju af. Ferðamálafræði er
eitthvað sem maður getur notað hvar
sem er á landinu og námið á Hólum
miðar að ferðaþjónustu í dreifbýli
svo það hentaði einstaklega vel. Sjó-
ræningjahúsið verður sýning sem
byggir á frásögnum sem ég hef fund-
ið í bókum um komu strandræningja á
svæðið seinni hluta sextándu aldar og
fyrrihluta þeirrar sautjándu. Sýningin
sjálf verður trú sögunni og sannleik-
anum og mun sýna þetta eins og við
teljum að hafi verið réttast. Svo verð-
ur líka útisvæði þar sem við munum
leika okkur með sjóræningjaþemað og
þá horfum við frekar til krakkanna og
kvikmyndasjóræningja eins og Jack
Sparrow. Hugmyndin hjá okkur er að
það megi fikta og koma við og fólk geti
sjálft tekið þátt. “
Alda segir margvísleg tækifæri
liggja í ferðamannaiðnaðinum um allt
land og spurningin sé bara að útfæra
hugmyndirnar svo þær verði aðdráttar-
afl fyrir staðina.
„Það helsta sem vantar fyrir ferða-
menn er afþreying. Það er mikill fjöldi
ferðafólks sem fer hér út á Látrabjarg
á hverju sumri og okkur vantar ein-
hvern sterkan segul til að toga það
hingað inn í bæinn. Ég er að vona að
Sjóræningjahúsið skili því. Núna erum
við að vinna í heimildarhlutanum en
það fer mikill tími í undirbúning og
fjáröflun. Nú erum við þó komin með
húsnæði í gamalli smiðju sem sveitar-
félagið á og fáum leiguna á henni í
nokkur ár sem styrk. Það þarf að gera
mikið við húsið en við byrjum þá bara
með litla sýningu í vor og hluta af úti-
svæðinu en við reiknum með að opna í
kringum sjómannadaginn sem er mikil
hátíð hérna í bænum.“
Alda segist vona að verkefnið verði
til frekari atvinnusköpunar í byggðar-
laginu og er í viðræðum við sveitunga
sína um að búa til minjagripi til sölu
á sýninguna og er vongóð á að líflegri
sýningu eins og Sjóræningjahúsinu
verði vel tekið.
„Ég held að við getum alveg leyft
okkur að vera með vandaða sýningu
en sprella svolítið líka. Það þarf ekki
allt að vera alvarlegt. Byggðasöfn-
in eru kafli út af fyrir sig og nú hafa
opnað þessar upplifunarsýningar eins
og draugasetur og galdrasýning sem
byggja svolítið á öðru þannig að ég
held að það sé að verða eitthvað nýtt
til í þessum geira. Allstaðar um land-
ið eru einhverjar spennandi sögur sem
hægt er að grafa í og þetta er bara
spurning um að láta sér detta eitthvað
í hug og útfæra það. Nú eru Bílddæl-
ingar til dæmis að fara af stað með
sitt skrímslasetur og þetta hangir allt
skemmtilega saman. Ég sé Vestfirðina
fyrir mér sem spennandi og dramat-
ískt ferðasvæði fyrir fjölskyldufólk að
heimsækja.“
heida@frettabladid.is
ALDA DAVÍÐSDÓTTIR: STOFNAR SJÓRÆNINGJASAFN
Kafteinn Jack Sparrow á Patró
ALDA DAVÍÐSDÓTTIR Setur upp sjóræningjasýningu í gamalli smiðju á Patreksfirði. MYND/BRÍET ARNARDÓTTIR
Samnorræn ráðstefna um kennara-
menntun og skólaþróun verður styrkt
af Landsbankanum. Elín Sigfús dóttir,
framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs
Landsbankans, og Ólafur Proppé,
rektor Kennaraháskóla Íslands, undir-
rituðu samninginn.
Á ráðstefnunni verður fjallað um
samstarf skóla og stofnana sem annast
kennaramenntun. Þema ráðstefnunnar
eru tengsl kennaramenntunar og skóla-
þróunar og hvernig skólarnir geta haft
áhrif á kennaramenntunina. Kennara-
háskóli Íslands vill efla vettvangsnám
kennaranema vegna mikilvægi þess í
menntun kennara. Ráðstefnan er opin
öllum þeim sem starfa að kennara-
menntun hérlendis og á Norðurlönd-
unum. Hún verður haldin í Kennara-
háskólanum 21.-24. maí næstkomandi.
Samnorræn ráðstefna fær styrk
VIÐ UNDIRRITUN SAMNINGS Frá vinstri: Kristín
Jónsdóttir, lektor og formaður undirbúnings-
nefndar ráðstefnunnar, Ólafur Proppé, Elín
Sigfúsdóttir og Viggó Ásgeirsson, forstöðu-
maður markaðs- og vefdeildar Landsbankans.