Fréttablaðið - 24.02.2008, Síða 20
ÞAÐ HEITASTA Í ...
HÓTELUM, VEITINGASTÖÐUM, GRÆJUM, BÚÐUM, MÖRKUÐUM OG FERÐANÝJUNGUMMIÐBAUGUR
Hótelið er hannað af hinum heimsþekkta ítalska arkitekt Claudio Nardi
sem hefur gert það gott í heimalandinu en þó ekki síður víðs vegar
um heiminn – allt frá einkahúsum í Dubai til listasafna í Póllandi, en
á síðasta ári vann tillaga hans fyrstu verðlaun í samkeppni um nýja
byggingu Nýlistasafnsins í Kraká. En aftur að aðalmálinu – hótelinu
Riva Lofts sem tímaritið Wallpaper útnefndi það besta í heiminum nú
í janúar síðastliðnum. Hótelið er lúxussveitahótel í Flórens sem gæti
verið sniðugt að bóka með dágóðum fyrirvara því á því eru aðeins svít-
ur og það aðeins níu talsins. Hver svíta hefur sérinngang, átta þeirra
eru með eldhúsi og eru þær allt frá þrjátíu fermetrum að stærð upp í
100. Sumar eru með litlum einkagarði til að sóla sig í og aðrar opnast
út í sameiginlegan garð. Innanstokksmunir eru allir hágæða hönnun og
listmunir umkringja gesti en þeir hafa einnig aðgang að sameiginlegri
lesstofu þar sem arineldur kraumar og sundlaug úr hvítum sandsteini.
Þeim sem vilja vita meir er bent á síðuna www.rivalofts.com. - jma
2 FERÐALÖG
Þ
etta undurfagra hótel er
hannað af arkitektinum Frank
Gehry sem einnig hannaði
Guggenheim-safnið í Bilbao.
Byggingin er eins og listaverk og skartar
silfurlituðum og fjólubláum „málmöld-
um“ og er staðsett í miðri Marques de
Riscal-vínekrunni á Spáni en hún gefur
af sér eitt frægasta vín héraðsins. Her-
bergin á hótelinu eru einnig afar svöl
með viðarpanelum og marmara á gólfum
og svo er hægt að baða sig í sólinni uppi
á þaki þar sem einnig er að finna bar.
Auðvitað er kjörið að drekka rauðvín
allan liðlangan daginn, en það er meira
að segja hægt að leyfa líkamanum að
njóta góðs af andoxunarefnum rauðvíns
með því að fara í svokallað „Vino-
therapie“ spa á hótelinu en þar eru allar
húðsnyrtivörur framleiddar úr vínberj-
um og meira að segja hægt að baða sig í
víni.
Veitingastaður hótelsins er frábær en
þar eldar Michelin-stjörnukokkurinn
Francis Paniegu baskamat. Svo er auð-
vitað bráðnauðsynlegt að skreppa í vín-
smökkunarferð um héraðið og til borg-
arinnar Elciego sem er konfekt fyrir öll
skynfærin. Skál! - amb
www.starwoodhotels.com
RAUÐVÍN, DEKUR &
AVANT-GARDE ARKITEKTÚR
Marqués de Riscal-hótelið í Rioja-héraðinu er hannað af Frank Gehry
WALLPAPER* TILNEFNIR
BESTA HÓTELIÐ
Riva Lofts í Flórens
F
erðalög eru þetta sinn tileinkuð veitingastöð-
um og öldurhúsum í nokkrum helstu
stórborgum heims. Hluti af því að kynnast
nýrri menningu er að bragða á þjóðarréttum
hennar, og svo er engin betri leið til þess að upplifa
stórborg en að tylla sér á dásamlegum veitingastað,
gæða sér á mat og drykk og skoða fólkið í kringum
sig. Matur skilur eftir svo margar minningar. Ég er
viss um að helstu minningar okkar af áfangastöðum
séu tengdar matnum sem við borðuðum. Til dæmis
hugsa ég aldrei um Skotland án þess að minnast þess
að hafa leitað skjóls undan kulda Edinborgar inni á
ævafornum pöbb og teygað dökkbrúnan Guinness og
borðað haggis og rófustöppu. Tókýó er auðvitað ekki
Tókýó án japansks matar, og morgunverður klukkan
6 á fiskmarkaðnum þegar sushi-ið var næstum
spriklandi er mér ferskur í minni. Steak tartar og
rauðvínsglas á Brasserie d’Île Saint-Louis í París
klikkar aldrei, né góður kebab í Berlín. Vondur matur
getur líka haft sín áhrif: Ég fékk til dæmis nóg af
moussaka á Grikklandi fyrir lífstíð og djúpsteikt
Mars-súkkulaði í Norður-Englandi (steikt í sömu olíu
og fiskur og franskar) er með því versta sem ég hef
bragðað.
Þegar haldið er í helgarferðir til líflegra vestrænna
borga er um að gera að vera upplýstur um bestu
veitingastaðina og jafnvel bóka þá tímanlega. Það er
tilgangslaust að fara til dæmis til London og enda á
einhverjum vondum pastastað þegar maður hefur
aðeins þrjú kvöld til stefnu. Vefir eins og Time Out,
og dagblöð eins og Sunday Times og New York
Times, eru með frábæra matargagnrýni og auðvelt að
verða sér úti um upplýsingar um sniðugustu staðina.
Eins verður maður að sníða ferðina að sjálfum sér, ef
þú ert ekki týpan sem nennir að hanga á fínum
stöðum eins og 101 og fílar artí staði eins og Sirkus
og Boston þá ertu væntanlega ekki týpan heldur til að
drekka Cosmopolitan á Hudson-hótelinu í New York.
Þegar maður hefur stuttan tíma fram undan er gott
að vera vel skipulagður og svo klikkar aldrei að fá
góð ráð frá heimamönnum. Og þrátt fyrir að Andy
Warhol hafi sagt „McDonald’s er það fallegasta við
Stokkhólm,“ erum við honum ósammála í þetta sinn. Í
útlöndum er um að gera að breyta út frá vananum og
prófa eitthvað sem þú hefur aldrei prófað áður.
SAMA HVAÐ WARHOL SAGÐI
skrifar Anna Margrét Björnsson
ferðalög kemur út mánaðarlega
með sunnudagsblaði Fréttablaðsins.
Ritstjóri Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is
Útlit Arnór Bogason og Kristín Agnarsdóttir
Forsíðumyndina tók Silja Magg af Lauren á
veitingastaðnum Yaffa í New York
Penni Júlía Margrét Alexandersdóttir
Ljósmyndir Yvan Rodic, Silja Magg
Auglýsingar Stefan P. Jones stefan@365.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ]
ferðalög
MARS 2008
+ FÓTBOLTAFERÐIR, FRANK GEHRY HÓTEL Í BARCELONA, MATARSKÓLI Í MARRAKESH, LISTSÝNINGAR Í MARSMÁNUÐI OG WALLPAPER DESIGN AWARDS
HIPP & KÚL
HELSINKI
SLAVNESK MELANKÓLÍA MÆTIR SKANDINAVÍSKRI HÖNNUN
ET,
DREKK&VER
GLAÐUR!
LEIÐARVÍSIR AÐ SPENNANDI VEITINGAHÚSUM, BÖRUM OG NÆTURKLÚBBUM Í LONDON, PARÍS, NEW YORK OG STOKKHÓLMI
Á FERÐ & FLUGI
LJÓSMYNDARINN PÁLL
STEFÁNSSON MEÐ
SÝNINGU FRÁ FERÐUM
SÍNUM UM HEIMINN