Fréttablaðið - 24.02.2008, Síða 66
36 FERÐALÖG
Þ
essar myndir eru glefsur, bland í
poka af um tuttugu stöðum sem ég
heimsótt til að skrásetja heims-
minjar UNESCO. Titillinn á sýn-
ingunni er í raun einfaldur, þetta eru árin
sem ég hef unnið við ljósmyndun, + líf, - ár,
seinna á árinu.“ Páll, sem er einnig mynd-
ritstjóri hjá tímaritunum Iceland Review
og Atlantica hefur starfað sem ljósmyndari
frá árinu 1981. Auk þess að fljúga um heim
allan fyrir UNESCO og flugvélablaðið Atl-
antica hefur hann einnig fundið tíma til að
mynda fyrir nýja ljósmyndabók sem er
væntanleg á næsta ári. „ Það verður bók til-
einkuð fótboltamenningunni í Afríku og
kemur út hjá PHK. Hún mun sýna hvernig
fótboltinn sameinar fólk í gleði þrátt fyrir
erfitt líf í þessari fallegu heimsálfu.“ Páll
segir í inngangsorðum að sýningunni að
hann haldi alltaf niðri í sér andanum þegar
hann tekur mynd og það sé tuttugu og fimm
ára vani. „Ég býst við að myndin verði
skarpari þannig.“ Afríka er uppáhaldsvið-
fangsefni Páls þessa dagana sem segist
aldrei þreytast á að heimsækja álfuna.
„Skrítnasta atvik á ferðum mínum um Afr-
íku er meðal annars að hafa verið reiddur á
reiðhjóli sjö kílómetra leið út á flugvöll í
Malí með allt mitt hafurtask og hjólið var
bæði gíralaust og vindlaust. Svo svaf ég líka
á eldgamalli dýnu upp á húsþaki eina nótt-
ina í Dogon í Mali.“ - amb
BLAND Í POKA
Ljósmyndarinn Páll Stefánsson hefur verið á ferð og fl ugi um heim
allan undanfarin tvö ár til að mynda heimsminjar UNESCO. Um
helgina opnaði sýningin XXVx 2 í Gerðarsafni með svipmyndum úr
ferðunum.
Askia, Mali. í baksýn má sjá mosku frá 11. öld sem er á heimsminja-
skrá Unesco. Fyrir framan hana stendur farandsali með tösku fulla
af kínversku plastglingri.
Frankfurt Hjarta þýskalands. Þangað kemur maður. Og fer.
Kínamúrinn Myndin
er tekin af vestasta
hluta múrsins,
þar sem hann nær
lengst inn í landið.
Île de Gorée, Senegal Þessi staður er frægur vegna þrælasölunn-
ar sem átti sér stað. Húsið heitir Maison des Esclaves eða Hús
þrælanna.
Pechersk Lavra, Úkranía Þetta miðaldaklaustur er lifandi safn ortódox-kirkjunnar eftir fall kommúnismans.
Djenné, Mali Þessi
risavaxni markaður
er alveg ótrúlegur.
Allt iðandi af fólki
og enginn tók eftir
mér að mynda.
PÁLL STEFÁNSSON LJÓSMYNDARI
12
www.ferdamalastofa. is
KAUPIR ÞÚ FERÐIR
AF FAGAÐILUM?
Fer›askrifstofum og fer›askipuleggjendum er skylt a› nota
sérstakt au›kenni (sjá a› ofan) Fer›amálastofu í hvers kyns augl‡singum
um fljónustu sína sem beinast a› neytendum og á heimasí›u sinni,
svo neytendur geti gengi› úr skugga um a› tilskilin leyfi séu fyrir hendi.
Au›kenni flessi sta›festa a› fer›askrifstofur og fer›askipuleggjendur
sem selja fljónustu sína, innan lands jafnt sem utan, fullnægja kröfum
laga nr. 73/2005 um skipan fer›amála. Gef›u fleim gaum!
Lækjargata 3 | 101 Reykjavík | Sími 535 5500 | Fax 535 5501 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
Strandgata 29 | 600 Akureyri | Sími 464 9990 | Fax 464 9991 I Netfang: upplysingar@icetourist.is
– gefðu þá þessum merkjum gaum
Upplýsingar um leyfishafa Ferðamálastofu
er að finna á vefnum