Fréttablaðið - 24.02.2008, Blaðsíða 77
SUNNUDAGUR 24. febrúar 2008 25
Vel ber í veiði fyrir unnendur
sönglistar í kvöld en þá fer fram
dagskrá helguð sænska tenór-
söngvaranum Jussi Björling í
Salnum í Kópavogi.
Salurinn hefur boðið hinu
sænska Jussi Björling-félagi að
flytja einstæða dagskrá, sem hlot-
ið hefur heitið „A Golden Evening
with Jussi Björling“ í Tíbrá-tón-
leikaröðinni. Með hljóðritunum,
orðum og ljósmyndum er dregin
upp mynd af goðsögninni um hinn
þjóðsagnakennda tenór sem hóf
söngferil sinn aðeins fjögurra ára
gamall og söng fram til dauðadags
árið 1960, en þá var Björling
aðeins 49 ára.
Hágæðahljóðritanir með söng
Björlings munu óma um tónleika-
salinn á milli þess sem Bertil
Bengtsson, einn helsti Björling-
sérfræðingur heimsins í dag, leið-
ir tónleikagesti í gegnum líf og list
Jussi Björling í máli og myndum.
Á meðal þess sem gestir fá að
heyra Björling flytja er mögnuð
upptaka af aríunni Nessun dorma
úr óperunni Turandot eftir Pucc-
ini sem var bjargað úr sænsku
safni fyrir aðeins örfáum árum og
endurunnin af mikilli natni.
Jussi Björling-félagið hefur
sannreynt þessa hugmynd við
góðan orðstír í tónlistarsölum í
stærri borgum Svíþjóðar. Svipað-
ur árangur hefur náðst í tónleika-
sölum í Bandaríkjunum, Englandi
og Noregi þar sem dagskráin
hefur vakið mikla eftirtekt og
lukku.
Hinn heimsþekkti sænski tenór-
söngvari Jussi Björling kom í sína
fyrstu og einu heimsókn til Íslands
í nóvember árið 1952. Hann dvaldi
hér í vikutíma, hélt tónleika við
mikla hrifningu allra viðstaddra
og var sæmdur Riddarakrossi
hinnar íslensku Fálkaorðu.
Tónleikarnir hefjast kl. 20. Miða
má nálgast í miðasölu Salarins. - vþ
Goðsögnin Jussi
Björling í Salnum
Margir hafa mikið dálæti á tón-
smíðum Vivaldis, enda ærin
ástæða til. Þeir sem tilheyra þess-
um hópi ættu að fjölmenna í Lang-
holtskirkju í kvöld kl. 20 vegna
þess að þá flytur Gradualekór
kirkjunnar eitt af þekktustu verk-
um tónskáldsins, Gloriu. Með
kórnum leikur kammersveit sem
er að hluta skipuð fyrrverandi
meðlimum kórsins.
Gloria og Árstíðirnar eru þau
verk sem „Rauðhærði prestur-
inn,“ Vivaldi, er þekktastur fyrir
og oftast eru flutt. Gloria er samin
fyrir blandaðan kór og hefur
margsinnis verið flutt hérlendis.
Það er sjaldgæfara að heyra verk-
ið í flutningi barnakórs, en útsetn-
ingin er eftir Louis Pichierri sem
var tónlistarskólastjóri og hljóm-
sveitarstjóri í New Hampshire.
Í fyrri hluta tónleikanna á
sunnudag mun Gradualekórinn
flytja nokkur verk að auki, meðal
annars þrjú lög úr frönsku mynd-
inni „Les Choristes“ eftir Christ-
ophe Barratier og Bruno Colais,
Carmen fratrum arvalium sem
Hildigunnur Rúnarsdóttir samdi
fyrir kórinn síðastliðið vor og
Gloriu eftir danska tónskáldið
Michael Bojesen.
Gradualekór Langholtskirkju er
skipaður 30 stúlkum á aldrinum
14–18 ára sem flestar hafa alist
upp í öflugu tónlistarstarfi Kór-
skóla Langholtskirkju og sumar
sungið í kór í tíu ár. Þær eru allar í
tónlistarnámi. Konsertmeistari á
tónleikunum er Joaquin Páll Pal-
omares sem er að ljúka námi frá
Listaháskóla Íslands. Stjórnandi
er Jón Stefánsson. -vþ
Barnakór flytur
Gloriu Vivaldis
GRADUALEKÓR LANGHOLTSKIRKJU Flytur Gloriu eftir Vivaldi á tónleikum á morgun.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
JUSSI
BJÖRLING
Ein skær-
asta stjarna
óperu-
heimsins
fyrr og síðar.
Píanóleikarinn Helga Bryndís Magnúsdóttir leikur
á tónleikum í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit í dag
kl. 15. Á efnisskránni eru nokkur af öndvegisverk-
um píanóbókmenntanna eftir þá J.S. Bach, L.v.
Beethoven, S. Rachmaninoff og F. Chopin.
Helga Bryndís lauk kennara- og einleikaraprófi
frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1987 þar
sem Jónas Ingimundarson var hennar helsti
kennari. Hún stundaði framhaldsnám í píanóleik
við Tónlistarskólann í Vínarborg og við Sibeliusar-
akademíuna í Helsinki. Helga hefur haldið fjölda
einleikstónleika og leikið með hljómsveitum,
einsöngvurum, kammersveitum og kórum, meðal
annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands og Caput-hópnum. Á
næstunni má heyra Helgu Bryndísi leika einleik á
Listahátíð í Reykjavík vorið 2008. Helga hefur
starfað við Tónlistarskóla Akureyrar frá árinu
1992. Hún hlaut starfslaun listamanna árið 2003 og
aftur árið 2007.
Tónleikarnir eru liður í vetrardagskrá Laugar-
borgar. Miðaverð er 2000 kr.
Öndvegisverk píanóbók-
menntanna fá að hljóma
HELGA BRYNDÍS MAGNÚSDÓTTIR PÍANÓLEIKARI Leikur á
tónleikum í Laugarborg í dag.
GAMANÓPERAN
SÍGAUNABARÓNINN
EFTIR JOHANN STRAUSS - Íslensk þýðing: Egill Bjarnason og Þorsteinn Gylfason
Í GAMLA MJÓLKURSAMLAGINU BORGARNESI
Miðapantanir 437 1598 • tskb@simnet.is • Uppl.: www.borgarbyggd.is
Su. 24. feb. kl. 20.00 - UPPSELT
Þr. 26. feb. kl. 20.00 - UPPSELT
Síðustu sýningar:
La. 1. mars kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Su. 2. mars kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Þr. 4. mars kl. 20.00 - LAUS SÆTI
Félagið Heyrnarhjálp
Texti er okkar tromp
Málþing um aðgengismál
Heyrnarhjálp býður til málþings
um aðgengi fólks með heyrnarfötlun
Grand Hótel við Sigtún 1. hæð 3. mars 2008 kl. 16-19.30
Efni málþings:
Fjallað verður um aðgengismálin í víðum skilningi, s.s. um textun á íslensku efni í sjónvarpi, myndböndum og
kvikmyndum, hvað gerir tónmöskvi og hvar á hann að vera, rittúlkun/táknmálstúlkun og réttur einstaklinga til
túlkunar. Einnig er fjallað um heyrnarskerðinguna og áhrif hennar, tæknina, skólakerfi ð og vinnumarkaðinn.
Sýning og kynning verður á heyrnar-og hjálpartækjum og öðrum sérútbúnaði.
Sýningin opnar kl. 15.30
Markhópur:
Heyrnarskertir/lausir, aðstandendur þeirra og ekki síður fagfólk, samstarfsmenn, vinnuveitendur
og embættismenn sem tengjast málafl okkunum í starfi .
Aðgengi fyrir alla. Tónmöskvi, rittúlkur, táknmálstúlkur
Kaffi veitingar-námskeiðsgögn
Húsið opnar 15.30. Verð 1000 krónur
Fólk er hvatt til að skrá sig á netinu: heyrnarhjalp@centrum.is
Heyrnarhjálp, félag heyrnarskertra á Íslandi. Langholtsvegur 111. 104 Reykjavík.
Sími: 5515895 Fax: 5515835. Veffang: heyrnarhjalp.is