Fréttablaðið - 24.02.2008, Side 79
SUNNUDAGUR 24. febrúar 2008 27
Þrjár myndir verða frumsýndar
hjá kvikmyndaklúbbnum
Fjalakettinum í kvöld og annað
kvöld. Í kvöld verður sýndur
viðskiptatryllirinn Yella, sem
hefur hlotið mikið lof gagnrýn-
enda. Fékk aðalleikkonan Nina
Hoss til að mynda Silfurbjörninn
í Berlín fyrir frammistöðu sína.
Annað kvöld verður síðan
frumsýnd ljóðræna heimildar-
myndin Menneskens Land – min
film om Grønland þar sem
nútímasamfélag Grænlendinga er
krufið til mergjar. Einnig verður
frumsýnd annað kvöld myndin
Requiem eftir Hans-Christian
Schmid sem byggir á raunveru-
legum atburðum þegar ung
kaþólsk kona lét lífið eftir að
reynt var að særa úr henni illa
anda. Nánari upplýsingar um
Fjalaköttinn má finna á www.
filmfest.is.
Þrjár myndir
frumsýndar
YELLA Nina Hoss fékk Silfurbjörninn í
Berlín fyrir frammistöðu sína í Yella.
Úrslit í Eurovision-forvali
Íslands réðust loksins,
loksins, í gærkvöldi, þegar
síðustu átta lögin börðust
á banaspjótum í beinni frá
Smáralind. Þetta var búin
að vera einhver lengsta
sönglagakeppni í veraldar-
sögunni, rúmlega fimm
mánuða törn; fyrsta undan-
undanúrslitakvöldið fór
fram 6. október.
Flytjendur og höfundar úrslitalag-
anna átta voru misjafnlega æstir í
að koma sér og sínu lagi á fram-
færi. Þannig virtist sem Merzedes
Club með sitt Ho Ho Ho og Euro-
bandið með sitt Fullkomna líf
legðu allt í sölurnar, á meðan aðrir
keppendur voru minna að stressa
sig yfir fjölmiðlaathyglinni fyrir
keppniskvöldið og treystu fremur
á frammistöðu sína á sviðinu.
Það voru þeir Valli sport og Páll
Óskar sem voru klappstjórar æst-
ustu liðanna tveggja. Valli sport
vann með Barða Jóhannssyni að
kynningu að öllum lögunum hans
þremur í keppninni. Valli var gríð-
arlega uppfinningasamur þegar
kom að því að fá umfjöllun um sitt
fólk í fjölmiðlum og ekki skemmdi
fyrir að hann var með gott efni í
höndunum; fáránlega grípandi
lag, fjóra hressa próteinhlunka og
limafagra en laglausa söngkonu.
Eftir því var þó tekið hve höfund-
ur lagsins var lítið að trana sér
fram við fjölmiðla.
Í vikunni fram að keppni fóðr-
aði Valli Sport blaðamenn á hverri
stórfréttinni á eftir annarri; plata
var í vinnslu með Merzedes Club,
samningur við Cod var kominn í
höfn og viðræður hafnar við EMI
og hinn útdottni Haffi Haff hafði
tekið að sér förðun og greiðslu.
Valli seildist meira að segja svo
langt að fara að fletta ættfræði-
skrám og kom þaðan með þau stór-
tíðindi að afi beljakans Gaz-mans
hefði samið Öxar við ána. Þá
skellti Valli saman „Úr að ofan“
keppni í MR og lét Merzedes-
klúbbinn dæma og opnuauglýsing-
ar í blöðum blöstu við fólki þegar
nær dró. Þá voru frægðarmenni
eins og Logi Bergmann, Pétur
Jóhann og Sveppi dregnir á flot til
að lýsa stuðningi við lagið.
Það var sjálf stórstjarnan Páll
Óskar sem plöggaði fyrir Friðrik
Ómar og Regínu Ósk. Bæði höfðu
orðið í öðru sæti (Regína 2006,
Friðrik í fyrra), svo það var þeim
mikið kappsmál að fara alla leið í
ár. Páll Óskar er þaulvanur í að
snúa blaðamönnum um fingur sér
og laumaði því fljótlega inn að ný
ensk útgáfa af laginu væri alveg
rosaleg. Skömmu síðar
lét hann það svo
koma fram að enski
textinn væri eftir
hann sjálfan. Þá
benti Páll á að lagið
væri orðið gríðar-
vinsælt á Euro-
vision-síðum og á
YouTube, væri þar
jafnvel vinsælla en
sjálfur Grammy-
konsert Amy Wine-
house.
Þriðji mega-
plöggar-
inn lét svo til sín taka á síðustu
metrunum. Tónleikahaldarinn
Kári Sturluson sendi fjölmiðlum
skilaboð um gríðarlegan áhuga
austur-evrópskra útgáfufyrir-
tækja á lagi Dr. Spock, Hvar ertu
nú? Að auki var því stungið að fjöl-
miðlum að Hairdoctor myndi
greiða sveitarmeðlimum, sérhann-
aður gúmmíhanskaþjarki myndi
koma fram með hljómsveitinni í
Smáralind og Ellý Ármanns tók
sveitarmeðlimi í kennslustund í að
skrifa ástarbréf.
Nú liggja úrslitin fyrir og í ljósi
þeirra getur fólk metið hvort sé
vænlegra til sigurs að vera músin
sem læðist eða músin sem hringir
fimm sinnum á dag í blaðamenn
með æsandi tíðindi af vænlegum
Eurovision-förum.
Barátta á bak við tjöldin í Laugardagslögunum
FÓR HAMFÖRUM Í PLÖGGI Á
MERZEDES CLUB Valli Sport
vann fyrir kaupinu sínu.
FÓR FÍNLEGA Í AÐ KYNNA
EUROBANDIÐ Páll Óskar
læddi inn fréttum af vinum
sínum.
KOM INN Á SÍÐUSTU METRUNUM
Kári Sturluson plöggaði fyrir Dr. Spock.
Rúnar Sigurbjörnsson opnar
ljósmyndasýninguna Doors á
Næsta bar í kvöld klukkan 18.
Sýningin samanstendur af
myndum af hurðum í borginni
Xiamen í Kína þar sem Rúnar og
kona hans Elín Jónína Ólafsdóttir
hafa dvalið síðastliðin ár.
Sýningin var opnuð í Kína í
fyrra en er nú komin til Íslands.
Rúnar og Elín ætla við opnunina
að flytja frumsamin lög af
plötunni The Long Road Home
sem kemur út á Íslandi og í Kína
á þessu ári.
Ljósmyndir
af hurðum
RÚNAR OG ELÍN Rúnar og Elín spila lög
af væntanlegri plötu sinni The Long
Road Home við opnun sýningarinnar.