Fréttablaðið - 24.02.2008, Page 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þorbjargar
Sigríðar
Gunnlaugsdóttur
Forval fyrir forsetakosningar í Bandaríkjunum jafngildir jól-
unum fyrir áhugamenn um kosn-
ingar. Og nú er allt eins og það á að
vera, ótrúleg spenna hjá demókröt-
um en minni hjá repúblikönum sem
krydda þó baráttuna með klassísk-
um framhjáhaldsskandal. Gamla
stríðshetjan McCain er greinilega
ekki jafngamall og hann sýnist,
blessaður.
ROSALEG stemning fylgir fram-
boði Obama og hann virðist ætla að
fara langt á því að kunna að byggja
upp góðan stíganda í ræðu. Ein-
hvern veginn finnst manni nú samt
blasa við að þarna er tiltölulega
óþekktur og óreyndur maður að
keppa við frambjóðanda sem hefur
allt með sér, reynslu, rökfestu, getu
og pólitískt bakland til að ná fram
stefnumálum. Það þarf nefnilega
að fylgja líka. Hillary er sterkari í
utanríkismálum, heilbrigðismálum
og menntamálum en keppinautur-
inn Obama.
WASHINGTON-TENGSL þykja
ekki af hinu góða og menn keppast
við að sverja af sér tengsl við valda-
blokkir í höfuðborginni og vilja
geta sagst engum háðir. Þetta sagði
Bush í kosningabaráttunni á sínum
tíma og lofaði að byggja brýr á milli
repúblikana og demókrata. Hann
verður ekki vændur um að hafa
staðið við það loforð. Og Obama
hamrar á þessu líka.
REYNDAR held ég að þáttur Bush
sé mun sterkari varðandi það hvað
Obama vegnar vel, en það hvernig
andstæðingur Hillary er. Banda-
ríkjamenn eru langþreyttir á pín-
legum ræðum og meinlegum vill-
um forsetans í ræðustól og þjóðin
þráir – og reyndar heimurinn allur
– að forseti Bandaríkjanna sé þess
umkominn að orða hugsanir sínar
þannig að þær skiljist. Og kannski
ekki síður að hann skilji sjálfur
hvað hann segir. Þá kemur Obama
eins og kallaður. Hann birtist sem
blanda af King og Kennedy, er
myndarlegur og skörulegur ræðu-
maður sem höfðar sterkt til tilfinn-
inga fólks.
KOSNINGARNAR eru sagðar
sögulegar því nú eigast við tveir
fulltrúar „minnihlutahópa“, svart-
ur maður og kona, eins broslegt og
það nú hljómar. Til þess að greina
það hversu mikið kynferði hefur að
segja í þessu sambandi er ágætt að
gera sér í hugarlund hverjir mögu-
leikar svartrar konu væru, sem
væri fremur óþekkt og áberandi
reynsluminni en keppinautur henn-
ar, en hefði það helst að vopni að
flytja hjartnæmar ræður með boð-
skapnum: „Yes, we can.“
ÉG held að Obama geti fyrst og
fremst þakkað Bush fyrir það ef
hann verður forsetaframbjóðandi
demókrata. Bush vilja menn ekki,
andstæðan við hann er Obama.
Yes, we can
5.000
Á miðvikudaginn verður Iceland Express fimm ára og af því tilefni
ætlum við að bjóða 5.000 flugsæti til fimm áfangastaða okkar á
aðeins 6.995 kr.*
Sala hefst kl. 12.00 á afmælisdaginn, 27. febrúar, og lýkur
kl. 17.00 á fimmtudag, 28. febrúar.
Sölutímabil: Frá hádegi 27. febrúar til kl. 17.00, 28. febrúar
Ferðatímabil: 1. mars –15. maí
Áfangastaðir: Kaupmannahöfn, London, Berlín, Barcelona og
Alicante
*Aðra leið með sköttum og öðrum greiðslum.
með ánægju
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fimm ára afmæli
Iceland Express!
á 6.995 kr.*
f lugsæti
8.55 13.41 18.28
8.45 13.26 18.08
Í dag er sunnudagurinn
24. febrúar, 55. dagur ársins.