Fréttablaðið - 27.02.2008, Qupperneq 16
16 27. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi
félagsins á árinu 2007
2. Lagður fram til staðfestingar
endurskoðaður ársreikningur
félagsins árið 2007
3. Ákvörðun um greiðslu arðs
og meðferð hagnaðar á árinu
2007
4. Tillaga til breytinga á sam-
þykktum félagsins1)
5. Tillaga stjórnar um starfs-
kjarastefnu félagsins
6. Kosning stjórnar
7. Kosning endurskoðanda
8. Ákvörðun um þóknun stjórnar
fyrir næsta kjörtímabil
9. Tillaga um heimild stjórnar til
kaupa á eigin hlutum fyrir hönd
félagsins
10. Önnur mál
Dagskrá:
Aðalfundur SPRON hf.
A
R
G
U
S
/
0
8
-0
0
9
6
Aðalfundur SPRON hf. verður
haldinn í Borgarleikhúsinu
við Listabraut í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn 27. febrúar kl. 17.00.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent
hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á
fundarstað í fundarbyrjun.
Dagskrá fundarins ásamt tillögum liggja frammi til
sýnis í Ármúla 13a í Reykjavík og eins má nálgast
þær á heimasíðu SPRON, www.spron.is.
Stjórn SPRON hf.
Reykjavík, 26. febrúar 2007
1) Gerð tillaga um að aðalfundur samþykki orðalagsbreytingu á
13. gr. samþykkta félagsins þess efnis að 5% takmörkun atkvæðis-
réttar taki bæði til beinna og óbeinna yfirráða atkvæðisréttar.
NOREGUR, AP „Þetta er frosinn
Edensgarður,“ sagði Jose Manuel
Barroso, forseti framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins,
þegar hann kom inn í „dómsdags-
hvelfinguna“ á Svalbarða í gær.
Hvelfingin var formlega tekin í
notkun í gær. Þar verða geymd
fræ allra þekktra jurtategunda
veraldar til þess að erfðaefni
þeirra glatist ekki hvað sem á
gengur í þróun jarðar næstu
aldirnar.
„Alþjóðlega fræhvelfingin á
Svalbarða er vátrygging okkar,“
sagði Jens Stoltenberg, forsætis-
ráðherra Noregs, sem hélt til Sval-
barða í gær ásamt tugum gesta
sem tóku þátt í opnunarathöfnini.
„Þetta er Nóaörk sem tryggir
líffræðilega fjölbreytni handa
kynslóðum framtíðar,“ sagði
Stoltenberg í ávarpi sínu.
Gestirnir báru 75 fyrstu fræ-
boxin eftir rauðum dregli í gegn-
um göngin sem liggja inn að fræ-
geymslunum sjálfum. Í
geymslunum verður hægt að
geyma 4,5 milljónir fræsýna þar
sem þau verða um þúsundir ára
óhult bæði fyrir náttúruhamförum
og eyðileggingu af mannavöldum.
Norðmenn eiga fræhvelfinguna,
sem hefur verið eitt ár í smíðum á
Svalbarða. Norðmenn hafa varið
sem svarar um 600 milljónum
íslenskra króna í þetta verkefni,
en veita öðrum ríkjum heimild til
að geyma þar fræ að vild og taka
jafnframt út úr geymslunni eftir
þörfum.
Söfnun fræsýna í geymsluna
verður hins vegar á könnu sam-
takanna Global Crop Diversity
Trust, sem stofnuð eru af Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun
Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlega
rannsóknarhópnum Biodiversity
International.
Fræin verða geymd í silfurhúð-
uðum hylkjum og verða allt að 500
frækorn í hverju sýni. Hylkjunum
er raðað á hillur í þremur geymsl-
um, sem hver um sig er 10 sinnum
27 metrar að flatarmáli.
Magnus Bredeli-Tveiten, sem
stjórnaði byggingu hvelfingarinn-
ar, segir að hún eigi að þola jafnt
jarðskjálfta sem kjarnorkuárásir.
Hvelfingin stóðst í það minnsta
með ágætum fyrsta prófið þegar
jarðskjálfti sem mældist 6,2 stig
varð þar í síðustu viku.
Til eru frægeymslur víða um
heim, en þær eru þó engan veginn
jafn öruggar og þessi nýja geymsla
á Svalbarða. Til dæmis eyðilögð-
ust frægeymslur í Írak og
Afganistan vegna stríðsátaka þar.
gudsteinn@frettabladid.is
Gaddfreðinn
Edensgarður
Alþjóðlega frægeymslan á Svalbarða var tekin í
notkun í gær. Þar verður hægt að geyma 4,5 millj-
ónir fræsýna til varðveislu fyrir komandi kynslóðir.
Hvelfingin kostaði Norðmenn 600 milljónir króna.
BRETLAND Ný kynslóð geðdeyfðar-
lyfja hefur lítil áhrif á flesta sjúk-
linga samkvæmt nýlegri rannsókn
sem gerð var við Háskólann í Hull
í Bretlandi og fréttavefur BBC
greinir frá. Niðurstöður rannsókn-
arinnar bentu til að lyfin gögnuð-
ust aðeins litlum hluta þeirra sem
glíma við alvarlegustu gerð þung-
lyndis.
Framleiðendur tveggja algeng-
ustu geðdeyfðarlyfjanna, Prozac
og Seroxat, rengja niðurstöður
rannsóknarinnar. Talsmaður lyfja-
fyrirtækisins GlaxoSmithKline
sem framleiðir Seroxat sagði að í
rannsókninni hefði aðeins verið
skoðaður „lítill hluti þeirra gagna
sem til eru.“
Í skýrslu rannsakenda er tekið
fram að margir sjúklingar trúi því
að lyfin virki en að um lyfleysu-
áhrif geti verið að ræða. Fólki líði
betur einfaldlega vegna þess að
það er að taka lyf sem það haldi að
hjálpi þeim.
„Við höfum farið að reiða okkur
í of miklum mæli á geðdeyfðarlyf
þegar aðrir kostir eru í stöðunni,”
sagði Dr Andrew McCulloch, yfir-
maður hjá Geðheilsustofnuninni í
Bretlandi og nefnir hann talmeð-
ferðir sem dæmi. Dr. Richard
Tiner, yfirmaður hjá Samtökum
breskra lyfjaframleiðenda, sagði
ljóst að það væru „umtalsverð lyf-
leysuáhrif“ í geðdeyfðarlyfjum
við meðhöndlun vægra til miðl-
ungseinkenna en bætti því við að
ekkert lyf gæti fengið skráningu
án þess að sýnt væri að það væri
betra en lyfleysa. - sdg
Telja geðdeyfðarlyf aðeins virka á hluta sjúklinga:
Vafi leikur á virkni
geðdeyfðarlyfjaSTJÓRNMÁL Stefán Bogi Sveinsson, varaformaður Ungra framsóknar-
manna, hefur sent Árna Mathiesen
bréf þar sem hann
er hvattur til að
mæta í málstofu
sem Lagadeild
Háskóla Íslands
stendur fyrir og
fjallar um hvernig
beri að skipa
dómara.
„Ég fékk póst þar
sem málstofan var
auglýst og varð fljótlega hugsað
til manns sem mætti ekki láta
þetta framhjá sér fara enda erum
við framsóknarmenn miklir
áhugamenn um bætta stjórn-
sýslu.“ Hann sagðist hafa frétt að
Árni yrði í Vestmannaeyjum og
gæti því ekki mætt en Stefán
segist boðinn og búinn að taka
glósur fyrir hann. - jse
Árni Mathiesen:
Boðin kennsla í
dómaraskipan
STEFÁN BOGI
SVEINSSON
SVEITARSTJÓRNIR Tillaga um lækk-
un fasteignaskatts var felld í bæj-
arstjórn Hveragerðis á mánudag.
Minnihluti A-lista í bæjarstjórn
taldi sanngjarnt að lækka fast-
eignaskattinn um tæp 20 prósent í
ljósi þess að fasteignamat á íbúð-
arhúsnæði í Hveragerði hækkaði
um 12 prósent um áramótin.
„Benda má á að ekki þarf að
gera ráð fyrir breytingu í fjár-
hagsáætlun 2008 vegna þessarar
tillögu þar sem ekki var gert ráð
fyrir neinni hækkun á fasteigna-
mati í Hveragerði í áætluninni,“
sagði í tillögu minnihlutans.
Fulltrúar meirihluta Sjálfstæð-
isflokks sögðu ekki rétt að breyta
forsendum fjárhagsáætlunar með
lækkun álagðra fasteignagjalda.
„Tillögur í þessa veru eiga að
koma fram við fjárhagsáætlunar-
gerð hvers árs en slíkt gerðist
ekki núna þrátt fyrir að öllum
mætti vera ljóst að fasteignamat
myndi hækka á milli ára hér í
Hveragerði eins og undanfarin
ár,“ sögðu sjálfstæðismenn sem
kváðust sérstaklega ekki myndu
samþykkja lækkunina þegar jafn-
miklar framkvæmdir væru fram
undan eins og raunin sé í Hvera-
gerði.
Bæjarfulltrúar A-listans svör-
uðu með ítrekun á því að tekjufor-
sendur myndu ekki breytast þar
sem ekki hefði verið gert ráð fyrir
hækkun fasteignamats í fjárhags-
áætlun. - gar
Bæjarstjórnin fellir tillögu minnihlutans um lækkun fasteignaskatts:
Lækka ekki gjöld í Hveragerði
HVERAGERÐI Fasteignamat hækkaði um
tólf prósent um áramót og minnihlutinn
vildi lækka fasteignaskatt um tæpan
fimmtung. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HALDA UPPI ÞJÓÐINNI Rússneskt barn
gerði þessa teikningu þar sem sjá má
Vladimír Pútín forseta í júdóbúningi
og arftaka hans, Dimitrí Medvedev, í
glímubúningi. Þeir halda uppi þremur
rússneskum konum, sem bera borða
með áletrununum „menntun“, „efna-
hagur“ og „menning“. NORDICPHOTOS/AFP
NÍGERÍA, AP Nígerískur dómstóll
hafnaði í gær beiðni stjórnarand-
stöðunnar um að ógilda úrslit
umdeildra forsetakosninga í apríl
í fyrra sem lyktaði með sigri
forsetans Umaru Yar´Adua.
Í úrskurðinum segir meðal
annars að kæruaðila hafi skort
sannanir.
Alþjóðlegar kosningaeftirlits-
stofnanir lýstu kosningarnar
alvarlega gallaðar á sínum tíma.
Hins vegar setti dómstóllinn þær
kröfur að ákærandi bæði sannaði
að kosningasvindl hefði átt sér
stað og að umfangið hefði verið
það mikið að það hefði haft áhrif
á úrslit. - sdg
Umdeilt kjör Nígeríuforseta:
Hafna kröfu
um ógildingu
© GRAPHIC NEWS