Fréttablaðið - 27.02.2008, Síða 19
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Una Særún Jóhannsdóttir laganemi fór ásamt
kærasta sínum í ógleymanlega ferð til Indlands.
Una ákvað að ferðast til Indlands ásamt kærasta
sínum yfir jól og áramót. Þessi ferð var ógleymanleg
og þau upplifðu margt sem ekki er hægt að upplifa í
hinum vestræna heimi. „Við höfum alltaf haft mikinn
áhuga á Indlandi og okkur langaði að upplifa landið
og þjóðina ásamt því að borða ekta indverskan mat.
Ferðin tók fjórar vikur sem er ekki nægur tími til að
skoða allt en við stefnum á að fara aftur síðar,“ segir
Una.
Mikill tími fór í skipulagningu hjá Unu og kærasta
hennar enda Indland stórt land og mikið af forvitni-
legum stöðum til að heimsækja. Það var ákveðið að
skipta tímanum til helminga, fyrstu tvær vikurnar í
Norður-Indlandi og þær seinni tvær sunnar. „Við not-
uðum lestarsamgöngur og þá á oftast á nóttunni en
flugum lengri vegalendir.“
Ferðalagið hófst í Norður-Indlandi og það í borg-
inni Nýju-Delí þar sem Una var í nokkra daga en svo
var haldið til hinnar heilögu borgar Varanasi sem er
ein af elstu borgum Indlands. „Varanasi er mjög
trúarlegur staður. Hindúum þykir staðurinn afar
ákjósanlegur til að deyja á. Mikið er lagt upp úr því
að ösku hinna látnu séu dreifð í hið helga fljót Gang-
es. Við gistum á hóteli við fljótið og við hlið þess var
líkbrennsla og því var fnykur af starfsemi hennar í
loftinu,“ útskýrir Una og heldur áfram: „Það er
skondið að segja frá því að afar erfitt var að ná að
festa svefn vegna fólksins úti á götu sem var að
kyrja og biðja bænir með tilheyrandi látum og lét
klingja í böllum. Í þokkabót voru svo brjálaðir apar
uppi á þaki sem voru ekkert á leiðinni að fara sofa
eins og við,“ lýsir Una sem mun seint gleyma þessum
stað.
Eins og flestir sem fara Indlands gátu þau ekki
sleppt því að sjá Taj Mahal-höllina. „Það merkileg-
asta við Taj Mahal er að hún er jafn flott og hún lítur
út fyrir að vera á myndum. Oft þegar maður hefur
séð fræga og vinsæla staði á myndum verður maður
fyrir vonbrigðum þegar komið er á staðinn en þarna
átti það ekki við. Taj Mahal stóð algjörlega undir
væntingum í alla staði,“ segir Una að lokum og bætir
við að flestir ættu að heimsækja Indland á lífsleiðinni.
mikael@frettabladid.is
Brjálaðir apar á þakinu
Unu finnst að flestir ættu að heimsækja Indland einhverntíma á lífsleiðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EKKI FYRIR ALLA
Stæði sem eru sérmerkt
fötluðum eru eingöngu
fyrir fatlaða og til þess
að mega leggja í þau verður að vera
með stæðiskort í bílnum sem sett
eru í framrúðuna.
BÍLAR 2
GÓÐ TIL AÐ GANGA Á
Teppi á tröppum dempa hjóð
milli hæða og draga úr bergmáli
auk þess sem er hlýtt og notalegt
fyrir berar tásur að ganga á þeim,
sérstaklega ef þau eru svolítið
loðin og mjúk.
HEIMILI 5
Breiðhöfða
Ford F150 Crew Lariat, 2007, 24þ.km. Verð
3.990.000.- Tilboð 3.500.000.-
Ford F150 Crew Lariat 2/04, 51þ.km. 35“, loftpúðar,
camper festingar. Verð 2.800.000.-
Ford F350 Crew King Ranch, 2006, 40þ.km. 35“ Verð
4.290.000.- Tilboð 3.700.000.-
MMC Pajero Intense, Nýr bíll, dísel, 7 manna. Verð
5.550.000.- Tilboð 100% lán 5.168.000.-
Toyota Land Cruiser 90, 33“, 5/99, 190.þkm. sjálfskip-
tur. Verð 1.590.000.- Tilboð 1.400.000.-
SsangYoung Kyron 2,7 dísel, 7 manna, 12/07,
2þ.km. sjálfskiptur, leður. Tilboð 3.990.000.-
MMC Pajero Instyle, Nýr bíll, Dísel, bakkmyndavél.
Verð 6.390.000.- Tilboð 5.900.000.-
517 0000