Fréttablaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 6
6 1. mars 2008 LAUGARDAGUR
MENNTUN Skrifað hefur verið
undir þjónustusamning um að
Menntafélagið ehf. taki yfir
rekstur Iðnskólans í Reykjavík
og Fjöltækniskóla Íslands 1. júlí.
Skólarnir verða reknir sem einn
og fá nýtt, sameiginlegt nafn en
ekki hefur verið ákveðið enn
hvað nýi skólinn mun heita. Hann
tekur til starfa í haust.
Tveir menn munu stýra skól-
anum; Baldur Gíslason, skóla-
meistari Iðnskólans í Reykjavík,
og Jón B. Stefánsson, skólameist-
ari Fjöltækniskólans. „Skólinn
verður á nokkrum stöðum til að
byrja með en við erum metnaðar-
fullir stjórnendur og horfum auð-
vitað til þess að geta komið skól-
unum í eitt hús þegar tímar líða,“
segir Baldur, „en það er ekki
komið lengra.“
Hann bendir á að tilgangur
yfirtökunnar sé sá að efla iðn- og
starfsmenntun. Talsverð sam-
legðaráhrif fáist. „Með þessu
teljum við okkur vera að stíga
mjög stórt skref í því að efla iðn-
og starfsmenntun í landinu,“
segir hann.
Í Fréttablaðinu kom nýlega
fram að óánægja hefði verið
meðal kennara Iðnskólans með
það hvernig staðið hefði verið að
sameiningunni, upplýsingaflæði
hefði verið af skornum skammti
og ekkert samráð verið haft við
kennara.
Baldur segir engan veginn
hægt að segja að veruleg óánægja
sé meðal kennara. „Svona
óánægja er alltaf einstaklings-
bundin. Í upphafi vann fámennur
hópur gegn þessu. Í þeim hópi
hefur mjög fækkað en það verða
alltaf einhverjir sem ekki eru
sáttir við svona aðgerð. Við erum
að tala um stóra stofnun með 160-
170 starfsmenn og þó að einhver
sé óánægður endurspeglar það
ekki stöðuna,“ segir hann.
Baldur segir að hugmyndin
hafi verið kynnt fyrir rúmu, eða
1. febrúar í fyrra. „Við kynntum
hugmyndina á stórum fundi og
síðan er liðið heilt ár og rúmlega
það þar til hugmyndinni er lokað
í dag. Fyrir þessa kynningu höfðu
menn ekki fengið að fylgjast með
en eftir fundinn hafa kennarar
verið upplýstir reglulega um
gang mála.“
Menntafélagið ehf. er í eigu Sam-
taka iðnaðarins, Landssambands
íslenskra útvegsmanna, Samorku,
Sambands íslenskra kaupskipa og
Iðnaðarmanna félagsins í Reykja-
vík. Kennara félag Iðnskólans ætlar
að biðja umboðsmann Alþingis að
kanna lögmæti samrunans.
ghs@frettabladid.is
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍKFJÖLTÆKNISKÓLI ÍSLANDS
Stórt skref í eflingu
starfsmenntunar
Menntafélagið ehf. yfirtekur rekstur Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla
Íslands í sumar. Skólarnir verða reknir sem einn og fá nýtt nafn sem hefur ekki
verið ákveðið. Skólameistarar verða tveir núverandi stjórnendur skólanna.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA UNDIRRITAÐI Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra undirritaði nýlega þjónustusamning um að Menntafélagið ehf. tæki yfir
rekstur Iðnskólans í Reykjavík og Fjöltækniskóla Íslands í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ferðaskrifstofa
Playa Flamingo 20. maí.
Flug og gisting í 7 nætur m
eð íslenskri fararstjórn.
Á mann m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára.
Ef 2 ferðast: 47.535 kr.
NEYTENDAMÁL Ikea ætlar ekki að
hlíta áliti kærunefndar lausafjár-
og þjónustukaupa hjá Neytenda-
stofu. Nefndin hafði úrskurðað að
Ikea bæri að taka þátt í kostnaði
við endurnýjun eldhúsinnrétt ingar
sem var gölluð.
Upphaflega ætlaði fyrirtækið að
hlíta álitinu en hætti við, meðal
annars vegna þess að Fréttablaðið
sagði frá niðurstöðu nefndarinnar.
Málið snýst um eldhúsinnrétt-
ingu sem Guðjón Einarsson keypti
hjá Ikea í nóvember 2002. Fjórum
árum síðar kvartaði hann við Ikea
og vildi fá nýja innréttingu. Sú
gamla hefði elst hratt og orðið
fljótlega mött og flekkótt. Tíu ára
ábyrgð er á innréttingunni.
Í rökstuðningi Ikea var því
hafnað að fyrirtækið ætti að
útvega nýja innréttingu. Skemmd-
irnar mætti rekja til slæmrar
umgengni.
Aðspurður segist Þórarinn
Ævarsson, framkvæmdastjóri
Ikea, hafa hætt við að una niður-
stöðunni eftir að hafa skoðað málið
betur. Ástæðan sé meðal annars sú
að Guðjón hafi „farið í blöðin“.
Einnig geri hann athugasemdir
við vottorð sem lagt var fyrir
nefndina, frá manni sem sé titlað-
ur trésmíðameistari. Maðurinn sé
trésmiður, ekki trésmíðameistari.
„Ég fékk þau skilaboð að Ikea
ætlaði ekki að hlíta álitinu en mér
væri velkomið að fara með þetta
fyrir dómstóla,“ segir Guðjón. „Þá
verð ég bara að gera það.“ - sþs/ghs
Hættu við að borga þegar eigandi gallaðrar eldhúsinnréttingar „fór í blöðin“:
Ikea hunsar álit Neytendastofu
IKEA Eigandi eldhúsinnréttingarinnar
sem um ræðir vildi fá nýja innréttingu
vegna skemmda á hinni gömlu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNTUN Skólagjöld til grunn-
náms í Háskólanum í Reykjavík
(HR) hafa hækkað um tæplega
fjörutíu prósent síðan 2005. Á
sama tíma hafa skólagjöld til
meistaranáms hækkað um 21 til
24 prósent. MBA-námið hefur
hækkað minnst, eða um sautján
prósent.
Nemandi í grunnnámi þarf nú
að greiða 274 þúsund fyrir skóla-
árið. Í meistaranámi borgar hann
622 til 728 þúsund eftir því á hvaða
braut hann er. MBA-námið kostar
1,45 milljónir á ári.
Aðspurður segir Jóhann Hjartar-
son, fjármálastjóri HR, verðlags-
breytingar aðalástæðuna fyrir
þessum hækkunum. Grunnnámið
hafi hækkað hlutfallslega mest
vegna þess að gjöldin fyrir árin á
undan hafi ekki fylgt verðlagi.
Meistara- og MBA-námið hafi
hins vegar byrjað árið 2005.
Tekið skal fram að í MBA-námi
í HR gildir sú regla að nemandi
borgar sama skólagjaldið á hverju
ári allt námið sitt, þó gjöldin
hækki fyrir nýja nemendur.
Nemendur sem voru í Tækni-
háskólanum, sem sameinaðist HR
árið 2005, borga einnig mun lægri
skólagjöld eða tæpar fimmtíu
þúsund krónur á ári. Þó eru fáir
slíkir nemendur eftir í skólanum
og fækkar ört, segir Jóhann. - sþs
Grunnnámið hefur hækkað hlutfallslega mest í HR, kostar nú 274 þúsund á ári:
Skólagjöld hækkað um 40 prósent
100
200
300
400
500
600
700
800
2005 2006 2007 2008
Grunnám
Meistaranám – Aðrar deildir
Meistaranám – Viðskiptadeild
Í þúsundum króna
SKÓLAGJÖLD Í HR
UTANRÍKISMÁL Íslensk stjórnvöld
hafa ákveðið að viðurkenna
sjálfstæði Kosovo. Endanleg
ákvörðun um dagsetningu liggur
þó ekki fyrir.
Í yfirlýsingu frá utanríkis-
ráðuneytinu er tekið fram að
„vegna hinna sérstöku aðstæðna
í Kosovo“ muni „viðurkenning á
sjálfstæði þess ekki hafa
fordæmisgildi“.
Kosovohérað lýsti 17. febrúar
yfir stofnun sjálfstæðs ríkis. Nú
þegar hafa mörg ríki á Vestur-
löndum viðurkennt nýja ríkið,
þar á meðal Bandaríkin og
helstu ríki Evrópusambandsins.
- gb
Íslensk stjórnvöld:
Hyggjast viður-
kenna Kosovo
Á að breyta reglum um skipan
dómara?
Já 81%
Nei 19%
SPURNING DAGSINS Í DAG?
Á danska ríkisstjórnin að
biðjast afsökunar á Múhameðs-
teikningunum?
KJÖRKASSINN