Fréttablaðið - 06.03.2008, Page 6
6 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
Ferðaskrifstofa
Playa Flamingo 20. maí.
Flug og gisting í 7 nætur m
eð íslenskri fararstjórn.
Á mann m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára.
Ef 2 ferðast: 47.535 kr.
STJÓRNSÝSLA „Forstöðumenn ríkis-
stofnana gegna mikilvægum störf-
um og eðlilegt að tekið sé tillit til
þess í eftirlaunum,“ segir Haukur
Ingibergsson, formaður Félags
forstöðumanna ríkisstofnana.
Stjórn félagsins vill að félagsmenn
þess njóti sambærilegs eftirlauna-
réttar og forseti Íslands, ráðherr-
ar, alþingismenn og hæstaréttar-
dómarar.
Fyrir Alþingi liggur frumvarp
Valgerðar Bjarnadóttur, Samfylk-
ingunni, sem kveður á um afnám
sérréttinda ráðherra, þingmanna
og hæstaréttardómara í lífeyris-
málum en þau
fengust með
lögum sem sett
voru í desember
2003 og vöktu ólgu
í samfélaginu.
Réttindi þessara
stétta og forseta
eru betri og rýmri
en annarra starfs-
manna ríkisins.
Í umsögn Félags
forstöðumanna
ríkisstofnana um frumvarp Val-
gerðar er ekki tekin afstaða til efnis
þess en lögð áhersla á að forstöðu-
menn njóti sambærislegs eftir-
launaréttar og þeir hópar sem frum-
varpið tekur til.
Haukur Ingibergsson segir starf-
semi ríkisstofnana umfangsmikla
og ábyrgð forstöðumanna mikla;
um 22 þúsund starfsmenn gegni 17-
18 þúsund ársverkum og reksturinn
nemi háum fjárhæðum. Forstöðu-
menn ríkisstofnana eru um 200.
Bandalag starfsmanna ríkis og
bæja fagnar frumvarpi Valgerðar
og telur að umræddir hópar eigi
ekki að njóta sérstakra forréttinda
í lífeyriskjörum umfram annað
launafólk.
Alþýðusamband Íslands styður
líka málið og hvetur Alþingi til að
hefja heildarendurskoðun á lífeyr-
ismálum þjóðarinnar.
Í sinni umsögn segist stjórn
Prestafélags Íslands styðja frum-
varpið heilshugar og telja eðlilegt
að um þessa hópa æðstu embættis-
manna gildi sömu reglur um líf-
eyrisréttindi og hjá ríkisstarfs-
mönnum almennt. Kjararáð,
Hagstofan og Viðskiptaráð hafa
einnig sent allsherjarnefnd við-
brögð við ósk um umsögn en gera
ekki athugasemdir, ætla ekki að
tjá sig eða telja frumvarpið ekki
tengjast verksviði sínu.
Nefndin óskaði umsagna ellefu
aðila til viðbótar, þar á meðal
Bandalags háskólamanna, Dóm-
arafélags Íslands, Landssamtaka
lífeyrissjóða, Sambands sveitarfé-
laga og Þjóðarhreyfingarinnar en
hefur ekki fengið viðbrögð.
bjorn@frettabladid.is
Vilja sömu eftirlaun
og þingmenn njóta
Forstöðumenn ríkisstofnana vilja sama eftirlaunarétt og forsetinn, ráðherrar,
alþingismenn og hæstaréttardómarar. BSRB, ASÍ og prestar vilja samræma eft-
irlaunarétt æðstu embættismanna því sem almennir ríkisstarfsmenn njóta.
HAUKUR INGI-
BERGSSON
MÓTMÆLT Fjölmenni var við mótmæli Alþýðusambandsins á Austurvelli í desember
2003 þegar eftirlaunafrumvarpið var til meðferðar á Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Hefur þú hlaðið höfundarrétt-
arvörðu efni niður af netinu á
síðustu tólf mánuðum án þess
að greiða fyrir það?
Já 31,4%
Nei 68,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Vilt þú að eitt eða fleiri álver
rísi hér á landi fyrir árslok
2012?
Segðu þína skoðun á visir.is
UTANRÍKISMÁL Utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, segist ekki átta sig á mögulegum ávinn-
ingi af því að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael.
Aldrei sé skynsamlegt að slíta öll tengsl. Hún telji þó
atburðina í Palestínu óafsakanlega hóprefsingu, sem
hvorki standist lög né reglur. „En það væri nær að
alþjóðasamfélagið beitti sér sem heild í gegnum
stofnanir eins og Öryggisráðið. Það verður að
fullreyna þá möguleika,“ segir hún.
Spurð hvort þetta sé ekki nú þegar fullreynt, segir
ráðherra Annapolis-friðarferlið nýhafið og að ekki
megi afskrifa það, þótt illa horfi til árangurs. Ábyrgð
Bandaríkjanna sé þar mikil.
Íslendingar hafi aldrei slitið stjórnmálasambandi af
ástæðum sem þessum og séu ekki beinir samningsað-
ilar í Palestínu.
„En það skiptir máli að við látum rödd okkar
heyrast. Ég er nú þegar byrjuð að beita þessum
tækjum sem við höfum,“ segir hún og minnir á bréf
sem hún sendi utanríkisráðherra Ísraels, Tzipi Livni,
á föstudag. Einnig hafi hún átt við Livni fjölmörg sam-
töl í síma um þetta. - kóþ
Utanríkisráðherra vill halda áfram að beita hefðbundnum leiðum:
Slítur ekki sambandi við Ísrael
STJÓRNMÁLASAMBANDI VAR
SLITIÐ Í ÞORSKASTRÍÐINU 1976
Á heimasíðu utanríkisráðuneytisins segir að slit stjórn-
málasambands séu einkum viðhöfð, ef ríki telji að fram-
ferði annars ríkis valdi sér beinu tjóni. En stundum séu
stjórnmálasambandsslit framkvæmd sem mótmæli gegn
stefnu annars ríkis í einhverju málefni á alþjóðasviði.
Í þorskastríðnu, í febrúar árið 1976, slitu íslensk
stjórnvöld stjórnmálasambandi við breska heimsveldið.
Fastaráð NATO fundaði um málið, enda ekki lítið mál að
tvær aðildarþjóðir bandalagsins ættu ekki í stjórnmála-
sambandi. Ráðherrar þjóðanna hittust í Osló í maí 1976
og 1. júní var samkomulagi náð og stjórnmálasambandi
komið á að nýju. Heimild: Utanríkisráðuneytið og nat.is
MÓTMÆLI Á LÆKJARTORGI Í gær safnaðist fjöldi manns
saman á Lækjartorgi og mótmælti hernaði og hernámi Ísraela.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á
Vestfjörðum lagði hald á um 400
grömm af hassi í húsleit sem
framkvæmd var í heimahúsi á
Ísafirði í fyrradag. Húsráðandi,
karlmaður á þrítugsaldri, var
handtekinn í tengslum við
rannsókn málsins. Maðurinn var í
haldi lögreglunnar þar til í gær en
þá var honum sleppt. Hann hefur
áður komið við sögu lögreglu
vegna fíkniefnamála. Af magninu
að ráða má ætla að efnið hafi verið
ætlað til sölu og dreifingar á
norðanverðum Vestfjörðum. Þetta
er mesta magn fíkniefna sem lagt
hefur verið hald á í einu lagi á
Vestfjörðum til þessa. - jss
Lögreglan á Vestfjörðum:
Tók 400 grömm
af hassi
KJÖRKASSINN
DANMÖRK Danska dagblaðið Ekstra
Bladet sló því upp í gær að And-
ers Fogh Rasmussen forsætisráð-
herra myndi innan árs segja skilið
við stjórnmál í heimalandinu og
taka fyrstur manna við embætti
forseta leiðtogaráðs Evrópusam-
bandsins, en það embætti verður
til er hinn nýi Lissabonsáttmáli
ESB gengur í gildi. Skipað verður
í það til tveggja og hálfs árs í
senn.
Að sögn blaðsins nýtur Fogh
svo mikilla vinsælda í mörgum
höfuðborgum ESB-landa, að
„sterk öfl“ vinna hart að því hann
veljist til að gegna embættinu.
Helsti keppinautur Foghs um
þetta áhrifamikla embætti er Tony
Blair, fyrrverandi forsætisráð-
herra Bretlands, en að sögn Ekstra
Bladet á hann minni möguleika en
Fogh þar sem ráðamenn í Berlín
vilji beita neitunarvaldi gegn
Blair. Fastur pistlahöfundur Polit-
iken.dk lét þessa keppni milli Fogh
og Blair verða sér tilefni til að
álykta að „Bush 2“ og „Bush 3“ bit-
ust nú um að verða forseti Evr-
ópu.
Gangi það eftir að Fogh setjist í
forsetastól hjá ESB mun Lars
Lökke Rasmussen, núverandi
fjármálaráðherra, taka við for-
ystu dönsku ríkisstjórnarinnar.
Hann yrði þar með þriðji Rasm-
usseninn í röð sem gegnir því
embætti, eftir Anders Fogh og
Poul Nyrup. - aa
KEPPINAUTAR Anders Fogh Rasmussen
og Tony Blair eru sagðir eiga mesta
möguleika á að verða fyrsti forseti leið-
togaráðs ESB. NORDICPHOTOS/AFP
Samkvæmt heimildum Ekstra Bladet styttist í forsætisráðherraskipti í Danmörku:
Fogh sagður á leið í forsæti ESB