Fréttablaðið - 06.03.2008, Síða 8
6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Mér finnst
þetta nú fyrst og fremst vera pólit-
ískt moldviðri. Borgin fylgdist
nákvæmlega með öllum þáttum
þessa verkefnis og það ætti ekki
að koma neinum á óvart hvernig
það er,“ sagði Eggert Magnússon,
fyrrverandi formaður Knatt-
spyrnusambands Íslands (KSÍ) og
byggingarnefndar um stúkubygg-
ingu við Laugardalsvöll.
Nefndin fundaði tvisvar sinnum
frá því samningur um bygginguna
var undirritaður 15. september
2005; fyrst í nóvember sama ár og
svo í apríl 2006.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður borgarráðs, hefur beðið
endurskoðendur borgarinnar að
fara yfir öll samskipti borgaryfir-
valda og KSÍ vegna framkvæmd-
anna í Laugardal. Lokauppgjör
vegna framkvæmdanna er rúm-
lega 1.600 milljónir króna en hlut-
ur borgarinnar þar af er um 400
milljónir.
Upphaflegar áætlanir gerðu ráð
fyrir kostnaði upp á um 1.100 millj-
ónir króna en þær voru gallaðar,
að sögn Geirs Þorsteinssonar, for-
manns KSÍ. „Í þeirri áætlun var
töluverð skekkja þar sem virðis-
aukaskattinn vantaði inn í áætlun-
ina. Þetta var upphafið að vand-
ræðunum ef svo má segja. Síðan
kom í ljós að áætlunin var ekki í
takt við markaðsaðstæður þar sem
tilboð í útboðinu voru miklu hærri
í allt verkið en áætlanir höfðu gert
ráð fyrir,“ sagði Geir. „Þetta er
ekkert nýtt. Þetta hefur legið fyrir
frá því framkvæmdirnar hófust.“
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn,
átti sæti í byggingarnefndinni
fyrir hönd borgarinnar þegar
framkvæmdirnar fóru af stað.
Þegar hann varð borgarstjóri í okt-
óber í fyrra fékk hann fréttir af
því að lokauppgjör vegna fram-
kvæmdanna væri á leiðinni. „Ég
fékk spurnir af því fljótlega eftir
að ég varð borgarstjóri að viðræð-
ur væru í gangi um lokauppgjör á
þessum málum. Á síðasta fundi
sem ég sat í byggingarnefndinni
var gert ráð fyrir því að verkið
væri á áætlun en síðan virðast
hlutirnir hafa breyst.“
Sverrir Þór Kristjánsson,
umsjónarmaður verksins fyrir
hönd verktakans Ístaks, segir
bygginguna hafa gengið vel í alla
staði og ekkert óeðlilegt hafi komið
upp. Hann vildi ekki tjá sig um
ástæður kostnaðaraukningar við
framkvæmdirnar.
magnush@frettabladid.is
Framúrkeyrsla vegna
gallaðra áætlana
Í upphaflegri kostnaðaráætlun vegna stúkubyggingar í Laugardal gleymdist
að gera ráð fyrir virðisaukaskatti. Áætlunin ekki í takt við markaðsaðstæður.
Pólitískt moldviðri, segir Eggert Magnússon, fyrrverandi formaður KSÍ.
STÚKAN Á LAUGARDALSVELLI Bygging stúkunnar á Laugardalsvelli hefur verið dýrari
en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir. Samkvæmt lokauppgjöri er kostnaðurinn
rúmlega 1.600 milljónir króna og framúrkeyrslan frá upphaflegu áætlunum er því um
sex hundruð milljónir. Fljótlega var ljóst að kostnaðurinn færi töluvert fram úr upp-
haflegum kostnaðaráætlunum þar sem áætlanirnar voru óraunhæfar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Samningur um stúkubyggingu á
Laugardalsvelli var undirritaður 15.
september 2005.
Í þriðju grein samningsins kemur
fram að KSÍ sjái um hönnun, útboð,
framkvæmdir og fjármögnun við
nýbyggingu við eldri áhorfenda-
stúkuna.
Framkvæmdin sjálf sem samið var
um snýst í meginatriðum um fimm
þætti.
■ Nýbygging við starfsemi KSÍ
■ Stækkun eldri stúku vestan Laug-
ardalsvallar til norðurs og suðurs
fyrir allt að 2.600 manns.
■ Ný sæti framan við eldri stúku
fyrir allt að 470 manns.
■ Endurbygging á þaki eldri stúku
vestan Laugardalsvallar.
■ Breyting og lagfæring á eldri
stúku, inngangur og snyrtingar og
fleira.
Reykjavíkurborg átti að greiða 398
milljónir, ríkissjóður 200 milljónir og
Knattspyrnusamband Íslands 440
milljónir. Samtals 1.038 milljónir.
Við bætast svo þrjátíu milljónir
vegna framkvæmda við lóð og bif-
reiðastæði. Reykjavíkurborg greiðir
það. Upphæðirnar eru vísitölu-
tengdar samkvæmt samningnum
og geta því sveiflast lítillega þegar
kemur til greiðslu.
SAMNINGSATRIÐI BORGAR OG KSÍ
NORÐUR-ÍRLAND, AP Ian Paisley,
hinn litríki roskni leiðtogi sam-
bandssinna sem fer fyrir sam-
stjórn sambands- og lýðveldis-
sinna á Norður-Írlandi, boðaði á
þriðjudag að hann hygðist fljót-
lega draga sig í hlé af heilsufars-
ástæðum. Afsögn hans hefur vakið
ugg um að eftirmaður hans kunni
að verða minna áhugasamur um –
eða minna fær um – að stjórna í
félagi við kaþólska.
Yfirgnæfandi líkur eru taldar á
að arftakinn verði Peter Robinson,
fjármálaráðherra í samstjórninni,
sem í þrjá áratugi hefur þjónað
sem staðgengill Paisleys í Lýðræð-
isflokki sambandssinna, DUU.
Ekki þykir vafi leika á því að
Robinson sé trúr friðarsamkomu-
laginu sem kennt er við föstudag-
inn langa, enda var hann lengi
aðalsamningamaður DUU í friðar-
viðræðunum og sem slíkur fékk
hann ítrekað Paisley til að brjóta
odd af oflæti sínu og taka þátt í
málamiðlunum. En sumir norður-
írskir stjórnmálamenn óttast að
hvers kyns mannabreytingar í
brúnni muni óhjákvæmilega raska
jafnvæginu í stjórninni þar sem
margir sambandssinnar séu enn
mótfallnir því yfirleitt að deila
völdum með kaþólskum. - aa
TEKINN AÐ RESKJAST Ian Paisley mætir til
vinnu í Stormont-kastala í Belfast í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ian Paisley, sem fer fyrir samstjórninni á Norður-Írlandi, hyggst draga sig í hlé:
Rask á viðkvæmu jafnvægi
SVEITARSTJÓRNARMÁL Borgarfulltrúar tókust harka-
lega á um málefni Reykjavík Energy Invest, REI, á
borgarstjórnarfundi fram til klukkan tvö aðfaranótt
miðvikudags.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, sagði Svandísi Svavarsdóttur, Vinstri
grænum, og Dag B. Eggertsson og Sigrúnu Elsu
Smáradóttur, Samfylkingunni, hafa komið með bein-
um hætti að kaupréttarsamningum sem útvaldir
starfsmenn REI áttu að fá. „Það dregur óneitanlega
úr trúverðugleika skýrslu starfshóps um málefni
REI, og þá sérstaklega kaflanum um þessa kauprétt-
arsamninga.“
Júlíus sagði uppröðun starfsfólks á kaupréttarlista
hafa átt sér stað á stjórnarfundi Orkuveitu Reykja-
víkur 3. október og þann fund hefðu Svandís og Sig-
rún Elsa setið.
Dagur B. Eggertsson sagði málflutning Júlíusar
Vífils með ólíkindum og rangan í öllum meginatrið-
um. „Júlíus er að segja ósatt. Hann segir að ég og
Svandís höfum samþykkt þessa kaupréttarsamninga
í stjórn Orkuveitunnar. Í fyrsta lagi kom þetta fram í
stjórn REI og var dregið til baka nokkrum dögum
síðar. Ég var heldur ekki á stjórnarfundi Orkuveit-
unnar 3. október, þannig að þetta er bara bull í Júlíusi
Vífli.“ - mh
Borgarstjórnarfundur stóð til klukkan þrjú aðfaranótt miðvikudags:
Tókust á um REI fram á nótt
REI ENN DEILUEFNI Í BORGINNI
Kjörnir fulltrúar í Reykjavík hafa nú tekist á um málefni
Reykjavík Energy Invest, útrásararm Orkuveitu Reykja-
víkur, nánast sleitulaust frá því í byrjun október. Tvisvar
sinnum hefur verið skipt um meirihluta í borginni
frá því málið kom upp. Ekki sér fyrir endann á rifrildi
fulltrúanna fimmtán.