Fréttablaðið - 06.03.2008, Qupperneq 15
15 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
SKANDINAVÍA Veturinn hefur verið óvenjuheitur
í héruðunum nyrst í Skandinavíu og Finnlandi.
Finnska dagblaðið Helsingin Sanomat segir að í
flestum héruðum Finnlands hafi veturinn verið
heitastur frá því mælingar hófust og einni
gráðu heitari en metveturinn 1924-1925.
Sé miðað við tímabilið 1971-2000 sé veturinn
nú fjórum til sjö gráðum heitari. Hitastig hefur
einnig verið óvenjuhátt nyrst í Noregi og
Svíþjóð. Á sama tíma hefur verið afar kalt á
vesturhluta Grænlands.
Veturinn hefur verið aðeins yfir meðallagi á
Íslandi, að sögn Einars Sveinbjörnssonar
veðurfræðings. Desember var einni og hálfri
gráðu hlýrri en meðaltalið 1961-1990, janúar
var nærri meðallagi en 0,3 gráðu yfir meðaltali
í Reykjavík og í febrúar var hitastigið lítið eitt
undir meðallagi.
„Að samanlögðu er veturinn aðeins heitari en
í meðallagi og munar þar mestu um hlýjan
desember en bæði janúar og febrúar eru í
járnum,“ segir hann. „Ekki hefur heldur verið
neitt sérlega snjóþungt en þó hefur verið meiri
snjór núna en undanfarna vetur. Þeir þóttu
mjög snjóléttir.“
Einar rifjar upp að desember hafi verið
óvenjulegur veðurfarslega séð. Meðan
lægðagangurinn hafi verið hvað mestur hér við
land hafi sterkir vestlægir vindar náð að
berast yfir fjallgarðana í norðurhluta Noregs
og inn á slétturnar og þannig haldið kuldunum
frá. Vormánuðirnir geti hins vegar verið kaldir
í Skandinavíu. Ef kalt loft streymir frá
Íshafinu „rétta leið yfir Skandinvíu“ kólnar þar
verulega.
Vetrinum lýkur formlega 1. mars í Skandin-
avíu en marsmánuður telst til vetrarmánaða
hér á landi. - ghs
Veturinn hefur verið óvenjuheitur í Skandinavíu og Finnlandi:
Örlítið heitari hér á landi
AÐEINS HEITARI „Að samanlögðu
er veturinn aðeins heitari en í með-
allagi,“ segir Einar Sveinbjörnsson
veðurfræðingur.
EKKERT SÉRLEGA SNJÓÞUNGT Ekki
hefur verið neitt sérlega snjóþungt
hér á landi, að sögn Einars Svein-
björnssonar veðurfræðings, en þó
óvenjumikill snjór í ár miðað við
síðustu vetur.
HAFNARFJÖRÐUR Hafnfirðingar náðu
þeim áfanga að verða 25 þúsund
talsins á hlaupársdag 29. febrúar
og er Kristófer Máni Sveinsson 25
þúsundasti Hafnfirðingurinn.
Kristófer Máni er eins og hálfs árs
og er nýfluttur úr Garðabæ í Hafn-
arfjörð.
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri
afhenti Kristófer Mána og föður
hans, Sveini Jónassyni, sérstakt
heiðursskjal í tilefni þessa merka
áfanga ásamt góðum gjöfum en
bæjarbúum var nýverið boðið upp
á kaffi og kökur í þjónustuveri
Hafnarfjarðarbæjar í ráðhúsi bæj-
arins við Strandgötu.
Hafnfirðingum hefur fjölgað um
tæplega þrjátíu prósent á síðustu
átta árum en árið 2000 voru þeir
19.640 talsins. Mest hefur fjölgunin
verið síðustu tvö árin eða um fimm
til sex prósent. Það jafngildir því
að íbúum fjölgi um liðlega hundrað
í hverjum mánuði. Til samanburðar
má nefna að íbúum á höfuðborgar-
svæðinu öllu fjölgaði um tólf pró-
sent á árunum 2000 til 2007 og í
Kópavogi um rúman fimmtung.
Hafnarfjarðarkaupstaður fagnar
aldarafmæli sínu á þessu ári og
hafa framkvæmdir aldrei verið
meiri en þær nema nú um 6,7 millj-
örðum króna. Eftirspurn eftir
atvinnu- og íbúðalóðum hefur verið
mikil undanfarin ár og hefur upp-
bygging nýrra hverfa sett svip sinn
á bæjarlífið, að því er segir í til-
kynningu frá bæjaryfirvöldum.
- ghs
Hafnfirðingum hefur fjölgað um tæpan þriðjung á síðustu átta árum:
Orðnir tuttugu og fimm þúsund talsins
FÉKK GÓÐAR GJAFIR Kristófer Máni
Sveinsson er 25 þúsundasti Hafnfirð-
ingurinn. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri
afhenti honum og föður hans, Sveini
Jónassyni, nýlega heiðursskjal og góðar
gjafir.
HAFNARFJÖRÐUR Óánægja hefur
verið meðal kennara Iðnskólans í
Hafnarfirði með meinta launa-
skerðingu vegna samkomulags
um styttri vinnutíma sem gert
var fyrir nokkrum árum. Málið er
nú í vinnslu hjá Félagi framhalds-
skólakennara, kennurum sjálfum
og fulltrúa skólans.
Jóhannes Einarsson skólameist-
ari segir að fundað hafi verið í
þessari viku og aftur verði
fundað í næstu viku. Hann vonast
til að niðurstaða liggi fyrir
fljótlega. „Vonandi liggur
niðurstaða fljótlega fyrir. Það er
verið að skoða þetta mál frá
ýmsum hliðum,“ segir hann. - ghs
Iðnskólinn í Hafnarfirði:
Launamálið er
enn í vinnslu
SVEITASTJÓRNARMÁL Sveitarstjórn
Skeiða-og Gnúpverjahrepps
samþykkti á fundi sínum 4. mars
að starfsmenn sveitarfélagsins
sem eru í fullu starfi fái 75
þúsund króna álagsgreiðslur
fyrsta apríl næstkomandi. Aðrir
starfsmenn fái greitt í hlutfalli
við starfshlutfall sitt.
Segir á heimasíðu sveitarfé-
lagsins að sveitarstjórn hafi
fylgst með þróun launamála
annarra sveitarfélaga að
undanförnu. Sé ákvörðunin tekin
vegna mikils álags vegna
breytinga hjá stofnunum
sveitarfélagsins og til að
umbuna starfsfólki sem vinnur
hjá sveitarfélaginu. Er það von
sveitarstjórnar að þetta efli enn
frekar starfsanda í stofnunum
sveitarfélagsins.
- ovd
Skeiða- og Gnúpverjahreppur:
Starfsmenn fái
álagsgreiðslur
HEKLA Laugavegi 172–174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
FÆST
MEÐ TDI®
DÍSILVÉL
Passat kostar aðeins frá
2.650.000 kr.
Eða 41.600 kr. á mánuði miðað við gengistryggðan bílasamning til
84 mánaða og 20% útborgun. Árleg hlutfallstala kostnaðar er 6,4%.
Volkswagen Passat skarar fram úr hvernig sem á hann er litið
DÚXAÐI Á
EURO NCAP
PRÓFINU
HLAUT
GULLNA
STÝRIÐ
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
KOLEFNIS-
JAFNAÐUR
Í EITT ÁR
EYÐIR
AÐEINS FRÁ
5,6 l/100 KM
Fáir bílar sameina jafn vel kraft, þægindi og magnaða akstursupplifun og Passat. Og enginn þeirra fæst á
sambærilegu verði. Volkswagen Passat færir þér búnaðinn, plássið og útlitið sem þig hefur alltaf dreymt um.
Allt sem þú þarft að gera er að leggja blaðið frá þér, koma til okkar og prófa þennan frábæra lúxus.
Veldu á milli kraftmikillar
2.0 FSI® 150 ha bensínvél
ar sem er
9,4 sek að skila þér í 100
km eða sparneytinnar 1.9
TDI®
vélar sem eyðir aðeins 5,6
l/100 km í blönduðum ak
stri með
CO2 148 g/km útblæstri
. Heildarverð er aðeins 2.9
90.000 kr.
Einnig færðu með í pakka
num, fjarlægðarskynjara
að framan og aftan, aðko
muljós, hita í
sætum, 16" álfelgur, leður
pakka og regnhlíf með í p
akkanum.
Uppfærðu þinn Passat fy
rir aðeins 340.000 kr.
Das Auto.
ÚTBLÁSTUR
AÐEINS
177 G/KM