Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 23
FIMMTUDAGUR 6. mars 2008 23
Hveitikorn er samsett úr
þremur hlutum, kjarna,
hýði og kími. Í kjarnanum
eru aðallega kolvetni
(sterkja eða mjölvi),
prótein (glúten) og vatn
en í hýði og kími er mest
af trefjum, steinefnum
og bætiefnum. Auk þess
inniheldur kímið svolítið
af mjúkri fitu. Í heilu
hveitikorni eru um það
bil 11,1 prósent prótein,
57 prósent sterkja, 10,4 prósent vatn, 16,9
prósent trefjar, 2 prósent fita og 2,3 prósent
steinefni. Heilmalað hveiti er því ákjósanleg
uppspretta trefjaefna og ýmissa bætiefna.
Hveiti inniheldur mun meira glúten en aðrar
korntegundir sem veldur því að hveiti hefur
mun betri baksturseiginleika en til dæmis,
rúgur, bygg og hafrar. Þegar brauðdeig er
hnoðað myndast loftbólur sem verða til fyrir til-
stuðlan gers. Utan um þessar loftbólur myndast
nokkurs konar glútenhimnur sem
stífna við baksturinn
og halda loftinu
inni þannig að
brauðið verður
svampkennt.
Hveiti er
malað og sigtað
í mismunandi
afurðir áður en
hægt er að nota
það í bakstur. Hægt
er að mala hveitikornið eins og það kemur fyrir,
og kallast það heilmalað hveiti, en algengast er
að sigta hluta af hýði og kími frá við mölunina.
Hveitið verður léttara í sér og baksturseiginleik-
ar þess batna eftir því sem meira ar hreinsað
frá af hýði og kími. Í hvítu hveiti hafa um 30
prósent af korninu verið sigtuð frá, aðallega
hýði og kím, en þá er eftir
prótein- og sterkju-
ríkasti hlutinn.
Venjulegt heil-
hveiti er aftur
á móti um
80-90 pró-
sent af heila
korninu.
Hýði og kím
eru líka oft
skilin sérstaklega frá og notuð til íblönd-
unar í bökunarvörur til að auka trefjainnihald
þeirra. Það sem af gengur við hveitimölun er
notað í skepnufóður þannig að enginn hluti
kornsins fer til spillis. Baksturseiginleikar hveitis
ráðast að miklu leyti af próteininnihaldi þess.
Hveiti þarf að hafa hátt próteininnihald til að
það henti í brauðbakstur en hveiti með minna
próteininnihaldi hentar betur í kökur og enn
minna í kex. Til venjulegra heimilisnota er
einfaldast að nota hveiti með miðlungsmiklu
próteininnihaldi eins og til dæmis venjulegt
Kornaxhveiti.
Hveiti er best að geyma á þurrum, dimmum
stað þar sem ekki er of heitt. Mikilvægt er að
geyma það í vel lokuðu íláti svo það taki ekki í
sig raka eða bragð af öðrum matvælum.
Hveiti, eins og aðrar kornvörur, hefur nokkuð
langt geymsluþol en geymist þó ekki enda-
laust. Fitan í hveitinu er mjúk og þránar með
tímanum. Heilhveiti geymist skemur en fínmal-
að hveiti vegna þess að í því er meira af fitu.
mni.is
MATUR & NÆRING RAGNHEIÐUR HÉÐINSDÓTTIR MATVÆLAFRÆÐINGUR
Heilmalað hveiti ákjósanleg uppspretta trefjaefna
Rúmlega níu þúsund fyrirspurnir bárust
Leiðbeininga- og kvörtunarþjónustu Neyt-
endasamtakanna síðastliðið ár og er það 24
prósenta aukning frá fyrra ári. Flestar eru
fyrirspurnirnar vegna raftækja og ferða-
laga.
Ástæða þess að heildarfjöldi fyrirspurna
jókst á árinu er rakin til þess að fólk sé að
verða æ meðvitaðra um rétt sinn. „Vakningin
sem átti sér stað meðal fólks vegna virðis-
aukaskattslækkunarinnar hafði sín áhrif en
svo eru samtökin alltaf að verða sýnilegri
líka,“ segir Hildigunnur Hafsteinsdóttir,
stjórnandi Leiðbeininga- og kvörtunarþjón-
ustu Neytendasamtakanna. Hún segir enn
fremur að fólk sé einfaldlega orðið duglegra
að láta heyra í sér og ákveðin straumhvörf
hafi orðið í fyrra.
Bróðurpartur erindanna er einfaldar
fyrirspurnir um rétt neytenda. Oftast komu
fyrirspurnir vegna kaupa á raftækjum eða
ferðalögum, en einnig var mikið spurt um
verðlag og auglýsingar.
Voru fyrirspurnir vegna þess síðastnefnda
um 500, sem er sjötíu prósentum meira en á
síðasta ári. Orsökin er talin vera aukin
verðlagsvitund vegna lækkunar virðisauka-
skatts á matvælum fyrir ári.
Kvörtunum fækkaði nokkuð á árinu og
voru þær 153 en lækkunin stafar af breytt-
um skráningarreglum. Í kvörtunarmálum
hafa Neytendasamtökin milligöngu milli
neytanda og seljanda til að komast að
málamiðlun sem allir eru sáttir við. Flestar
voru kvartanirnar vegna pósts og fjarskipta.
Athygli vekur að fyrirtæki nota sér
Neytendasamtökin í auknum mæli og leituðu
540 fyrirtæki til samtakanna en í fyrra voru
þau 462. Hildigunnur sagði að þetta væru
fyrirtæki sem vildu fara að lögum og væru
að spyrja um rétt neytenda. Væri þetta
yfirleitt í tengslum við afgreiðsluskilmála
fyrirtækjanna, útsölur og almenn deilumál.
Oft væri neytandi kominn til þeirra með
kvörtun og fyrirtækin væru að kanna hver
réttur hans væri. Sagði hún það vera mjög
jákvætt að fyrirtæki sem og einstaklingar
bæru mikið traust til samtakanna.
Níu þúsund fyrirspurnir bárust Leiðbeininga- og kvörtunarþjónustu Neytendasamtakanna á síðasta ári:
Spurt um rétt vegna raftækja og ferðalaga
Kaupþing hefur afturkallað nýja
kreditkortaskilmála bankans sem taka
áttu gildi 10. mars. Breytingarnar lutu
að því að bankinn áskildi sér rétt til
að safna upplýsingum um hvernig
kortin voru notuð, til að bankinn og
samstarfsaðilar gætu boðið viðskipta-
vinum sérvalin tilboð. Í tilkynningu
frá Kaupþingi kemur fram að nýir
skilmálar hafi valdið misskilningi og
óánægju og hafi því verið afturkallað-
ir. Kaupþing, sem útgefandi kortanna,
vilji hins vegar bera ábyrgð gagnvart
sínum viðskiptavinum á þeim skilmál-
um sem í gildi séu.
Í lok febrúar sendu Neytendasam-
tökin erindi til Persónuverndar vegna
skilmálanna, þar sem farið var fram á
að breytingarnar á skilmálunum yrðu
skoðaðar.
■ Skilmálar afturkallaðir:
Ollu misskilningi og
óánægju
HILDIGUNNUR HAFSTEINSDÓTTIR Segir fólk orðið
duglegra við að láta í sér heyra.
Asics Kayano 13
hlaupaskór
Verð: 18.300 kr.
Opnunartilboð: 12.990 kr.
Heelys hjólaskór
Verð: 9.990 kr.
Opnunartilboð: 7.990kr.
silega verslun í Holtagörðum!
Stórglæsileg
North Face deild
Opnunartilboð:
20% afsláttur
af öllum
North Face vörum
Jamis barnahjól
Árgerð 2008
Opnunartilboð:
20%afsláttur
– Byltingarkenndir fótboltaskór
sem allir knattspyrnumenn verða
að prófa – kynning á laugardag.
Adidas hlaupaskór og footscan greining – skokkarar
vilja ekki missa af þessu – kynning á sunnudag.