Fréttablaðið - 06.03.2008, Qupperneq 24
24 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR FIM
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 404
4.850 +0,69% Velta: 6.526 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 8,00 -0,62% ... Bakkavör
40,50 +1,12% ... Eimskipafélagið 29,10 +0,35% ... Exista 11,95
+0,59% ... FL Group 9,16 -0,22% ... Glitnir 17,00 +0,59% ... Icelandair
24,90 -0,40% ... Kaupþing 735,00 +1,10% ... Landsbankinn 26,50
+1,34% ... Marel 88,50 -1,45% ... SPRON 5,29 +0,57% ... Straumur-
Burðarás 11,17 -1,15% ... Teymi 5,04 +1,00% ... Össur 91,00 -1,19%
MESTA HÆKKUN
LANDSBANKINN +1,34%
BAKKAVÖR +1,12%
KAUPÞING +1,10%
MESTA LÆKKUN
MAREL -1,45%
ÖSSUR -1,19%
STRAUMUR-B.ÁS -1,15%
Hagnaður Royal Unibrew í Danmörku nam 155
milljónum danskra króna eftir skatt í fyrra, eða
tæplega 2,1 milljarði króna, samkvæmt nýbirtu
uppgjöri. FL Group á 25,6 prósenta hlut í
félaginu.
Fram kemur að tekjur félagsins hafi aukist um
13 prósent milli ára, en á sama tíma dróst
hagnaður saman um þriðjung.
Stjórn Royal Unibrew leggur til fyrir aðalfund
arðgreiðslu upp á 10 danskar krónur á hlut, eða
heildararð upp á 59 milljónir dankra króna. Það
jafngildir tæplega 797 milljónum íslenskra
króna, sem greiddar verða út 6. maí næstkom-
andi. Í hlut FL Group koma því væntanlega um
204 milljónir króna. - óká
FRAMLEIÐSLAN Royal Unibrew framleiðir meðal annars
Faxe-bjór.
Hagnaður minnkar
um þriðjung milli ára
FL Group fær 204 milljónir í arð frá Royal Unibrew.
Hagnaður dróst saman um 60
prósent milli ára hjá Sparisjóðn-
um í Keflavík (SpKef) samkvæmt
nýbirtu uppgjöri. Eftir skatta
nam hagnaður sjóðsins árið 2007
tæplega 1,9 milljörðum króna, en
var 4,8 milljarðar árið áður.
Mikill viðsnúningur varð í
rekstri sjóðsins á seinni hluta
ársins, en fyrstu sex mánuðina
hafði verið methagnaður í
rekstrinum upp á rúma 4,6
milljarða króna, en árið endaði
sem fyrr segir tæplega 1,9
milljörðum.
Geirmundur Kristinsson,
sparisjóðsstjóri SpKef, segir
afkomu ársins viðunandi miðað
við erfiðar markaðsaðstæður, en
því sé ekki að neita að töluvert
tap hafi verið á seinni hluta
ársins. „Við eigum það stóra stöðu
í Exista að það hafði mikil áhrif
eftir að markaðir hrundu,“ segir
hann. Eignin var færð á markaðs-
virði í hálfsársuppgjöri. „Þetta
truflar auðvitað eitthvað en
horfir öðruvísi við hjá okkur sem
á sínum tíma stofnuðum félagið
og áttum. Þá hét þetta Scandin-
avian Holding, varð síðan Meiður
og svo Exista. Út af fyrir sig
höfum við bara notað eignarhlut-
inn sem við fengum út úr
Kaupþingi á sínum tíma, en
höfum ekki verið að fjárfesta
neitt.“
Geirmundur segir stöðu
sparisjóðsins góða. „CAD-hlutfall
sjóðsins er fyrir 20 prósent,“
segir hann og kveður lausafjár-
stöðu sjóðsins líka góða og
fjármögnunarþörf ekki mikla.
„Við höfum engar áhyggur.
Ástandið í fjármálaheiminum er
vitanlega ekki gott, en kemur
verr niður á mörgum öðrum en
okkur.“
Fram kemur í ársreikningi
SpKef að stjórn sjóðsins leggi til
að greiddur verði 25 prósenta
arður til stofnfjáreigenda af
endurmetnu stofnfé sjóðsins.
Stofnféð nemur tæpum 13,6
milljörðum króna. Arður til
stofnfjáreigendanna 1.626 næmi
því um 3,4 milljörðum króna.
Aðalfundur SpKef verður haldinn
11. mars. - óká
SpKef tapar á seinni hluta ársins
GEIRMUNDUR
KRISTINSSON
Vinsæll Skífukóngur
Eins og kunnugt er hafnaði breskur dómsstóll
frávísunarkröfu Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar
í meiðyrðamáli hans og Jóns Ólafssonar á þriðju-
dag. Jón höfðaði mál gegn Hannesi árið 2004 en
Hannes hafði gefið í skyn í ræðu og á heimasíðu
sinni að Jón hefði efnast á ólöglegan hátt. Var hann
í kjölfarið dæmdur til að greiða Jóni átta milljónir
króna í skaðabætur auk kostnaðar og vaxta. Áhugi
fólks hefur greinilega
vaknað á Jóni síðustu
misserin en heyrst hefur
að ævisaga hans frá árinu
2005 sé einkar vinsæl
á bókamarkaðnum í
Perlunni um þessar
mundir. Bókin er á
tæpar 700 krónur,
sem er frekar lítið
fyrir 500 blaðsíðna
doðrant.
Toppmenn í vatninu
Jón hefur slegið í gegn á fleiri stöðum en á bóka-
markaðnum í Perlunni. Vatnsfyrirtækið Icelandic
Water Holdings, sem Jón og Kristján sonur hans eiga
að mestu og stýra og selur margverðlaunað átappað
vatn úr Ölfusinu í flöskum undir merkjum Icelandic
Glacial hefur verið á rjúkandi ferð upp á síðkastið.
Fyrirtækið hefur fengið heilmikla athygli víða um
heim, nú síðast á Óskarsverðlaunahátíðinni en þar
svöluðu heimsþekktar en þorstlátar kvikmynda-
stjörnur sér á vatni feðganna úr Ölfusinu. Svo virðist
sem hrakspár um efnahagssamdrátt hafi ekki ratað
inn fyrir dyr Icelandic Water Holdings því fyrirtækið
hefur fjölgað fólki á sama tíma og aðrir standa í upp-
sögnum. Á meðal nýráðinna starfsmanna eru tveir
stórjaxlar úr bandarískum drykkjavörugeira. Þeir eru
Daniel Stepper, frá Coke, og James Harris, sem áður
var einn af markaðsstjórum Fiji Waters, helsta keppi-
nauti Icelandic Glacial vestanhafs. Munu þeir eiga að
hjálpa til við stóraukna markaðshlutdeild úti í hinum
stóra og harða heimi vatnsbransans.
Peningaskápurinn ...
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
U
TI
4
12
62
0
2.
20
08
Komið á frábæra opn
Höfum opnað nýja og
stórglæsilega verslun
í Holtagörðum.
Fjöldi opnunartilboða,
vörukynningar frá Adidas,
Nike og Asics.
Kristall Plús að drekka
og blöðrur fyrir börnin.
Opið:
Fim. 11-21
Fös. 11-18
Lau. 10-18
Sun. 13-18
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
MARKAÐSPUNKTAR
FL Group hefur selt 13,3 prósenta
hlut sinn í norska innheimtufyr-
irtækinu Aktiv Kapital. Söluverð-
mætið nemur 6,3 milljörðum
króna. Bókfært tap á fyrsta
fjórðungi vegna sölunnar nemur
400 milljónum, að því er segir í
tilkynningu.
Verðbólga mældist 3,5 prósent
innan aðildarríkja Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD)
í janúar. Verðbólgan var mest í
Tyrklandi, 8,2 prósent. Hún var 5,8
prósent hér á sama tíma en lang-
minnst í Japan, 0,7 prósent.
Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu
nam 635,2 milljónum króna í fyrra
samanborið við 1.458 milljónir í
hitteðfyrra. Þetta er 56 prósenta
samdráttur á milli ára.