Fréttablaðið - 06.03.2008, Síða 40
6. MARS 2008 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● fermingar
Fermingarkyrtillinn hefur bæði
táknræna og praktíska merkingu.
Hvíti liturinn og sniðið minnir á
skírnarkjólinn, enda ferming stað-
festing á skírn.
Klæðnaður fermingarbarna
áður fyrr var hlutlaus sparifatnað-
ur. Stúlkur í einföldum hvítum kjól-
um. Gjarnan með litlum kraga og
krossi utanklæða og með hanska.
Drengir í sínu fínasta pússi. Gjarn-
an í jakkafötum sem síðan voru
notuð við hátíðleg tilefni þangað til
þau urðu of lítil. Klæðnaður barn-
anna fór þó alltaf eftir efnahag for-
eldra. Þau efnameiri voru fínni í
tauinu en börn efnaminni foreldra
þurftu jafnvel að láta sér nægja föt
af öðrum. Þessi munur var mjög
sýnilegur á þriðja
og fjórða ára-
tug síðustu
aldar á Ís-
landi. Ferm-
ingarkyrtlarn-
ir voru því inn-
leiddir í kjölfarið svo
að öll börn gætu staðið
jöfn fyrir Guði á ferming-
ardaginn. Hefðin fyrir ferm-
ingarhönskunum er hins vegar
nokkuð óljós. Hanskana bera að-
eins stúlkur og þeir eru alltaf hvít-
ir. Sumir tengja hanskana við hrein-
leika sem á rætur sínar að rekja frá
kaþólskri fermingarhefð. Enn aðrir
nefna tískustrauma þar sem flestar
konur báru hanska utan húss fram
á sjötta áratuginn. Þess vegna eru
líkur á að
hansk-
arnir
séu sam-
blanda af
trúarlegri hefð og
tískustraumum.
Algengast er að
hanskarnir séu úr
satíni eða heklaðir.
Sumar stúlkur bera jafnvel hanska
frá móður eða ömmu. Fermingar-
hanskarnir hafa fylgt tískustraum-
um eins og fermingarfötin. Þar má
sjá ýmis tilbrigði á borð við blúndur
og grifflur. Sumar eru stúlkurnar
þó hanska lausar eða leyfa sér
nýjar leiðir með hönskum í lit.
Hvítt á kyrtli og hönd
Þegar Jesús stofnaði til kvöld-
máltíðarinnar notaði hann
brauð og vín. Brauðið táknar
líkama Krists og vínið blóð
hans. Saman myndar þetta
eina heild sem er Kristur allur.
Kirkjan hefur allar götur síðan
notað þessi tákn við altaris göngur.
Ekki þarf að neyta nema annars
til að njóta alls þess sem fylgir
sakramentinu og er vel hægt að
láta brauðið duga.
Á síðustu árum hefur vínið ekki
haft sömu merkingu lífs og gleði
og áður og hjá mörgum táknar
það hið gagnstæða. Kristján Valur
Ingólfsson, formaður helgisiða-
nefndar, sem ályktar um hvaða vín
megi nota við guðsþjónustur, segir
að af þeim sökum hafi fyrir mörg-
um árum verið heimilað að nota
áfengisskert vín við altarisgöng-
ur en áfengismagnið í því er ein-
ungis um 0,05 prósent og fæst það
í matvöruverslunum. „Þetta vín er
engu að síður unnið úr ávöxtum
vínviðarins líkt og vínið sem Jesús
notaði,“ segir hann.
Á árum áður framleiddi
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
svokallað messuvín. Það var tölu-
vert sterkara en venjulegt rauð-
vín. Ástæðan fyrir því er sú að í
gamla daga sigldu skip með vín
frá meginlandinu á norðurslóðir
en til að auka geymsluþol vínsins
var það styrkt. Í messuvíninu frá
ÁTVR var sérríi blandað í rauð-
vínið til að viðhalda hefðinni og til
að auka geymsluþol.
„Eftir að framleiðslu messu-
vínsins var hætt hafa flestar kirkj-
ur notað rautt púrtvín en geymslu-
þol þess er mun meira en rauðvíns.
Ég hef líka ráðlagt prestum að
nota sérrí en í því er minna áfeng-
ismagn en í púrtvíni. Flestir nota
þó púrtvín,“ segir Kristján Valur
en bætir því við að það sé yfirleitt
blandað að minnsta kosti til helm-
inga með vatni.
Í kringum fermingar vaknar oft
sú umræða að börnin fái fyrst að
bragða áfengi í altarisgöngunni.
Þó að magnið sé yfirleitt óveru-
legt, þar sem brauðinu er dýft
í kaleikinn en ekki er dreypt á
honum, þá finnst sumum það mót-
sagnakennt.
„Ég hugsa að það væri einfald-
ast að nota einungis óáfengt vín við
altarisgöngur fermingarbarna til
að koma í veg fyrir það að altaris-
sakramentinu og áfengisneyslu sé
blandað saman, því þetta er tvennt
ólíkt. Vínið táknar það sama þó að
það sé óáfengt og því ekkert því til
fyrirstöðu.“ Kristján segir vand-
ann við óáfenga vínið hins vegar
þann að það fæst einungis í stór-
um flöskum. Geymsluþol þess er
lítið og því fer mikið til spillis.
Í Laugarneskirkju hefur lengi
verið boðið upp á óáfengt vín í
öllum guðsþjónustum. „Það getur
verið útilokandi fyrir þá sem glíma
við fíkn að bjóða upp á áfengt vín
og því var þessi ákvörðun tekin,“
segir Hildur Eir Bolladóttir prestur
í Laugarneskirkju. - ve
Messuvín ýmist óáfengt
eða vatnsþynnt púrtvín
Í Laugarneskirkju, þar sem Hildur Eir Bolladóttir þjónar fyrir altari, er einungis boðið upp á óáfengt vín. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kristján Valur Ingólfsson, formaður
helgisiðanefndar, segir vínið tákna það
sama hvort sem það er óáfengt eða ekki.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Íslenskt handverk
Tákn heilagrar þrenningar
til styrktar blindum
7”
Mikið úrval fermingargjafa á elo.is
www.elo.is
Netverslun - Hlíðasmára 13, Kóp - Sími 554-0400
Spilar stafrænar myndir, video og tónlist.
Innbyggt dagatal og klukka, vekjari og 2
hátalarar. Fjarstýring, tekur flest minniskort
Kr.12.
900
Verð á
ður kr
. 22.90
010.000
kr. afs
l
Stafrænn LCD myndarammi með fjarstýringu
Skólavörðustíg 12 & Smiðjuveg 4, Kópavogi
litirogfondur.is