Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 56
6. MARS 2008 FIMMTUDAGUR20 ● fréttablaðið ● fermingar
41.310
KETTLER PRIMUS LYFTINGABEKKUR
SCOTT VOLTAGE
44.90021 gíra Shimano, super stíft
álstell með framdempara
BOXSETT
púði, hanskar,
sippuband og teljari.
13.990
Boxpúðar verð frá 12.500
Boxhanskar verð frá 3.500
Handlóðasett 10 kg. 3.990 kr.
Lóðasett 50 kg. 18.700 kr.
Bretti, bindingar
og skór
NITRO SMJÓBRETTI
37.660
Verð frá SKÍÐASKÓR
13.500
Verð frá
SKÍÐAGLERAUGU
2.690
Verð frá
TILBOÐ
Verð frá
21 gíra fj allahjól
með framdempara
29.900
GIANT ROCK 26”
Verð aðeins
16.800
SKÍÐI OG BINDINGAR
Verð fráSkíðaúlpur, buxur, hanskar, húfur,
nærföt o.fl .
Fjölskylda Maríu Tamimi aðhyllist ólík
trúarbrögð. Hún fermdist ekki sjálf en
styður dóttur sína í þeirri ákvörðun að
fermast í vor.
Það er óhætt að segja að María Tamimi sé
umvafin trú. Eiginmaður hennar, Hallur Ing-
ólfsson, er prestssonur. Faðir hennar, Sal-
mann Tamimi, er formaður Félags múslima.
Móðurbróðir hennar, Gunnar Þorsteins-
son, er forstöðumaður hins kristna safnað-
ar Krossins. Móðir hennar, Þórstína Björg
Þorsteinsdóttir, er skráð í þjóðkirkjuna og
María er skírð og er þar með einnig skráð
í þjóðkirkjuna en hún hefur aldrei staðfest
þá skráningu.
„Kristinfræðsla í skólanum samræmd-
ist ekki mínum skoðunum, það fór ekki vel
í mig þegar talað var um Jesú sem eina son
Guðs. Þá fannst mér eins og það væri kom-
inn milliliður milli mín og Guðs. Ég held
að ég sé í milliliðalausu sambandi við Guð.
Guð er nefnilega í okkur öllum. Þegar kom
að fermingu kom það einhvern veginn ekki
til greina að fermast. Vinir mínir og skóla-
félagar fermdust held ég allir en það var
ekki mín leið. Ef borgaraleg ferming hefði
verið í boði þegar ég var fjórtán ára hefði ég
kannski valið þá leið en hún var ekki í boði.
Það var aldrei talað um fermingu á heimil-
inu og ég hugsaði í raun lítið út í það,“ segir
María, sem stendur nú á öðrum tímamótum
í sínu lífi.
Frumburðurinn, Hera Hallsdóttir, ætlar
að staðfesta sína trú. Hún hefur valið að
fermast og mun fara með sín ritningarorð
í Langholtskirkju. Eftir athöfnina í kirkj-
unni verður fjölskyldu og vinum boðið upp
á heimalagaðar veitingar í sal hjá ömmu og
afa. Fermingarbarnið valdi að hafa veisluna
í japönskum stíl og hennar orð og vilji fá að
ráða þennan dag.
„Við ræðum ekki mikið um trú og túar-
brögð á heimilinu. Engu að síður vita krakk-
arnir okkar ýmislegt um íslam og Kóran-
inn til jafns við Biblíuna og sitthvað um
önnur trúarbrögð. Þau eru öll skírð en þegar
kemur að fermingu er það þeirra að velja
hvað þau gera. Hera valdi sjálf að fermast
og staðfesta kristna trú og þá styðjum við
hana í þeirri ákvörðun. Hún veit hvað hún er
að gera,“ segir María stolt og viðurkennir að
vera mjög ánægð að fá tilefni til að hóa fjöl-
skyldunni saman og hitta alla.
„Tíminn líður svo hratt að maður gefur
sér allt of sjaldan tíma til að hitta ættingja
og vini. Fermingar og aðrar stórveislur eru
frábærar fyrir stórfjölskylduna. Það er svo
gott fyrir fólk að gleðjast saman. Það er eitt
að því sem mér finnst Palestína hafa um-
fram Ísland. Fjölskylduböndin eru mun
sterkari þar en hér og fólk gefur sér meiri
tíma til að vera saman,“ segir María dreym-
in og vonar að friður komist á fljótlega svo
hún geti farið þangað með fjölskylduna.
María fór með fjölskyldunni árlega til
Palestínu frá unga aldri og bjó þar í ár þegar
hún var fimmtán ára. Um sína upplifun af
landinu, trúnni og menningunni segir hún:
„Það er skrítið að hugsa til þess en ég var
aldrei hrædd þar, kannski óþarflega huguð
þar sem ég stalst stundum út, í óþökk pabba,
til að taka þátt í mótmælum. Ég man meira
að segja eftir því að hafa safnað táragas-
hylkjum og verið að hlaupa undan löggunni.
Það þýðir ekkert að vera hræddur, hvort
sem maður býr hér á friðsælu Íslandi eða í
ófriðarástandi í Palestínu.“ María segir hins
vegar ekkert skrítið að fólk skuli vera hrætt
þegar það býr við stríðsástand.
„Fólki sem líður illa og er hrætt leit-
ar í trúna til að finna styrk. Við þurfum að
auka fræðslu hér til að spyrna við fordóm-
um. Það má alveg byrja í grunnskólum
með aukinni trúarbragðafræðslu, eins og
ég held að sé gert í Austurbæjarskóla, þar
sem krakkarnir kynnast og læra inn á aðra
menningu og fá innsýn í aðra trú. Íslamstrú
og kristni eru mjög lík trúarbrögð í grunn-
inn og ef fólk kynnir sér önnur trúarbrögð
losnum við fljótlega við fordóma sem skap-
ast af fáfræði. Ég neita að setja stimpil á
mína trú en ég trúi á Guð!” - vaj
María milli Múhameðs og Krists
María Tamimi með dóttir sína Heru Hallsdóttir sem fermist nú í vor. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN