Fréttablaðið - 06.03.2008, Qupperneq 74
6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
Reykjavíkurakademían boðar til síðdegisfundar
um skipulag og framtíð miðborgar Reykjavíkur í
dag á milli kl. 16.30 og 18.30.
Í fyrri hluta dagskrár verða flutt tvö framsögu-
erindi. Hjálmar Sveinsson, heimspekingur og
útvarpsmaður, reifar helstu yfirstandandi og
yfirvofandi verkefni á sviði skipulagsmála milli
Kvosar og Norðurmýrar og hugmyndafræði
þeirra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
doktorsnemi í skipulagshagfræði, ræðir niðurrif,
uppbyggingu og endurreisn í gamla bænum og
gildi miðbæja fyrir hagsæld og mannlíf í borg-
um. Að loknu stuttu kaffihléi mun Hjálmar
Sveinsson leiða pallborðsumræður um skipulag
og framtíð miðborgar Reykjavíkur.
Þátttakendur í umræðunum verða Hanna Birna
Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi og formaður
skipulagsráðs, Nikulás Úlfar Másson, forstöðu-
maður Húsafriðunarnefndar ríkisins, og Helgi S.
Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins
Portus, sem stendur að uppbyggingu tónlistar- og
ráðstefnuhúss á svonefndu Austurhafnarsvæði.
Málþingið fer fram í húsnæði Reykjavíkuraka-
demíunnar, Hringbraut 121, 4. hæð. Allir eru
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
- vþ
Samræmi eða óreiða?
Á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar Íslands í kvöld
verður leikin tónlist sem
talin er tilheyra hinum
svokallaða „seinni Vínar-
skóla“. Með þessu hugtaki
er átt við tónsmíðar hóps
byltingarkenndra tónskálda
sem starfaði í Vínarborg
snemma á tuttugustu öld-
inni.
Forystumenn stefnunnar voru
þrír, þeir Arnold Schönberg og
tveir nemenda hans, Anton
Webern og Alban Berg, og það
eru verk úr smiðju þeirra þre-
menninga sem flutt verða á tón-
leikunum.
Þó svo að tónsmíðar þremenn-
inganna væru nýstárlegar þá
lögðu þeir einnig rækt við fortíð-
ina; þannig flytur Sinfóníuhljóm-
sveitin tvær hljómsveitarumrit-
anir úr smiðju þeirra á eldri
verkum. Hér er um að ræða þátt
úr Tónafórn J.S. Bach sem Anton
Webern bjó í hljómsveitarbúning
sem löngu er orðinn sígildur á
eigin forsendum og umritun
Arnolds Schönbergs á píanókvart-
ett eftir Brahms sem einnig hefur
notið talverðra vinsælda.
Hápunktur tónleikanna verður
þó án efa túlkun Sigrúnar Eðvalds-
dóttur á fiðlukonsert Albans
Berg. Í konserti þessum blandar
Berg saman tónsmíðaaðferð
þeirra félaganna og vísunum í
eldri tónlist, sálmaforspil eftir
Bach og austurrískt þjóðlag, svo
úr verður sérlega frumlegt og
áhrifaríkt verk. Berg samdi kons-
ertinn til minningar um unga
stúlku, Manon, dóttur Ölmu
Mahler sem var mikil vinkona
Bergs. Útkoman var tilfinninga-
þrungið snilldarverk sem stund-
um er kallað „Sálumessa fyrir
fiðlu“.
Fiðluleikarann Sigrúnu
Eðvaldsdóttur þarf vart að kynna.
Hún er fyrsti konsertmeistari
Sinfóníuhljómsveitar Íslands og
hefur hlotið margvísleg verðlaun
og viðurkenningar fyrir leik sinn.
Skap hiti hennar og tilfinninga-
þrungin spilamennska á einstak-
lega vel við konsert Albans Berg.
Hljómsveitarstjóri á tónleikunum
er Rumon Gamba, aðalstjórnandi
Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Vert er að benda á að fyrir tón-
leikana fer fram súpufundur á
vegum Vinafélags Sinfóníuhljóm-
sveitarinnar þar sem dagskrá
tónleika kvöldsins verður kynnt
með erindi og súpa snædd í leið-
inni. Í kvöld verður það Árni
Heimir Ingólfsson, tónlistarfræð-
ingur og tónlistarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar, sem fjallar um
tónskáldin og verkin og þá sér-
lega tónsmíðaaðferð Schönbergs
og nemenda hans.
Súpufundurinn fer fram í
Sunnusal Hótels Sögu og hefst kl.
18. Aðgangseyrir að fundinum er
1.200 kr. Tónleikarnir sjálfir hefj-
ast svo kl. 19.30 í Háskólabíói.
Miðaverð er á bilinu 2.800 kr. til
3.200 kr.
- vþ
Vínarskólinn seinni undir
smásjána í kvöld
SIGRÚN EÐVALDSDÓTTIR Leikur fiðlukonsert Albans Bergs í kvöld.
HJÁLMAR SVEINSSON
Fer yfir stöðu skipu-
lagsmála á málþingi
í dag.
LAUGADAGUR 8. MARS KL. 13
MEISTARI MOZART.
STRENGJA-OG PÍANÓKVINTETT
TÓNLEIKAR KENNARA TÓNÓ KÓP.
LAUGADAGUR 8. MARS KL. 20
TÍBRÁ: SÖNGBÓK JAZZINS.
TÓNLIST COLES PORTERS.
KRISTJANA STEFÁNS & FÉLAGAR
SUNNUDAGUR 9. MARS KL. 16
SÖNGLÖG JÓRUNNAR VIÐAR.
HELGA RÓS OG GUÐRÚN DALÍA
ÞRIÐJUDAGUR 11. MARS KL. 20
TÍBRÁ: SÖNGTÓNLEIKAR.
LUBOV STUCHEVSKAYA,
TÓMAS TÓMASSON
OG KURT KOPETSKY
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS KL. 20
TÍBRÁ: PÍANÓTÓNLEIKAR
SIMON SMITH - ÖLL PÍANÓVERK
HAFLIÐA HALLGRÍMSSONAR
EINSTAKT TÆKIFÆRI !
Tryggðu þér miða
á www.midi.is
Takmarkaður sýningafjöldi
www.lokal.is
Reykjavíkurborg
Fjárlaganefnd
Alþingis
WWW.ICELANDAIR.IS
5.- 9. marz
Alþjóðleg leiklistarhátíð í Reykjavík
Þátttakendur:
New York City Players
Vivarium Studio
Erna Ómarsdóttir og Lieven Dousselare
Nature Theatre of Oklahoma
Þjóðleikhúsið
Draumasmiðjan
Sokkabandið
Dagskrá og nánari
upplýsingar á
Miðasala hafin
á midi.is!
www.lokal.is