Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 80
44 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
maturogvin@frettabladid.is
MEXÍKÓSKUR ANDI Helgi Guðmundsson segir mexíkóska
stemningu ríkja á öllum fjórum hæðum Tabascos, nýs veit-
ingastaðar í miðbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Nýr staður var opnaður við Hafnarstræti fyrir
helgi, þar sem Galileó var áður til húsa. Nú er þar
að finna mexíkóskan bar og grillveitingastað,
Tabascos, þar sem gestir geta komið til að svala
þorstanum með mexíkóskum bjór eða gætt sér á
góðri máltíð. „Við leggjum mikið upp úr vörum frá
Mexíkó, og erum þess vegna til dæmis með mex-
íkóskan bjór og tequila, og svo frosnar margarítur,“
útskýrir Helgi Guðmundsson, sem á staðinn ásamt
Þresti Magnússyni og Sigurði Garðarssyni.
Húsinu er skipt í fjórar hæðir. Aðalveitingasalirn-
ir eru á annarri og þriðju hæð, en sú fjórða gengur
undir nafninu Rómeó og Júlíu-hæðin. „Þar siturðu á
svölum og horfir yfir salinn. Þar eru tveggja manna
borð og gosbrunnur, allt mjög rómantískt,“ segir
Helgi brosandi. Í kjallaranum er svo að finna sófa
og spilaaðstöðu, en þar verður einnig hægt að kaupa
bjór í kílóatali. „Þetta er sniðugt fyrir þá sem eru
kannski að halda upp á afmæli og vilja koma í bjór.
Þá vigtum við bjórkútinn þegar fólkið kemur og
aftur þegar það fer, og fólk borgar eftir kílóum,“
útskýrir Helgi. Mexíkósk stemning ríkir á staðnum
öllum, enda segir Helgi takmarkið vera að bjóða
upp á brot úr Mexíkó í Reykjavík.
Nánari upplýsingar og matseðla verður að finna á
heimasíðunni tabascos.is innan skamms. - sun
> PRÓFAÐU...
...að feta í fótspor nýtnustu húsmæðranna og snúa af-
göngum upp í nýjar dýrindis máltíðir. Plokkfiskur sem
er poppaður upp með dálitlu karríi, osti og öðru til-
fallandi er herramannsmatur. Sérstak-
lega þegar hann er bor-
inn fram með rúg-
brauði og smjöri
í jöfnum hlut-
föllum.
Bjórinn keyptur í kílóatali
Indverskur matur nýtur vinsælda
víða um heim. Svokölluð „chutney“
eru oftar en ekki borin á borð með
réttunum, en þar eru á ferðinni
krydduð ávaxtamauk. Á Indlandi
eru þau oft gerð úr ferskum ávöxt-
um, en hér á landi eru þau þekktari
upp úr krukkum. Mangó chutney er
kannski hvað þekktast en til er mauk
úr öllu frá eplum til kókoshnetu,
gúrku til guava.
Þó að chutney eigi rætur sínar að
rekja til Indlands er maukið gott
með öllum mögulegum mat. Þeir
sem vilja spreyta sig á að gera sitt
eigið epla-chutney geta prófað þessa
uppskrift, sem er að finna á síðunni
Simply Recipes, á elise.com/reci-
pes.
Afhýðið eplin, fjarlægið kjarnann
og saxið eplin. Blandið öllu saman í
meðalstórum potti og hrærið vel.
Látið suðu koma upp, lækkið hitann
og látið malla undir loki í um 50 mín-
útur. Takið lokið af og sjóðið áfram í
nokkrar mínútur til að þykkja blönd-
una. Kælið. Ef maukið er sett í loft-
þétt ílát geymist það í ísskáp í allt að
2 vikur. Það gæti einnig verið tilval-
in tækifærisgjöf.
Auðvelt eplamauk
Ben Cockerill fluttist til
Íslands frá Englandi fyrir
rúmu ári. Hann saknar
hefðbundins ensks mat-
ar, en hefur sjálfur mest
gaman af að reiða fram
ind verskar og ítalskar
máltíðir.
„Ég er eiginlega hrifnastur af
indverskum og ítölskum mat, og
svo auðvitað hinni hefðbundnu
ensku sunnudagssteik með Yorks-
hire-búðingi,“ segir Ben en
íslenskur kærasti hans bar
ábyrgð á flutningi hans hingað til
lands fyrir rúmu ári. Hann segir
sunnudagssteikina á meðal þess
matar sem hann saknar hvað
mest. „Mamma eldaði þetta alltaf
þegar við vorum lítil, og var ann-
aðhvort með kjúkling eða nauta-
kjöt. Svo var alltaf Yorkshire-
búðingur á eftir, þar sem við
vorum nú einu sinni í Yorkshire,“
útskýrir Ben. „Annars er það
helst Jaffa-kex og „custard“ sem
ég sakna. Ég held að Íslendingar
viti ekki einu sinni hvað það er,“
segir hann og hlær við.
Ben heldur þó eigin sunnudags-
hefðir í heiðri, en þær taka á sig
form steikingar á eggjum og
beikoni að morgni dags. Hvað
íslensku hefðirnar varðar segist
Ben ekki eiga erfitt með neinn
hefðbundinn íslenskan mat. „Ég
er að venjast hákarlinum, það er
alltaf verið að pína hann ofan í
mig. Ég hef reyndar ekki farið á
þorrablót enn þá, þannig að ég er
ekki alveg viss um hvernig mér
mun semja við hrúts pungana,“
segir hann hugsi. „Ég er hins
vegar mjög hrifinn af bæði
hrefnukjöti og hrossakjöti, sem
fólk borðar alls ekki í Englandi,“
bætir hann við.
Kjúklingur: Skerið þrjár risp ur
í hvert kjúklingastykki með beitt-
um hníf. Blandið öllu öðru saman
og nuddið inn í kjúklinginn. Látið
marínerast yfir nótt, eða í
minnsta lagi í eina klst. Bakið þá
kjúklinginn í ofni við 180 gráður
þar til hann er tilbúinn.
Sósa: Þurrristið kryddfræin á
pönnu yfir miðlungshita í um 10
mín., eða þar til þau ilma. Merjið
í mortéli þar til þau eru orðin að
dufti. Steikið kryddin í olíunni í 5
mín. Bætið tómötum út á og eldið
þar til þeir loða saman í sósu.
Bætið safa af tilbúnum kjúkl-
ingnum út í. Látið suðu koma upp,
takið af hitanum og hrærið sýrð-
um rjóma saman við. Smakkið til
með salti og pipar. Sigtið sósuna
áður en hún er borin fram.
Kúskús: Eldið kúskús sam-
kvæmt leiðbeiningum á pakka,
notið kjúklingasoð í stað vatns.
Saxið annað mjög fínt, og blandið
saman við tilbúið kúskúsið.
Smakkið til með salti og pipar.
Saknar enskra matarhefða
Kryddaður kjúklingur að hætti Ben
500g kjúklingalæri
1 tsk. túrmerik
1 tsk. mulin kúmenfræ (caraway)
1 tsk. rifið engifer
½ tsk. salt
3 hvítlauksgeirar
Sósa
1 tsk. ostakúmenfræ (cummin)
1 tsk. kóríanderfræ
1 tsk. fennelfræ
1 tsk. sinnepsfræ
1 msk. grænmetisolía
3 ferskir tómatar, saxaðir
1 dl sýrður rjómi
Safi af elduðum kjúklingnum
Salt og pipar
Stökkt kúskús
250 g kúskús
1 pakki snjóbaunir (mangetout)
1 appelsínugul paprika
2 sellerístilkar
Salt og pipar
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TYEPLACHUTNEY Indversk
chutney henta með ýmiss
konar mat. Það er lítið mál
að sjóða sitt eigið.
2 stór Granny Smith-epli
½ bolli saxaður laukur
¼ bolli rauðvínsedik
¼ bolli púðursykur
1 msk. rifinn appelsínubörkur
1 msk. rifið ferskt engifer
½ tsk. allrahanda, Allspice
SAKNAR SUNNUDAGSSTEIKARINNAR Ben Cockerill saknar hinnar hefðbundnu ensku
sunnudagssteikar, með Yorkshire búðingi, en heldur sínar eigin hefðir í heiðri á
sunnudögum, þegar hann reiðir fram egg og beikon. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hvaða matar gætirðu síst verið án?
Þessa dagana er ég algjör ávaxtafíkill, svo í dag verð
ég að segja að ég gæti síst verið án ávaxta.
Besta máltíð sem þú hefur fengið:
Úff, það er erfitt að velja. En Friðrik V og félagar
klikka aldrei. Þar fær maður æðislegan mat og frá-
bæra þjónustu hjá Öddu. Ekki spillir fyrir ef Karen og
Axel eru á svæðinu, þá er máltíðin alveg súper.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Nei, það er enginn matur sem mér finnst bein-
línis vondur, en hann getur vissulega verið
misgóður.
Leyndarmál úr eldhússkápnum:
Leynivopnið mitt er að hringja bara í
mömmu, þá reddast allt.
Hvað borðar þú til að láta þér líða betur?
Þá fæ ég mér eitthvað rosalega gott nautakjöt.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum?
Ég á alltaf til ávexti og lýsi.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvað tækirðu með þér?
Friðrik V.
Hvað er það skrýtnasta sem þú hefur borðað?
Það er krókódílahamborgari. Hann var mjög skrýt-
inn. Ég fékk hann á einhverjum skyndi-
bitastað í Ameríku. Þetta var sem sagt
hamborgarabrauð með krókódílakjöti
á milli. Svo komst ég að því seinna að
þetta var bara nautahakk í einhverjum
krókódílabúningi, þetta var mjög spes
allt saman.
MATGÆÐINGURINN GUÐJÓN DAVÍÐ KARLSSON LEIKARI
Krókódílaborgari furðulegasta máltíðin