Fréttablaðið - 06.03.2008, Qupperneq 82
46 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ENGIN BRITNEY
Victoria Beckham segir að hún
myndi missa vitið ef líf hennar
líktist lífi Britney Spears, sem er
hundelt af ljósmyndurum á degi
hverjum. „Ég þarf næði með eig-
inmanni mínum og börnum, ann-
ars yrði ég bara klikkuð,“ segir
Beckham, sem birtist þó ósjald-
an í slúðurblöðunum sjálf.
Þótt lag Barða
Jóhannssonar, Ho ho
ho we say hey hey
hey, hafi tapað fyrir
Fullkomnu lífi
Örlygs Smára, geta
aðdáendur Merced-
ez Club andað léttar,
því framlag Letta í
ár er næstum því
alveg eins og Ho ho
ho. Það eru reyndar
engin vöðvatröll
sem flytja það
heldur tveir
söngvarar og ein
söngkona sem öll
eru klædd upp eins og sjóræningjar. Á bakvið þau skaka sér svo
léttklæddar sjóræningastelpur.
Söngtríóið heitir Pirates of the Sea upp á ensku og er skipað
Aleksandru Kurusova, Janis Vaisla og Roberto Meloni. Roberto er
ítalskur en hefur búið um hríð í Lettlandi og keppti fyrir hönd
þjóðarinnar í fyrra í sönghópnum Bonaparti.lv. Lagið sem sönghóp-
urinn flytur sigraði með nokkrum yfirburðum. Það heitir Wolves of
the Sea og það þurfti hvorki fleiri né færri en fjóra sænska lagahöf-
unda til að berja það saman. Lagið er mjög grípandi og viðlagið
minnir mikið á Hó hóið hans Barða. Í því er sungið „We‘re the hi hi
ho, we‘re the hi hi hey“. Lettar keppa á seinna undankvöldinu eins
og við, og því má reikna með að við styðjum þá með ráðum og
dáðum og símunum okkar.
Lettar syngja Hi Hi Ho
LETTNESKU SJÓRÆNINGJARNIR syngja hæ hæ hó og
hæ hæ hey.
79 DAGAR TIL STEFNU
Breska söngkonan Lily Allen
hefur leitað sér hjálpar vegna
þunglyndis. Hún dvelst nú á með-
ferðarheimili í London en fær að
fara út til að hitta vini og vinna
við tökur á þáttunum Lily Allen
and Friends sem nú eru sýndir á
BBC3.
„Síðustu mánuðir hafa verið
mjög erfiðir fyrir Lily,“ segir
heimildarmaður The Sun. Söng-
konan þurfti að takast á við fóst-
urlát í janúar og skömmu síðar
slitu hún og kærastinn, Ed Sim-
ons, sambandi sínu. „Hún var svo
hamingjusöm að vera ólétt og var
tilbúin að fórna skemmtanalífinu
til að koma sér fyrir og eignast
fjölskyldu,“ segir heimildarmað-
urinn. „Hún hefur reynt að takast
á við þetta en fannst að hún þyrfti
aðstoð fagmanns,“ bætir hann
við. „Hún bregst vel við meðferð-
inni og er ánægð með að hún megi
fara út til að taka upp fyrir þátt-
inn og hitta þá vini sem styðja við
bakið á henni.“
Lily aflýsti nýlega tónleikum
sínum á Isle of Wight-hátíðinni í
júní og talið er að hún muni einnig
fresta útgáfu næstu plötu sinnar.
Leitar hjálpar við þunglyndi
ERFIÐUR TÍMI Lily Allen hefur ekki átt
sjö dagana sæla síðustu mánuði, en
hún hefur nú leitað sér hjálpar vegna
þunglyndis.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrri undanúrslitaleik-
urinn í Gettu betur fer
fram á RÚV í kvöld þegar
Menntaskólinn á Akureyri
mætir Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Fréttablaðið
tók púlsinn á stemning-
unni.
Sofa vel og slaka á
Lið MA skipa þau Konráð Guð-
jónsson, Svala Lind Birnudóttir og
Arna Hjörleifsdóttir. Arna varð
fyrir svörum.
Besti árangur MA til þessa?
„MA vann keppnina árin 1991 og
1992 og svo aftur 2006.“
Leið MA í undanúrslitin?
„Við mættum Fjölbrautaskólanum
við Ármúla í fyrri útvarpsumferð-
inni og unnum 26-16. Í seinni
útvarpsumferðinni mættum við
Menntaskólanum á Egilsstöðum
og sigruðum með 28 stigum gegn
17. Við mættum síðan Fjölbrauta-
skóla Suðurlands á Selfossi í 8-liða
úrslitum og sigrðum 30-24.“
Hvernig er undirbúningi háttað
fyrir keppni?
„Við höfum bara æft reglulega í
allan vetur og sérstaklega eftir
áramót.“
Helgisiðir fyrir keppni?
„Nei, við erum voðalega róleg í
þeim efnum. Reynum bara að sofa
vel, slaka á og taka lífinu rólega.“
Óskaandstæðingur í úslitum?
„Þegar það er komið svona langt í
keppninni skiptir það ekki máli. Ef
maður ætlar að vinna keppnina
verður maður að geta unnið alla.“
Óskastigavörður?
„Svo sem enginn sérstakur en það
væri skemmtileg tilbreyting að sjá
einhvern tímann karlkyns stiga-
vörð. Annars er Steinunn Vala
mjög fínn stigavörður, enda gamall
MA-ingur.“
Sérsvið þitt?
„Það hittist þannig á að við erum
hvert á sinni brautinni þannig að
það kemur í minn hlut að vita hluti
tengda náttúrufræði og þess hátt-
ar. Ég reyni líka að vera með ættar-
tengsl og fólk í fréttum á hreinu.“
Hvað veistu akkúrat ekkert um?
„Ég veit nákvæmlega ekki neitt
um gamlar bíómyndir og hljóm-
sveitir, en Konni veit nú vonandi
eitthvað um það.“
Hver er kynþokkafyllstur í liði
MA?
„Þjálfararnir.“
Uppáhaldshljómsveit íslensk?
„Flashy Hannes og Sprengjuhöll-
in.“
Uppáhaldssjónvarpsþáttur (fyrir
utan Gettu betur!)?
„Eru til aðrir sjónvarpsþættir en
Gettu betur? Annars höfðar lækna-
drama eins og ER og Grey’s Ana-
tomy mjög til mín.“
Eyða í áfengi, konur og bíla
Lið MH skipa þeir Arnar Péturs-
son, Ingi Þór Óskarsson og Snorri
Hallgrímsson. Snorri svaraði
spurningum Fréttablaðsins.
Besti árangur MH til þessa?
„Fimm sinnum komist í úrslit og
alltaf tapað.“
Leið MH í undanúrslitin?
„Við sigruðum vini okkar í Land-
búnaðarháskólanum á Hvanneyri
í 1. umferð og unnum svo eina
húsnæðislausa skóla landsins,
Menntaskóla Borgarfjarðar, í 2.
umferð. Í 8 liða úrslitum sigruð-
um við Kvennaskólann í Reykja-
vík í mjög umdeildri keppni þar
sem Páll Ásgeir dómari fór á kost-
um.“
Hvernig er undirbúningi háttað
fyrir keppni?
„Við öðlumst þekkingu frá hinum
látnu í gegnum miðilsfundi.“
Helgisiðir fyrir keppni?
„Ekki annað en að við eyðum pen-
ingum nemendafélagsins í áfengi,
konur og bíla. Restin fer svo í
vitleysu.“
Óskaandstæðingur í úrslitum?
„MR.“
Óskastigavörður?
„Whoopi Goldberg.“
Sérsvið þitt?
„Led Zeppelin, ljóð um bavíana,
Liverpool og bara flest sem byrj-
ar á bókstafnum l. Fyrir utan
Whoopi Goldberg auðvitað.“
Hvað veistu akkúrat ekkert um?
„Mig myndi langa að fræðast
meira um Cockermouth, sem er
bær í Skotlandi. Ég veit lítið um
hann en ætla mér að fara þangað
einhvern tíma.“
Hver er kynþokkafyllstur í liði
MH?
„Ingi Þór Óskarsson – eða Björn
Ingi eins og hann er kallaður.“
Uppáhaldshljómsveit íslensk?
„Erfitt val. Ég sjálfur spila á
trommur og hvað eina í Pönk-
bandinu Fjölni og Arnar spilar á
gítar í Mammút. Eftir á að hyggja
er valið auðvelt: Pönkbandið
Fjölnir.“
Uppáhaldssjónvarpsþáttur (fyrir
utan Gettu betur!)?
„Simpsons.“
MA sefur vel en MH æfir sig á miðilsfundum
SKIPTIR EKKI MÁLI HVERJUM ÞAU MÆTA Í ÚRSLITUM Gettu
betur-lið MA. Arna er í miðjunni.
VILJA MÆTA MR Í ÚRSLITUM Gettu betur-lið MH.