Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 90

Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 90
 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR ÍS L E N S K A /S IA .I S /D A S 4 14 38 0 2/ 08 Sýndu þinn stuðning við baráttuna fyrir bættum aðbúnaði aldraðra – þörfin er brýn. Miðaverð aðeins 1.000 kr. (tvöfaldur 2.000 kr.) Hringdu núna í síma 561 7757 – Kauptu miða á www.das.is -vinningur í hverri viku Drögum í kvöld! Harley 8. mars – 62 milljónir í mars! Harley +3 milljónir í bakpokann á tvöfaldan miða! FÓTBOLTI Spánverjinn ungi Cesc Fabregas, sem átti stórleik í sigri Arsenal gegn AC Milan í Meist- aradeildinni á San Siro í fyrra- kvöld, telur enska liðið hafa sýnt og sannað með sigrinum gegn ríkj- andi Evrópumeisturum að það hafi alla burði til þess að vera sig- ursælt í lok leiktíðarinnar. „Arsenal situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og er komið í átta liða úrslit Meistaradeildar- innar eftir að hafa slegið út núver- andi Evrópumeistara á þeirra heimavelli og ég get ekki séð af hverju við ættum ekki að vinna báða titlana,“ sagði Fabregas bjartsýnn á fjölmiðlafundi eftir leikinn á San Siro. Hvað varðar Meistaradeildar- drauma Fabregas er fjarri því að hann sé einn á þeirri skoðun að hið unga lið Arsenal geti farið alla leið því Carlo Ancelotti, knattspyrnu- stjóri AC Milan, telur enska liðið afar sigurstranglegt. „Arsenal er geysilega öflugt og átti sigurinn skilið gegn AC Milan og leikmenn enska liðsins sýndu það mikið hugrekki á San Siro að ég sannfærðist um að þeir geti farið í úrslitaleikinn og ég vona að Arsenal vinni Meistaradeildina, það er líka skárra að hafa fallið úr keppni gegn liðinu sem vann,“ sagði Ancelotti í leikslok í fyrra- kvöld. - óþ Cesc Fabregas með sjálfstraustið í lagi: Arsenal getur vel unnið tvo titla SIGURVISS Fabregas sér ekki af hverju Arsenal ætti ekki að geta unnið bæði ensku úrvals- deildina og Meistaradeildina. NORDIC PHOTOS/GETTY

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.