Fréttablaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 4
4 16. mars 2008 SUNNUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Íslenskur karlmað-
ur var tekinn með fíkniefni í
hefðbundnu tolleftirliti í Leifs-
stöð á fimmtudag. Hann reyndist
vera með tæplega 200 grömm af
amfetamíni og slatta af kannabis-
fræjum. Efnunum hafði maður-
inn komið fyrir innan nærklæða
sinna.
Maðurinn, sem er á þrítugs-
aldri, var að koma frá Kaup-
mannahöfn þegar hann var
handtekinn. Fíkniefnahundur
tollgæslunnar merkti við hann
þegar hann kom inn. Hann kvaðst
við yfirheyrslur hafa reynt að
smygla efnunum inn til að koma
þeim í verð og borga fíkniefna-
skuld með ágóðanum.
Manninum var sleppt eftir yfir-
heyrslur og telst málið upplýst.
Lögregla og tollgæsla á Suður-
nesjum hafa upplýst allmörg stór
fíkniefnamál á síðustu mánuðum.
Má þar nefna Gambíumann sem
kom hingað til lands 13. desem-
ber með 300 grömm af kókaíni í
fórum sínum. Þjóðverji var tek-
inn með 23 þúsund e-töflur sem
hann leyndi í farangri sínum.
Loks var Lithái tekinn með 350
grömm af amfetamíni. Auk þessa
er til rannsóknar hjá lögreglunni
á Suðurnesjum í samvinnu við
lögregluna á höfuðborgarsvæðinu
hraðsendingarmál þar sem Toll-
gæslan tók um fimm og hálft kíló
af hörðum fíkniefnum sem komu
hingað til lands frá Þýskalandi. - jss
Íslenskur karlmaður tekinn með fíkniefni í tollaeftirliti í Leifsstöð:
Með amfetamín og kannabisfræ
LEIFSSTÖÐ Maðurinn kom með flugi frá
Kaupmannahöfn.
LÖGREGLUMÁL Tvö ungmenni
voru svipt ökuréttindum vegna
hraðaksturs í Reykjavík á föstu-
dagskvöld. Bæði mældust þau
á 110 kílómetra hraða á klukku-
stund en hámarkshraði er fimm-
tíu kílómetrar á klukkustund.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu var stúlka undir tvítugu
stöðvuð við Fiskislóð um klukkan
ellefu um kvöldið. Hún var svipt
ökuleyfinu á staðnum.
Hinn ökuþórinn, piltur á svip-
uðum aldri, var tekinn þremur
tímum síðar við Ánanaust þar
sem hann var í spyrnukeppni.
Hann var sömuleiðis sviptur öku-
leyfinu á staðnum. - sþs
Voru á 110 kílómetra hraða:
Ungir ökuþórar
misstu prófið
NEYTENDAMÁL Fleiri eru nú and-
vígir sölu á bjór og léttvíni í mat-
vöruverslunum en áður. Eru þetta
niðurstöður könnunar sem Gallup
gerði fyrir Lýðheilsustöð 9. til 22.
janúar síðastliðinn.
Hefur hlutfall þeirra sem and-
vígir eru sölu á bjór og léttvíni í
matvöruverslunum hækkað úr 19
prósentum árið 2005 í 35 prósent
nú. Samtals eru rúm 47 prósent
mjög eða frekar andvíg sölu á bjór
og léttvíni í verslunum en tæp 47
prósent mjög eða frekar hlynnt
henni. Úrtak var 1.350 manns á
landinu öllu og var svarhlutfall
61,1 prósent. - ovd
Könnun Lýðheilsustöðvar:
Fleiri andvígir
bjórssölu
ja
n.
´0
5
nó
v.
´0
7
ja
n.
´0
8
50
40
30
20
%
31,6
43,3
47,4
HLUTFALL ÞEIRRA SEM ERU MJÖG
EÐA FREKAR ANDVÍGIR SÖLU Á BJÓR
OG LÉTTVÍNI Í MATVÖRUVERSLUNUM
SKIPULAGSMÁL Kæra Landverndar
vegna álvers Norðuráls í Helguvík
er ekki of seint fram komin, eins og
forsvarsmenn Norðuráls hafa hald-
ið fram í fjölmiðlum. Þá er skýrt að
samtökin hafa rétt á að kæra. Þetta
segir Aðalheiður Jóhannsdóttir,
dósent við lagadeild Háskóla Íslands
og sérfræðingur í umhverfisrétti.
Landvernd kærði þá ákvörðun
Skipulagsstofnunar að ekki þurfi að
fjalla saman um umhverfisáhrif
allra framkvæmda sem tengjast
álveri í Helguvík, svo sem raf-
magnslína, virkjana og fleira.
Kæran var vegna álits Skipulags-
stofnunar um mat á umhverfis-
áhrifum frá 4. október 2007 og er
send umhverfisráðherra 10. októb-
er.
Deilt er um hvort Skipulagsstofn-
un hafi í raun tekið ákvörðun um
það að ekki ætti að fjalla um alla
þætti framkvæmdarinnar saman.
„Það er mín skoðun að kæran sé
ekki of seint fram komin, og að
þarna sé um að ræða kæranlega
ákvörðun,“ segir Aðalheiður.
„Að mínu mati er það rétt hjá
Landvernd að í áliti Skipulagsstofn-
unar frá 4. október er í raun að finna
niðurstöðu á þessu tiltekna álita-
efni. Stofnunin afgreiðir þetta atriði
inni í álitinu og byggir það fyrst og
fremst á því að það séu svo miklir
óvissuþættir að ekki sé hægt að láta
meta þetta saman,“ segir hún.
„Meðal annars kemur fram í áliti
Skipulagsstofnunar að stofnunin
hafi ekki vitað hvernig átti að leysa
úr þessu álitaefni. En það er enginn
vafi í mínum huga að í áliti stofnun-
arinnar leynist kæranleg ákvörðun
um þetta tiltekna atriði,“ segir Aðal-
heiður.
„Þetta er að að sjálfsögðu grund-
vallaratriði, og það má velta því
fyrir sér hvort stofnunin hefði ekki
átt að útkljá þetta tiltekna atriði í
miðri málsmeðferðinni með form-
legri ákvörðun, jafnvel þó það hafi
ekki verið bein lagaheimild til
þess,“ segir hún.
Þá hefðu umhverfisverndarsam-
tök og aðrir sem hagsmuna eiga að
gæta getað kært það atriði strax, og
umhverfisráðherra kveðið upp
úrskurð um þennan tiltekna þátt
miklu fyrr.
Ljóst sé að lagaleg óvissa sé um
það hvenær fjalla átti um málið, og
brýnt að löggjafinn eyði þeirri
óvissu á þann hátt að setja inn
nákvæmari málsmeðferðarreglur
hvað varðar aðra málsgrein fimmtu
greinar laga um mat á umhverfis-
áhrifum, sem vísað er í í kæru Land-
verndar, segir Aðalheiður.
brjann@frettabladid.is
Skýr réttur til að
kæra álit um álver
Kæra Landverndar vegna álvers í Helguvík kom ekki of seint og ljóst er að sam-
tökin eiga rétt á að kæra, að mati dósents í lögfræði. Augljóst að Skipulagsstofn-
un tók ákvörðun sem er kæranleg. Brýnt er að lagalegri óvissu verði eytt.
Krafa um að umhverfisáhrif allra
framkvæmda sem tengjast uppbygg-
ingu álvers yrðu metnar saman kom
einnig fram við undirbúning álvers
Norðuráls á Grundartanga.
Hinn 19. febrúar 1996 féllst
skipulagsstjóri á þá kröfu Nátt-
úruverndarráðs að láta meta áhrif
álversins, hafnarinnar, rafmagnslína
og efnistöku saman. Rétt er að taka
fram að þá voru önnur lög um mat á
umhverfisáhrifum í gildi.
Þeim úrskurði var skotið til þáver-
andi umhverfisráðherra, Guðmundar
Bjarnasonar, sem felldi úr gildi þann
hluta úrskurðar skipulagsstjóra sem
varðaði sameiginlegt mat allra þátta.
Aðalheiður Jóhannsdóttir, dósent
í lögfræði við Háskóla Íslands, segir
ljóst að eins og lögin voru árið 1996
hafi ekki verið heimilt að krefjast
þess að allir þættir framkvæmdar-
innar væru metnir saman. Það sé
hins vegar heimilt nú.
SVIPAÐ MÁL VEGNA GRUNDARTANGA
FRAMKVÆMDIR Þau Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Oddný Harð-
ardóttir, bæjarstjóri í Garði, afhentu Ragnari Guðmundsson, forstjóra Norðuráls,
bygingarleyfi vegna álvers í Helguvík á föstudag. MYND/VÍKURFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Lögreglufélag
Reykjavíkur mótmælir þeirri skerð-
ingu sem hefur orðið á löggæslu við
sameiningu embættanna á höfuð-
borgarsvæðinu. Þetta er meðal þess
sem kom fram á fundi Óskars Sig-
urpálssonar, formanns félagsins, og
Karls Jóhanns Sigurðssonar vara-
formanns með Birni Bjarnasyni
dómsmálaráðherra á föstudag.
Samkvæmt tilkynningu var ráð-
herranum gerð grein fyrir því að
lögreglumenn skorti í nánast allar
deildir, en þó sérstaklega í almenna
deild. Þar sé fjöldi lögreglumanna
nú sá sami og hann var í Reykjavík
fyrir sameiningu. - sþs
Lögreglufélag Reykjavíkur:
Lýstu áhyggjum
á ráðherrafundi
RÚSSLAND, AP Saksóknarar í Rúss-
landi hafa ákært þarlendan blogg-
ara fyrir hatursfull ummæli um
lögregluna á bloggsíðu sinni. Þetta
er í fyrsta sinn sem bloggari sætir
ákæru fyrir skrif sín í Rússlandi.
„Þeir sem gerast löggur eru
einfaldlega úrþvætti, heimskir
og ómenntaðir fulltrúar dýrarík-
isins,“ skrifaði bloggarinn. „Það
væri gott ef í hverjum rússnesk-
um bæ væri brennsluofn, eins
og í Auschwitz þar sem daglega
eða tvisvar á dag væru brenndar
heiðnar löggur.“ - sgj
Rússneskur bloggari ákærður:
Bloggari vill
brenna löggur
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Bassel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
8°
7°
7°
5°
7°
11°
13°
13°
9°
8°
20°
22°
13°
21°
8°
31°
15°
15°
Á MORGUN
Hæg breytileg átt.
ÞRIÐJUDAGUR
Hæg SV-átt um
allt land.
0
4
3
3
3
2
4 3
5
4
2
3
2
5
1
2
0
1
0
3
3
5
3
2
2
3
2
2
1
2
1
3
.
HITI HÆKKAR
LÍTILLEGA Það
verður áframhald
á fallega veðrinu í
dag en á morgun
fer þykknar smám
saman upp og á
þriðjudag og mið-
vikudag má búast
við úrkomu víða
um land.
Elín Björk
Jónsdóttir
Veður-
fræðingur
ALBANÍA, AP Að minnsta kosti
fimm létust og um 200 særðust í
gríðarlegum sprengingum í her-
gagnabirgðastöð í Albaníu í gær.
Á meðal hinna særðu eru fjölmörg
börn.
Sprengingarnar urðu í nágrenni
höfuðborgarinnar Tirana. Ekki
er vitað fyrir víst hvað olli upp-
haflegu sprengingunni, en BBC
fréttastofan hefur greint frá því að
sérfræðingar hafi verið að taka í
sundur skotfæri þegar sprenging-
in varð.
Fleiri sprengingar urðu í kjöl-
far þeirrar fyrstu og héldu skot-
vopn áfram að springa í nokkrar
klukkustundir á eftir. - þeb
Slys í hergagnabirgðastöð:
200 særðir eftir
sprengingar
SÆRÐUM KOMIÐ TIL HJÁLPAR Særðum
manni er hjálpað út úr bíl og inn á sjúkra-
hús eftir sprengingarnar í Albaníu í gær.
Að minnsta kosti 200 særðust og fimm
létust í sprengingunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
GENGIÐ 14.03.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
140,8457
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
69,78 70,12
141,51 142,19
108,56 109,16
14,554 14,64
13,637 13,717
11,477 11,545
0,6933 0,6973
114,1 114,78
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR