Fréttablaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 6
6 16. mars 2008 SUNNUDAGUR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
15
49
0
3
/0
8
+ Nánari upplýsingar og bókanir á
www.icelandair.is eða í síma 50 50 100
* Innifalið í verði: Flug aðra leiðina, flugvallarskattar og gjöld.
Sölutímabil: 13.–16. mars. Ferðatímabil: 1.–30. apríl.
KAUPMANNAHÖFN
Verð frá 8.800 kr.*
Vortilboð:
TAKMARKAÐ SÆTAFRAMBOÐ!
KABÚL „Það eina sem uppreisnar-
mennirnir gera betur en við er að
vekja athygli fjölmiðla,“ segir
Carlos Branco, herforingi og tals-
maður ISAF, hins alþjóðlega gæslu-
liðs NATO í Afganistan, í samtali
við Fréttablaðið.
„Og þótt fréttir berist stundum
af auknum átökum, þá stafar það
ekki af því að árásum þeirra hafi
fjölgað heldur erum það við sem
tökum frumkvæðið og ráðumst á
þá,“ segir hann.
Þegar rætt er við fulltrúa alþjóð-
lega gæsluliðsins í Afganistan er
ekki að heyra að þeir séu sérlega
svartsýnir á ástandið.
Að vísu segjast þeir reikna með
að það taki áratugi að koma Afgan-
istan nokkurn veginn á réttan kjöl
eftir þrjátíu ára stríðsástand, en af
átökum við talibana og aðra upp-
reisnarhópa næstu misserin hafa
þeir litlar áhyggjur.
Branco segir að í september 2006
hafi orðið straumhvörf í baráttunni
við uppreisnarhópana. Eftir það
hafi alþjóðaliðið í Afganistan í raun
haft yfirhöndina.
Ástandið nú sé allt annað en í
byrjun síðasta árs, þegar þeir virt-
ust vera að sækja í sig veðrið og
búist var við hörðum átökum.
„Árið 2007 var alltaf verið að spá
nýrri hrinu árása frá þeim: vorher-
ferð, sumarherferð og hausther-
ferð, en aldrei varð neitt úr því.“
Einstaka árásir hafi verið bundn-
ar við tiltölulega fá svæði í suður-
hluta landsins. Í norðanverðu
Afganistan hafi ekkert orðið vart
við starfsemi uppreisnarmanna í
seinni tíð.
Sprengjuárás í Kabúl á fimmtu-
dagsmorgun, skömmu áður en
hópur íslenskra fjölmiðlamanna
kom þangað, sýnir þó að fáu er að
treysta. Höfuðborgin er eitt af þeim
svæðum í landinu, þar sem allt
getur gerst. Árásin, sem er ein sú
alvarlegasta í Kabúl í langa hríð,
varð átta manns að bana og fimmt-
án særðust.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra er væntanleg í
þriggja daga heimsókn til Afganist-
ans, dagana 17.-19. mars.
Bjartsýni í Afganistan
Yfirmenn NATO í Afganistan telja andstæðingana ekki líklega til stórræða á næst-
unni, þrátt fyrir reglulegar fréttir af sprengjuárásum og átökum við andspyrnuhópa.
HÖFUM YFIRHÖNDINA Carlos Branco
herforingi, talsmaður ISAF, hins alþjóð-
lega gæsluliðs NATO í Afganistan.
FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐSTEINN
SVÍÞJÓÐ Mikil bylgja bankarána
ríður yfir Svíþjóð. Bankarán hafa
verið framin þar annan hvern dag
það sem af er þessu ári, eftir því
sem kemur fram í sænska dag-
blaðinu Aftonbladet. Tuttugu og
níu bankar hafa þegar verið rænd-
ir á árinu, á 59 opnunardögum
bankanna.
Frá árinu 2000 hafa verið fram-
in frá tuttugu og fjórum upp í
fimmtíu bankarán á ári í Svíþjóð.
Það sem af er þessu ári hafa
bankaránin verið 29, eða annan
hvern dag. Swedbank hefur oftast
orðið fyrir barðinu á ræningjum.
Ef ránatíðnin helst svipuð út árið
verða ránin orðin um 140 talsins í
árslok, sem yrði algert met.
„Ein af ástæðum þess að ránin
eru svona tíð er sú að ræningjarn-
ir fá svo lítið af peningum í hvert
skipti. Þeir verða því að ræna
fleiri banka,“ segir Thord Modin,
yfirmaður í sænsku rannsóknar-
lögreglunni.
Um skipulagða glæpastarfsemi
er að ræða sem talið er að nái til
um 600 einstaklinga. Talið er að
sömu menn standi á bak við banka-
ránin. Þarna séu fyrst og fremst
félagsmenn mótorhjólaklúbba á
ferð. Í um helmingi tilfella hefur
einhver verið handtekinn og í
nokkrum tilfellum hafa menn
verið ákærðir. - ghs
Stefnir í metár í bankaránum í bylgju sem ríður yfir Svíþjóð:
Bankarán annan hvern dag
METÁR? Ýmislegt bendir til að metár
verði í bankaránum í Svíþjóð ef fram
heldur sem horfir.
BRETLAND, AP Alistair Darling, sem
tók við af Gordon Brown sem fjár-
málaráðherra er hann flutti sig
yfir í forsætisráðuneytið í fyrra,
lækkaði hagvaxtarvæntingar og
boðaði auknar lántökur breska rík-
issjóðsins er hann kynnti fyrsta
fjárlagafrumvarp sitt í vikunni.
Efnahagslegar kringumstæður
fjárlagagerðarinnar fyrir fjárlaga-
árið 2008 eru þær erfiðustu síðan
Verkamannaflokkurinn komst til
valda fyrir ellefu árum. Ræður þar
mestu alþjóðlega lánsfjárþurrðin
vegna undirmálslánakreppunnar í
Bandaríkjunum, og háar skuldir
ríkissjóðs sem hrönnuðust upp í
embættistíð fyrirrennarans.
En í stað þess að einblína á þessa
neikvæðu þætti lagði Darling
áherslu á ráðstafanir sem stuðluðu
að umbótum í umhverfis- og
félagsmálum, þar á meðal hækkun
skatta á áfengi og eyðslufreka
bíla.
„Þetta eru ábyrg fjárlög, til
þess fallin að tryggja stöðugleika
Bretlands andspænis hnattrænni
óvissu,“ tjáði ráðherrann þing-
heimi. Er hann kynnti endurskoð-
aða hagspá ríkisstjórnarinnar
með lækkuðum hagvaxtarhorfum
lagði hann áherslu á að Bretland
væri ekki eitt um að eiga í vanda
vegna alþjóðlegu lánsfjárkrepp-
unnar. - aa
Skuldastaða breska ríkissjóðsins stórversnar samkvæmt nýju fjárlagafrumvarpi:
Kreppan sverfur af hagvexti
TIL ÞINGS Alistair Darling með fjárlaga-
töskuna góðu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FJÖLDI BANKARÁNA Á ÁRI
2000 24
2001 31
2002 51
2003 41
2004 27
2005 49
2006 45
2007 40
2008 29*
* 29 fyrstu mánuði ársins. Með sama
áframhaldi gætu þau orðið hátt í 140
í lok ársins.
BRUNI Eldur kviknaði í mannlaus-
um sumarbústað í Skorradal á
föstudagskvöld. Það tók slökkvi-
liðið í Borgarnesi tæpan klukku-
tíma að ráða niðurlögum eldsins.
Bústaðurinn er talinn ónýtur.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu varð reyks vart um klukk-
an hálfsjö. Í fyrstu var talið að
hitaleiðsla hefði farið í sund-
ur. Um leið og ljóst var að eldur
var í húsinu, sem stendur á landi
Mófellsstaða, voru dælu- og tank-
bílar sendir á staðinn.
Rífa þurfti þak og eina hlið af
húsinu. Upptök eldsins eru í rann-
sókn hjá lögreglu. - sþs
Þurftu að rífa þakið af:
Bústaður brann
í Skorradalnum
SKATTAMÁL Stjórnskipaður vinnu-
hópur, sem falið var að gera til-
lögur að samræmdu kerfi gjald-
heimtu til að hvetja til aukinnar
notkunar umhverfisvænni far-
artækja og eldsneytis, mun skila
tillögum sínum til ríkisstjórn-
arinnar fyrir páska. Þetta stað-
festi Ingvi Már Pálsson, formað-
ur vinnuhópsins, í samtali við
Fréttablaðið.
Til stendur að á grundvelli til-
lagna vinnuhópsins verði samin
ný lög sem gengið geti í gildi um
næstu áramót. - aa
Gjaldheimta af bílum:
Vinnuhópur
skilar af sér
ÚTBLÁSTUR Stefnt er að vistvænna
gjaldheimtukerfi.
Sprengisandur í samband
GSM-samband er nú í fyrsta sinn
komið á Sprengisand, Fljótin í
nágrenni Siglufjarðar og á Gemlu-
fallsheiði milli Þingeyrar og Flateyrar.
Tæknimenn Vodafone hafa sett upp
senda á þessum svæðum.
SAMSKIPTI
TRYGGINGAMÁL Um þessar mund-
ir er Tryggingastofnun að endur-
greiða 32 þúsund sjúkratryggðum
einstaklingum kostnað vegna heil-
brigðisþjónustu, samtals að upp-
hæð um 72 milljónir króna.
Um er að ræða greiðslur sem
viðtakendur hafa greitt umfram
hámarkskostnað og sem þeir hefðu
væntanlega ekki endurheimt ef
ekki væri fyrir nýlegt sjálfvirkt
greiðslufyrirkomulag. Þessar end-
urgreiðslur nema í heild rúmlega
72 milljónum króna. - jss
Endurgreiðslur TR:
Um 32 þúsund
fá 72 milljónir
SJÁVARÚTVEGUR Togararallið, eða
stofnmæling á botnfiski á Íslands-
miðum, er nú í fullum gangi en
það hófst í febrúarlok. Að sögn
Jóhanns Sigurjónssonar, forstjóra
Hafrannsóknastofnunar, munu
niðurstöður mælinga og aldurs-
greininga liggja fyrir í byrjun
næsta mánaðar en stofnmatið
sjálft í lok maí eða byrjun júní.
Rannsóknarskipið Árni Friðriks-
son hefur tekið þátt í togararallinu
en það hefur þó aðallega verið við
loðnuleit úti fyrir Vestfjörðum. Að
sögn Jóhanns hefur ekkert fund-
ist sem gefur til kynna að vestur-
ganga sé á næsta leiti. - jse
Hafrannsóknastofnun:
Togararall í
fullum gangi
GLAÐIR Í BRAGÐI Þessir menn virðast bjartsýnir þrátt fyrir ástandið sem ríkt hefur í Afganistan síðustu ár. FRÉTTABLÐIÐ/GUÐSTEINN.
GUÐSTEINN BJARNASON
SKRIFAR FRÁ AFGANISTAN
gudsteinn@frettabladid.is
KJÖRKASSINN
Liggur meira á Vaðlaheiðar-
göngum en Sundabraut?
Já 27,4%
Nei 72,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Líst þér vel á að lögreglan noti
valdbeitingarhunda?
Segðu þína skoðun á