Fréttablaðið - 16.03.2008, Blaðsíða 82
22 16. mars 2008 SUNNUDAGUR
folk@frettabladid.is
passio
A R V O PÄ R T
l ist vinafelag. is
H A L L G R Í M S K I R K J U
S K Í R D A G
2 0 . M A R S 2 0 0 8
K L . 1 7
Schola cantorum
C A P U T
J E S Ú S : Tómas Tómasson BASSI
P Í L AT U S : Þorbjörn Rúnarsson TENÓR
Margrét Sigurðardóttir SÓPRAN
Guðrún Edda Gunnarsdóttir ALT
Bragi Bergþórsson TENÓR
Benedikt Ingólfsson BASSI
a ð g a n g s e y r i r
3 . 0 0 0 k r ó n u r
G U Ð S PJ A L L A M A Ð U R :
H Ö R Ð U R Á S K E L S S O N
s t j ó r n a n d i
Björn Steinar Sólbergsson ORGEL
F
O
R
S
A
L
A
M
IÐ
A
Í
H
A
L
LG
R
ÍM
S
K
IR
K
JU
O
G
1
2
T
Ó
N
U
M
T Ó N L I S TA R S J Ó Ð U R
M E N N TAMÁ L A R Á Ð U N E Y T I S I N S
> VISSIR ÞÚ?
...Mick Jagger, söngvari The Roll-
ing Stones, heitir réttu nafni Michael
Philip Jagger. Talið er að Jagger hafi
samið ballöðuna Angie til fyrrver-
andi eiginkonu Davids Bowie,
Angelinu Bowie, skömmu eftir
að þau skildu. Einnig er talið
að Jagger hafi samið texta
lagsins Wild Horses um þáver-
andi ástkonu sína, Marianne
Faithful.
Skærur Bubba Morthens og
Bigga í Maus teljast tvímæla-
laust til frétta vikunnar. Rétt til
upprifjunar fyrir þá sem fylgj-
ast illa með: Bubbi lét þau
ummæli falla á síðu sinni, eftir
að hafa lesið leiðara Bigga í tón-
listartímaritinu Mónitor, að
Biggi væri falskur söngvari og
þann falska tón væri að finna í
skrifum Bigga. Harkaleg
ummæli vissulega og svo virðist
sem kóngurinn hafi ofboðið
ýmsum kollegum sínum með
hraustlegum orðum. Áður hafði
Bubbi svarað rösklega þeim sem
voguðu sér að gagnrýna þátt
hans á Stöð 2, Bandið hans
Bubba, til dæmis með því að
segja Dóra DNA á DV útþynnt
gen afa síns nóbelsskáldsins.
Óvæntur en eftirminnilegur er
stuðningur sem Biggi nýtur
meðal kollega sinna og hafa þar
farið fyrir ágætum flokki tón-
listarmanna þeir Árni Johnsen,
Johnny King, Geir Ólafsson og
Jójó. Allir eru þeir þeirrar skoð-
unar að ótækt sé að Bubbi
„hrauni“ með þessum hætti yfir
kollega sína. Er nú komin upp sú
staða að Biggi gæti hæglega sett
saman hljómsveit – Bandið hans
Bigga – skipaða þeim mönnum
sem hafa hvergi hikað við að
benda Bubba á villur síns vegar.
Má sjá Geir fyrir sér á tromm-
um, JóJó og Árna á gítar og söng,
Johnny fer létt með bassann og
söng en Biggi „frontar“ sitt
band, þótt allir séu meðlimir
„frontarar“. Minna helst saman-
komnir á Traveling Wilburys en
það er önnur saga. - jgb
Bandið hans Bigga
BANDIÐ HANS BIGGA Gaman væri að sjá þessa á sviði – frontari í hverju rými.
SAMSETT MYND/KRISTINN
Michael Jackson,
sem eitt sinn kall-
aði sig konung
poppsins, hefur
endurfjármagnað
búgarð sinn
Neverland til að
koma í veg fyrir
að hann yrði sett-
ur á uppboð.
Hefði Jackson
ekki borgað þá
1,7 milljarða
króna sem hann
skuldaði hefði
búgarðurinn verið boðinn upp
næstkomandi miðvikudag. Með
hjálp fjárfestingahóps tókst
Jackson að reiða fjárhæðina af
hendi og heldur
hann því eign-
inni.
Jackson keypti
Neverland árið
1987 með þá hug-
sjón að breyta
búgarðinum í
ævintýragarð
fyrir börn.
Honum var lokað
árið 2006 eftir að
popparinn hætti
að borga starfs-
liði sínu laun en
Jackson hefur ekki búið í Never-
land síðan hann var ákærður
fyrir að hafa beitt barn kynferð-
islegu ofbeldi.
Heldur Neverland
MICHAEL JACKSON Fyrrverandi kon-
ungur poppsins hefur endurfjármagn-
að búgarð sinn Neverland.
Hljómsveitin R.E.M. ætlar að
leyfa notendum samskiptasíð-
unnar Facebook að hlusta á nýj-
ustu plötu sína, Accelerate, einni
viku áður en hún kemur í versl-
anir. Í gegnum hlekkinn iLike
geta notendur síðunnar hlustað á
plötuna frá og með 24. mars.
R.E.M. er fyrsta stóra hljóm-
sveitin til að nota iLike við kynn-
ingu á tónlist sinni. Michael
Stipe, söngvari sveitarinnar,
telur þetta rétta skrefið ætli hún
að halda sér í fremstu röð. „Ann-
aðhvort slærðu til og tekur þátt í
þessu eða horfir á þetta úr fjar-
lægð. Mig langar miklu frekar
að vera úti á vellinum en á vara-
mannabekknum,“ sagði hann.
Forspilun á Facebook
MICHAEL STIPE Hljómsveitin R.E.M.
ætlar að leyfa notendum Facebook að
hlusta fyrstir á nýju plötuna sína.
Myndlistarkonan Sara Riel hannar
umslag nýjustu plötu hljómsveitarinnar
Steintryggs, Trappa. Umslagið er
óvenjulegt í meira lagi því það skartar
útskornum kafbáti.
Sara, sem hefur einnig hannað
umslög fyrir plötur
Skakkamanage og Ólafar
Arnalds, segist hafa
fengið hugmyndina á
tónleikum með
Steintryggi. „Mér
fannst ég vera
komin í kafbáta-
ferðalag um
hliðstæðan geim enda virkar tónlist á
sjóntaugarnar hjá mér,“ segir Sara. „Ég
hef auk þess áhuga á að leika mér með
formið og möguleikana sem það býður
upp á. Sérstaklega á þessum tímum þar
sem nær öll tónlist er fáanleg sem
niðurhal er mikilvægt að gera hlutinn
eigulegan. Bæði Smekkleysa og
Sigtryggur voru sammála um að
það gæti staðist og gáfu mér
kærkomið frelsi til að leika
lausum hala,“ segir Sara sem
er stödd í Kína þar sem
hún undirbýr mynd-
listarsýningu.
Hún segist vinna
grafísku hönnunina,
sem umslagagerðin
óneitanlega er, eins og
myndlistarverk. „Ég fæ
yfirleitt ágætan tíma í hönnunarvinn-
una og þá gefst tími til að vanda sig
betur, sem er sjaldgæft í þessum
bransa.“ - fb
Kafbátaferð breyttist í umslag
SARA RIEL Myndlistarkonan Sara Riel hannaði
umslag fyrir nýjustu plötu Steintryggs, Tröppu.
KAFBÁTUR Umslagið
sem Sara hannaði fyrir
hljómsveitina Steintrygg er
heldur óvenjulegt.