Fréttablaðið - 16.03.2008, Qupperneq 10
10 16. mars 2008 SUNNUDAGUR
Náttúrufræðingur-
inn Charles R. Dar-
win fæddist á Eng-
landi árið 1809. Hann
var af vel stæðu fólki
og lærði læknisfræði.
Hann hryllti hins
vegar við uppskurð-
um og blóði og hafði
meiri áhuga á plöntu-
og skordýrafræði.
Áhugi Darwins á nátt-
úrufræði vakti athygli
og í kjölfarið fékk hann pláss
í leiðangri til að kortleggja
strandlengju Suður-Ameríku.
Í ferðinni lagði hann grunn
að sínum frægustu kenning-
um. Árið 1859 setti hann fram
kenningu sína um
náttúruval sem var
misjafnlega tekið.
Darwin var heilsu-
veill vegna mikils
vinnuálags. Hann
giftist frænku sinni
Emmu og eignuð-
ust þau tíu börn.
Hann varði mikl-
um tíma með
börnum sínum
sem var óvenju-
legt á þessum tíma en Dar-
win var mikill fjölskyldumað-
ur og eru hans hinstu orð sögð
hafa verið til Emmu konu hans:
„Mundu hvað þú hefur verið
góð eiginkona.“
ÞETTA GERÐIST: 16. MARS 1882
Darwin fellur frá
Tímarit Máls og menningar stendur á
tímamótum því sjötíu ár eru nú í mars
síðan bókaklúbburinn Mál og menning
fór að senda félögum sínum fréttabréf
með því nafni.
Bókaklúbburinn var stofnaður 1937
af bókaútgáfunni Heimskringlu og átti
heftið að kynna útgáfubækur klúbbs-
ins og freista nýrra félaga. Árið 1940
sameinaðist litla heftið tímaritinu
Rauðum pennum, sem líka var gefið
út af Heimskringlu, og fékk nýja tíma-
ritið nafn heftisins, Tímarit Máls og
menningar.
Frá upphafi hefur tímaritið birt
greinar um bókmenntir og samfélags-
mál og reyndar hvaðeina sem varðar
íslenska menningu, pólitík og jafnvel
heimsmál. Núverandi ritstjóri Silja
Aðalsteinsdóttir tók við ritinu aftur
árið 2004 eftir að hafa ritstýrt því áður
á árunum 1982 til 1987.
„Ég tók við tímaritinu í ársbyrj-
un 2004 þegar það stóð illa. Útgáfan
var búin að gefa það upp á bátinn og
ég átti að athuga hvort hægt væri að
endurlífga það. Núna eru áskrifendur
um 1000, sem ekki virðast nein ósköp,
en mér skilst á menningarritstjórum
á Norðurlöndunum að þetta sé furðu-
lega há tala.“
Silja leggur áherslu á að fjalla um
fjölbreytt menningarefni sem höfði til
sem flestra. Hún segir tímaritið hafa
gott orð á sér fyrir að vera vandað rit
og margir vilji prófa að fá efni birt þar
áður en þeir leita annað.
„Mér finnst að tímaritið eigi fyrst og
fremst erindi við alla sem vilja fylgj-
ast með bókmenntum á líðandi stund,
bæði skrifum um útgefnar bækur,
nýjar og gamlar, og ungum höfund-
um sem stíga margir sín fyrstu skref
í TMM. Fá tímarit og blöð taka við efni
frá óþekktum höfundum en ég reyni
að kynna nýja höfunda til sögunnar í
hverju hefti. Ég hef á mínum snær-
um her manns sem skrifar reglulega
í blaðið, svo fæ ég líka mikið efni sent
frá fólki sem hefur eitthvað að segja.
Íslendingar eru mjög ritglaðir. Ég gæti
vel haldið sex heftum úti á ári en mér
finnst fjögur hefti góð tíðni og hægt
að velja efnið betur. Ég birti auðvitað
fyrst og fremst það sem ég er hrifin af
en er líka alveg óhrædd að birta efni
sem ég er ekkert hrifin af sjálf, ef það
er vel unnið,“ segir Silja. „Ég veit að
smekkur minn er ekki algildur!”
Tímaritið fer inn á níu hundruð ís-
lensk menningarheimili og þar að auki
á öll helstu skóla- og almenningsbóka-
söfn. Einnig fer tímaritið á öll helstu
háskólabókasöfn á Vesturlöndum. Á
heimasíðu Tímaritsins www.tmm.is
má sjá fjörug viðbrögð lesenda við
efni blaðsins. Silja birtir líka búta úr
bréfum lesenda í ritstjórnarpistlum
sem gefur tímaritinu skemmtilegan
blæ. Auðséð er að henni er annt um
blaðið.
„Já, mér þykir vænt um Tímaritið.
Aðrir ritstjórar harma það að geta ekki
verið svona kumpánlegir við áskrif-
endur sína, en þar sem ég hef safnað
mínum áskrifendum nánast með hand-
afli finnst mér þeir vera kunningjar
mínir. Þetta er heilmikil vinna því ofan
á ritstjórnina koma alls konar erindi
varðandi dreifinguna nánast á hverj-
um degi. Umsjónarmaðurinn þarf að
vera með allan hugann við það, og þá
er kostur að unna því hugástum.“
heida@frettabladid.is
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR : 70 ÁR FRÁ FYRSTA FRÉTTABRÉFI KLÚBBSINS
Íslendingar eru mjög ritglaðir
SILJA AÐALSTEINSDÓTTIR Ritstjóri Tímarits Máls og menningar segist unna blaðinu hugástum. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
RICHARD STALLMANN AÐGERÐA-
SINNI ER 55 ÁRA.
„Það ætti að þvinga allar
ríkisstjórnir til að bæta fyrir
brot á mannréttindum.“
Richard Stallman aðgerðasinni
og tölvunörður ræður fólki frá
því að eiga farsíma. Ástæð-
an er að hann telur að hægt sé
að rekja staðsetningu farsíma
sem sé brot á einkalífi.
timamot@frettabladid.is
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Gottskálk Guðjónsson
Álfholti 34b, Hafnarfirði,
sem lést föstudaginn 7. mars, verður jarðsunginn frá
þjóðkirkjunni í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. mars
kl. 13.00.
Guðbjörg Valgeirsdóttir
Guðjón Gottskálksson Merlinda Eyac
Guðbjörn Jósúa Guðjónsson
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Unnur Þorgeirsdóttir
Bogahlíð 9, Reykjavík,
sem lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti,
laugardaginn 8. mars, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju mánudaginn 17. mars kl. 13.00.
Þorgeir Sigurðsson Þórunn J. Gunnarsdóttir
Sigurður Ingi Sigurðsson Guðfinna Thordarson
Rósa Karlsdóttir Fenger John Fenger
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim er
sýndu okkur samúð og hlýhug vegna and-
láts og útfarar ástkærs eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Einars B. Sturlusonar
skipasmíðameistara
frá Hreggsstöðum.
Sérstakar þakkir til Sigurðar Helgasonar læknis og
starfsfólks á Hrafnistu í Reykjavík fyrir einstaka alúð
og umönnun.
Kristín Andrésdóttir
Valgerður Björk Einarsdóttir
Guðný Alda Einarsdóttir
Þórdís Heiða Einarsdóttir
Sturla Einarsson Freyja Valgeirsdóttir
Andrés Einar Einarsson Halldóra B. Brynjarsdóttir
Guðrún Björg Einarsdóttir Helgi G. Bjarnason
María Henley Kristján Ólafsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, dóttir
og amma,
Rannveig Baldursdóttir
Einilundi 8e, Akureyri,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri sunnudaginn
9. mars. Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
mánudaginn 17. mars kl. 13.30.
Baldur Guðnason
Þórarinn Guðnason Kristrún Sigurgeirsdóttir
Birkir Hólm Guðnason Fríða Dóra Steindósdóttir
Hólmfríður Guðnadóttir Halldór Kristjánsson
Sveinbjörg H. Wíum og ömmubörn.
Elskuleg fósturmóðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hólmfríður Þóroddsdóttir
Hjúkrunarheimilinu Skjóli,
sem lést mánudaginn 10. mars sl. verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju á morgun, 17. mars, kl. 13.00.
Jóhanna Gunnþórsdóttir Brynjólfur Lárentsíusson
Sveinmar Gunnþórsson Kristín Pálsdóttir
Þórey Skúladóttir Jón V. Guðjónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar
Svava Sæunn
Guðbergsdóttir
til heimilis að Hrafnistu, Reykjavík, áður
Álftamýri 46,
lést þann 10. mars á Landspítalanum Hringbraut.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Davíð Vilhjálmsson
Svanhildur Vilhjálmsdóttir
Sæunn Guðjónsdóttir
Hanna Guðjónsdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
Jóns Guðlaugssonar
frá Vík í Mýrdal, Hraunbæ 103, Reykjavík.
Margrét Ögmundsdóttir
Guðrún Jónsdóttir Oddur Þórðarson
Jóna Jónsdóttir Pétur Eiríksson
Guðlaugur G. Jónsson Sigríður Ingunn Ágústsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.