Fréttablaðið - 20.03.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Leikkonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir á það til
að gefa sjálfri sér frumsýningargjöf. Hún keypti
sér langþráðan leðurjakka í síðustu viku í tilefni
af frumsýningu Heiðarinnar.
Ísgerður
sýningunni. Jakkinn er renndur, með hettu og stroffi
á ermunum og ég er hæstánægð með hann,“ segir
Ísgerður.
Fyrir utan leðurjakk
Jakki í frumsýningargjöf
Nýi leðurjakkinn er renndur, með hettu og stroffi á ermunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SKRAUT OG GJAFIRFermingargjafir þarf stundum að kaupa á síðustu stundu svo og fylgihluti við sparifötin. Sem bet-ur fer eru oft einhverjar verslanir opnar um páskana þar sem þess háttar fæst.
TÍSKA 2
GULT Á PÁSKABORÐIÐServíettur, dúkar og bakkar með páska-legum myndum eða í gulum lit lífga upp á páskaborðið og koma öllum í hátíðarskap.
HEIMILI 4
NOSE & BLOWSOfnæmisprófuð lína sem er sérstaklega hönnuð fyrir kvefaðalitla nebba. Mild formúla sem svíður ekki undan.Nebbaþurrkur og nebbakremBlautklútar sem hjálpa til við að hreinsa nefgöngin. Inniheldur rakagefandi B5 vítamín og náttúrulegt mentol til þess að auðvelda öndun. Inniheldur hvorki litarefni né alkohól.Kremið inniheldur ilmkjarnablöndu af piparmyntu og eucalyptus auk nornaheslis sem ermjög græðandi.
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is
Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
20. mars 2008 — 79. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ÍSGERÐUR ELFA GUNNARSDÓTTIR
Kaupir stundum gjafir
handa sjálfri sér
tíska heimili páskar
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÍÞRÓTTIR Úthlutað var í fyrsta
skipti úr ferðasjóði íþróttafélaga
á þriðjudaginn. Þrjátíu milljónum
var úthlutað í fyrstu umferð en sú
upphæð hækkar um helming árið
eftir.
Ungmenna- og íþróttasamband
Dalamanna og Norður-Breiðfirð-
inga fékk lægsta styrkinn að
þessu sinni eða 7.613 krónur.
Styrkurinn verður notaður í rekst-
ur Glímufélags Dalamanna en
með félaginu keppir meðal annars
glímudrottning Íslands, Svana
Hrönn Jóhannsdóttir.
Formaður glímufélagsins segir
að styrkurinn dugi líklega fyrir
bensíni frá Búðardal til Blönduóss
eða í kringum 120 kílómetra.
- hbg / sjá síðu 30
Lítill styrkur til Dalamanna:
Til Blönduóss
fyrir peningana
GLÍMUDROTTNINGAR Þær Svana Hrönn
og Sólveig Rós Jóhannsdætur glíma fyrir
Glímufélag Dalamanna. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
TÆKNI Geimráð lýðræðislega kjör-
inna fulltrúa hefur verið sett á
laggirnar í íslenska sýndarheim-
inum EVE Online. Spilarar geta
þannig verið í beinu sambandi við
hönnuði leiksins og haft áhrif á
framtíð hans. EVE er fyrsti sýnd-
arheimurinn með lýðræðislegt
fyrirkomulag af þessu tagi.
Á kjörskrá eru allir spilarar
EVE, um 230 þúsund manns. Til
samanburðar voru rúmlega 221
þúsund Íslendingar á kjörskrá í
síðustu alþingiskosningum.
„Það er erfitt
að skilgreina
nákvæmlega
hvaða vald þetta
ráð mun hafa,
en ef spilarar
eru búnir að
kjósa sér full-
trúa og þeir
koma með góðar
hugmyndir þá
værum við ótta-
legir kjánar að
hlusta ekki á þá,“ segir Hilmar
Veigar Pétursson, framkvæmda-
stjóri CCP, sem framleiðir leikinn.
„Þetta fyrirkomulag er vissulega
enn þá í mótun, en eftir því sem
það þróast held ég að ráðið muni
hafa heil mikið að segja um fram-
tíð leiksins.“
Geimráðið samanstendur af níu
fulltrúum spilara og fimm vara-
fulltrúum. Þeir sitja í sex mánuði í
senn og verða kjörnir í kosningum
sem fara fram 5. til 19. maí. Frest-
ur til að skila inn tilnefningum
rennur út á kjördag. - sþs
Geimráð lýðræðislega kjörinna fulltrúa sett á fót í sýndarheiminum EVE Online:
Fleiri kjósa í EVE en til Alþingis
Kristur gaf lífi
manna nýja
merkingu
Kristinn Ólason
Skálholtsrektor
heldur erindi
um trúmál á
Akureyri.
TÍMAMÓT 20
Uppgangur í Asíu
„Asíulöndin hafa af eigin rammleik
náð miklum árangri síðan 1960,“
skrifar Þorvaldur Gylfason, sem
stiklar á stóru.
Í DAG 16
Opið 13–18 í dag
Veisluþjónusta - Hlaðborð - Pinnaveisla - Sushi - Tilboð
Opið um páskana. Bjóðum kínverskar smákökur
með öllum kvöldmat
SLÆMT FERÐAVEÐUR Í byrjun
ferðahelgarinnar, sem páskahelgin
er oft, er ferðaveður slæmt, snjó-
koma, skafrenningur og rok verður
víða um land og má búast við
umferðartöfum af þeim völdum. Á
morgun verður mun betra veður.
VEÐUR 4
1
-4
-2
-2
-2
Góður
gestur?
Skiptar skoðanir
eru um komu
James Blunt
til Íslands.
FÓLK 28
MAGNÚS ÞÓR JÓNSSON
Ný plata í vinnslu
Fylgdist með afhendingu tónlistar-
verðlaunanna á netinu.
FÓLK 38
FÓLK Kóreska fyrirtækið Samsung
notaði þrjátíu íslensk vöðvabúnt
til að auglýsa nýjustu afurð sína,
loftkælingu. Auglýsingin fer í
loftið í Kóreu hinn 4. apríl og
skartar einni skærustu popp-
stjörnu kóresku þjóðarinnar í
aðalhlutverki. Filmus hafði veg og
vanda af tökunum og fóru þær
fram í nágrenni við Vatnajökul.
„Þetta var kóresk nákvæmni af
bestu gerð; allir í beinni línu og
hreyfingarnar þaulæfðar,“ segir
Hlynur Áskelsson, sem tók þátt í
auglýsingunni.
- fgg / sjá síðu 38
Hárlaus íslensk vöðvatröll:
Auglýsa kóreska
loftkælingu
Grindavík á lífi
Grindavík á enn
möguleika á að
komast í úrslit Ice-
land Express-deildar
kvenna þar sem
Keflavík bíður.
ÍÞRÓTTIR 32
VIÐSKIPTI „Ég held að ástandið sé miklu alvarlegra
en fólk gerir sér grein fyrir, og átta, níu prósenta
verðbólga held ég að sé óskhyggja miðað við
stöðuna eins og hún er,“ segir Finnur Árnason,
forstjóri Haga. Hann segir þegar búið að hækka
matvöruverð, bæði á innlendri og erlendri vöru.
Hann segist því miður eiga von á miklum hækkun-
um til viðbótar á næstunni.
Nýir bílar eru einnig á meðal þess sem hefur
hækkað í verði undanfarna daga. Að sögn Andr-
ésar Jónssonar, kynningarstjóra markaðsdeildar
B&L, hefur verðið nú þegar verið hækkað um
fimm til sjö prósent. „Og við gerum ráð fyrir að
hækka aftur eftir páska ef ekkert breytist,“ segir
hann. Dæmi eru um að kaupverð bíla hafi hækkað
á meðan þeir voru á leið til landsins. Andrés segir
að þó muni notaðir bílar einnig hækka í verði við
breytingarnar og fólk muni því ekki finna eins
mikið fyrir hækkunum.
Önnur bílaumboð gera einnig ráð fyrir að hækka
verð eftir helgina. „Við höfum verið að ræða
verðhækkanir hjá okkur og munum setja endan-
lega ákvörðun um verðhækkun inn í kerfið hjá
okkur um helgina,“ segir Kristinn Gústaf Bjarna-
son, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs
Toyota. Hann vill ekki nefna neina tölu, en segir
augljóst að til hækkana komi.
Þá hafa tölvuleikir hækkað talsvert í verði á
síðustu dögum. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins
eru tölvuleikir í BT að meðaltali þrettán prósent-
um dýrari nú en í byrjun mánaðar.
- þeb / sjá einnig síður 4 og 11
Holskefla hækkana
skollin á þjóðinni
Matvara, bílar og tölvuleikir eru meðal þess sem þegar hefur hækkað í verði
vegna gengislækkunar krónunnar síðustu daga. Ástandið er alvarlegra en fólk
gerir sér grein fyrir og meiri hækkanir eru framundan, segir forstjóri Haga.
HILMAR VEIGAR
PÉTURSSON
SIRKUS RIFINN Byrjað er að rífa litskrúðuga húsið við Klapparstíg sem áður hýsti hinn sívinsæla Sirkus. Allt kapp er þó lagt á það
að bjarga sem mestu af innanstokksmunum þessa sögufræga skemmtistaðar. - Sjá síðu 38 FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN