Fréttablaðið - 22.04.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
SKOÐANAKÖNNUN Skiptar skoðanir
eru á heimsókn Þorgerðar
Katrínar Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra til Peking í ágúst,
þar sem hún ætlar að vera við-
stödd setningar athöfn Ólympíu-
leikanna. Samkvæmt nýrri skoð-
anakönnun Fréttablaðsins segja
53,7 prósent að fulltrúi íslensku
ríkisstjórnarinnar eigi að vera
viðstaddur setningarathöfnina, en
46,3 prósent eru því mótfallin.
Stuðningur við för Þorgerðar er
meiri á höfuðborgarsvæðinu en á
landsbyggðinni. Þá eru fleiri
karlar en konur sem vilja ráðherr-
ann við setningarathöfnina.
Mestur er stuðningurinn við för
Þorgerðar meðal sjálfstæðisfólks,
rétt tæplega sjötíu prósent, en
minnstur stuðningur meðal
Vinstri grænna; 67,5 prósent
þeirra vilja ekki að fulltrúi ríkis-
stjórnar fari utan. Skipting stuðn-
ingsfólks annarra flokka er svipuð
meðaltalinu.
Hringt var í 800 manns 19. apríl
og skiptust svarendur jafnt eftir
kyni og hlutfallslega eftir búsetu.
Spurt var; Á fulltrúi íslensku ríkis-
stjórnarinnar að vera viðstaddur
setningarathöfn Ólympíuleikanna
í Peking? 83,8 prósent tóku afstöðu
til spurningarinnar. - ss
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Ketilbjöllur voru notaðar fyrr á tímum til að
vigta korn á ökrum Rússland Vha á
Kraftur í ketilbjöllu
HNLFÍ í Hveragerði verður með heilsusamlegt hádegisverðarhlaðborð á sumardaginn fyrsta og er öllum velkomið að koma. Verð fyrir fullorðna er 1.350 krónur en frítt er fyrir börn yngri en tólf ára. Gestum býðst síðan að hafa það gott í nýju baðhúsi stofnunarinnar án endurgjalds.
Heilsukostur – Kökur og eftir réttir heitir námskeið sem kennt verður hjá Manni lifandi í dag, þriðjudaginn 22. apríl, frá klukkan 18 til 20. Auður Ingibjörg Konráðsdóttir kennir hvernig á að töfra fram holla en góða eftirrétti án mikillar fyrir-hafnar og gefur uppskriftir.
Hjúkrunarþjónusta er í boði í tveimur verslunum Lyfju, í Lágmúla og á Smáratorgi. Hægt er að leita ráðgjafar um val og notkun á allri almennri hjúkrunar-vöru og ýmiss konar stoðvöru en í Lágmúla fást ýmsar hjúkrunar-vörur og hjálpartæki sem Tryggingastofnun ríkisins greiðir niður.
Vala Mörk Jóhannsdóttir segir æfingar með ketilbjöllu skila sér í daglegu amstri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
RN
ÞÓ
R
flutningarÞRIÐJUDAGUR 22. APRÍL 2008
S. 520 2220 www.efnamottakan.is
Við sækjum!
Láttu okkur eyða gögnunum
Einkamál
Spillum ekki framtíðinni
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
0
0
9
0
Halló Norðurlöndaðstoða við flutninga innan Norðurlanda.BLS. 4
30.000
blaðberar
komnir til
landsins
Sími: 512 5000
ÞRIÐJUDAGUR
22. apríl 2008 — 109. tölublað — 8. árgangur
FLUTNINGAR
Ný vefsíða opnuð til að
nýta sendiferðir betur
Sérblað um flutninga
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VALA MÖRK JÓHANNESDÓTTIR
Iðjuþjálfari sem sneri
sér að einkaþjálfun
heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Vilhjálmi Egilssyni svarað
Seðlabankinn gerir upp samkvæmt
sömu reglum og aðrir og þarf ekki
að viðurkenna neina villu eða biðj-
ast afsökunar, skrifar Ingimundur
Friðriksson seðlabankastjóri.
Í DAG 16
Engin fasteignasala í heimi selur fleiri fasteignir en RE/MAX
Dorothea E.
Jóhannsdóttir
Sölufulltrúi
898 3326
dorothea@remax.is
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna
fyrirtækja og skipasali
Ertu að spá í að selja?
Frítt söluverðmat
FRAMÚRSKARANDI SÖLUFULLTRÚAR FRAMÚRSKARANDI ÁRANGUR
Bergsteinn
Gunnarsson
Löggiltur Fasteigna
fyrirtækja og skipasali
OPIÐ LAUGARDAG KL:11-16
VIÐSKIPTI „Það má raunar segja
sjóðnum til hróss að hann lækkaði
vextina ekki eins mikið og hann
hefði í rauninni getað,“ segir
Ingólfur Bender, forstöðumaður
Greiningar Glitnis.
Íbúðalánasjóður lækkaði í gær
vexti á íbúðalánum í 5,2 prósent,
með uppgreiðsluákvæði, og 5,7
prósent án uppgreiðsluákvæðis.
Hallur Magnússon ráðgjafi
segir að sjóðurinn hefði getað
lækkað vextina meira, jafnvel
niður í fimm prósent.
„Íbúðalánasjóður er með þessu
að teygja sig eins og hann getur á
móti Seðlabankanum og hávaxta-
stefnu hans.“ - ikh / Sjá síður 4 og 13
Íbúðalánasjóður lækkar vexti:
Gat lækkað meira
EFNAHAGSMÁL Forysta Alþýðusam-
bands Íslands gekk á fund forsætis-
ráðherra og utanríkisráðherra í
gærmorgun til að fara yfir stöðuna
í efnahagsmálum þjóðarinnar. Geir
H. Haarde forsætisráðherra segir
að á fundinum hafi verið farið vítt
og breitt yfir efnahagsmálin og
þróunina frá því að kjarasamning-
ar voru gerðir.
„Þetta var mjög jákvæður og
góður fundur,“ segir Geir, sem
telur verkalýðshreyfinguna skilja
stöðuna mæta vel. „Það hafa orðið
gríðarlegar og óvæntar breytingar
frá því að kjarasamningar voru
gerðir.“
„Þetta var ágætur fundur,“ segir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra. „Við ræddum meðal
annars um það að halda breiðari
samráðsfund á næstunni vegna
stöðunnar sem upp er komin.“
Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ,
segir að á fundinum hafi verið
„tekinn Eldhúsdagur um þessa
döpru stöðu í efnahagsmálum og
menn sammæltust um að bera sig
þétt saman í framhaldinu“.
Grétar á von á því að inn í sam-
ráðið komi fulltrúar Samtaka
atvinnulífsins og hugsanlega fleiri.
„Við vorum upplýst um að í far-
vatninu er fundur í næstu viku með
þessum hópi, sem ríkisstjórnin fór
af stað með síðastliðið sumar. Auk
okkar eru í honum opinberu
félögin, Samtök atvinnulífsins og
sveitar félögin,“ segir hann.
Grétar býst ekki við að mikið
gerist fyrr en eftir þann fund. „Þá
skýrist kannski betur hvaða stefnu
málið tekur, hvort víðtækt samráð
fer í gang eða hvernig að málinu
verður staðið. “
Grétar bendir á að hvorki ríkis-
stjórnin né verkalýðshreyfingin
hafi töfralausnir við vandanum í
efnahagsmálunum. „En við höfum
engu að síður í ljósi reynslunnar
trú á svona samráði. Síðast þegar
reyndi mikið á í efnahagsmálunum
2001-2002 skilaði það mjög góðum
árangri, svo að ég tali nú ekki um
þjóðarsáttina 1990, þannig að sam-
ráð með þessum hætti hefur alltaf
skilað samfélaginu góðum árangri.
Vandinn er mikill og ekki auðvelt
að átta sig á hvað er til ráða.“
- ghs / - bþs
Samráð verkalýðsins
og ríkisstjórnar hafið
Forysta Alþýðusambands Íslands var kölluð á fund ríkisstjórnarinnar í gær-
morgun. Samráðsnefndin frá því í fyrra tekur upp þráðinn í næstu viku.
Skoðanakönnun Fréttablaðsins um för á setningarathöfn Ólympíuleikanna:
Helmingur styður heimsókn
Þorgerðar Katrínar til Peking
Á fulltrúi íslensku ríkisstjórnar-
innar að vera viðstaddur setningar-
athöfn Ólympíuleikanna í Peking?
Já
53,7%
Nei
46,3%
Skv. skoðanakönnun Fréttablaðsins
19. apríl 2008.
MÓTMÆLASTAÐA VIÐ HÉRAÐSDÓM Félagar í samtökunum Saving Iceland efndu í gær til mótmæla við Héraðsdóm Reykjavíkur
þar sem mál gegn Ólafi Páli Sigurðssyni, stofnanda samtakanna, var tekið fyrir. Þar er Ólafur Páll sakaður um eignaspjöll á
lögreglubifreið á mótmælasvæði á Kárahnjúkasvæðinu en mótmælendur segja lögreglumenn hafa ekið á Ólaf. Nánar á síðu 6.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Veðramót til Moskvu
Kvikmynd Guðnýjar
Halldórsdóttur
verður sýnd á
kvikmyndahátíðinni
í Moskvu.
FÓLK 24
Vínyllinn í tísku
á ný
Íslenskar hljóm-
sveitir gefa
plötur sínar út á
vínyl.
FÓLK 24
FLOTT NYRÐRA Í dag verða
austan 8-15 m/s syðst á landinu,
annars hægari. Bjart veður norðan
til og vestan, annars skýjað og sums
staðar væta allra syðst. Hiti á bilinu
5-12 stig að deginum.
VEÐUR 4
7 10
8
9
9
FORNLEIFAR Bein sem talið er vera
rifbein af manni fannst á sunnu-
dag á Fjallaskaga í Dýrafirði.
„Þetta stóð út úr bakka, þar sem
sjór hefur brotið af landi, þegar
ég sá þetta,“ segir Árni Þór
Helgason stálsmiður á Ísafirði.
Beinið hefur nú verið sent
suður til frekari rannsókna en þó
að ekkert sé sannað enn um
upprunan eru kenningarnar þegar
komnar á flug fyrir vestan að
sögn Árna Þórs. „Menn telja
jafnvel að þetta geti verið af
Spánverja en Spánverjavígin áttu
sér stað hér um slóðir snemma á
17. öld,“ segir hann.
„Ég var hins vegar alveg
grunlaus þegar ég fann þetta og
taldi þetta bara vera af einhverri
kind,“ bætir hann við. - jse
Mannabein í Dýrafirði:
Bein á vígaslóð
BEINIÐ FRÁ DÝRAFIRÐI Kenningar eru
uppi um að beinið sé úr Spánverja sem
veginn hafi verið á 17. öld.
MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON
2-0 fyrir Keflavík
Keflavíkurliðið er
komið í lykilstöðu í
einvíginu um Íslands-
meistaratitilinn í
körfuknattleik eftir
frábæran sigur í
Fjárhúsinu.
ÍÞRÓTTIR 26
VEÐRIÐ Í DAG