Fréttablaðið - 22.04.2008, Blaðsíða 22
Pökkun og flutningar, öðru
nafni Propack, sérhæfir sig í
pökkun og frágangi á búslóð-
um til flutnings innanbæjar,
milli landshluta eða landa.
Fyrirtækið sér um allt sem
búslóðaflutningum viðkemur
hvort sem það er að meta um-
fang búslóðar, gera verðtilboð,
pakka niður búslóð eða taka
upp úr kössum á áfangastað.
„Við pökkum hverju sem er
niður, hvort sem það eru bækur,
föt, gleraugu og svo framvegis,“
segir Viðar Pétursson, pökkunar-
sérfræðingur hjá fyrirtækinu
Propack. „Eigandinn þarf í raun
ekki að vera á staðnum og oft er
hann það ekki. Sjáðu til dæmis
fyrir þér einbýlishús, þar sem
maðurinn er að vinna og konan
ein heima með þrjú eða fjögur
börn. Hún hefði varla ráðrúm að
pakka búslóðinni niður, sérstak-
lega ekki þungum hlutum, og
annast börnin. Þar komum við hjá
Propack til hjálpar.“
Viðar segir flutninga vandmeð-
farna þar sem vel verði að ganga
frá búslóð svo hún skemmist
ekki. „Það þarf að gera þetta rétt,
því ekki vill maður fá búslóðina
í klessu þegar á leiðarenda er
komið, hvort sem endastaður er
Hólmavík eða Bonn.“
Propack sér um að senda bú-
slóðir til útlanda þar sem erlendir
samstarfsaðilar fyrirtækis-
ins taka á móti þeim. Eins tekur
fyrirtækið við búslóðum frá út-
löndum, leysir þær úr tolli og
annast alla pappírsvinnunna sem
því fylgir.
Inntur eftir því hvort einhverj-
ar nýjungar hafi orðið í búslóða-
flutningum milli landa síðustu ár
segir Viðar svo ekki vera. „Helsta
nýjungin sem mér dettur í hug
er meiri skriffinnska í kring-
um flutninga. Skjalagerðin er að
þyngjast og tollafgreiðsla erlend-
is og hérlendis er tímafrekari
en áður. Það er til dæmis orðið
miklu strangara að senda vörur
til Bandaríkjanna og ganga þarf
frá öllum pappírum miklu fyrr en
gert hefur verið.“
Að sögn Viðars tryggja fag-
mannleg vinnubrögð í flutning-
um það að búslóðin komist heil til
skila og er meðal annars nauðsyn-
legt að tryggja búslóðina. Hann
segist hafa heyrt ýmsar hrakfalla-
sögur af flutningum þar sem fólk
annaðist sjálft pökkun og raðaði til
dæmis ekki rétt í gámana þannig
að búslóðin varð fyrir skemmd-
um. „Maður hefur líka heyrt sögur
af fólki sem pakkar sjálft og ligg-
ur svo í kjölfarið vikum saman
með einhver meiðsl; fólk ætlar sér
kannski að bera upp ísskápinn eða
ömmuskenkinn eftir fimmtán ára
skrifstofustörf og festist síðan í
baki vikum saman.“ - nrg
22. APRÍL 2008 ÞRIÐJUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fl utningar
Viðar Pétursson, starfsmaður hjá Propack, segir mikilvægt að vanda vel til verka við
pökkun og flutning á búslóðum svo þær verði ekki fyrir hnjaski. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
Rétt líkamsstaða og réttur út-
búnaður skipta höfuðmáli í vel
heppnuðum flutningum. Gott er
að nota vinnuvettlinga við mik-
inn burð og klæðast skóm með
stáltá. Með því má forða tá- og
fótbroti ef hlassið er þungt og
fellur úr höndum. Þá er mikil-
vægt að passa vel upp á bakið
í flutningum; bogra ekki yfir
hlutunum heldur beygja sig í
hnjám og krjúpa þegar lyfta á
þungum kössum og húsmunum,
en það jafnar átak og minnkar
álag á bakið. Útkoman verður
mun ánægjulegri flutningur og
ánægðari kroppur eftir erfiðið.
Flutt með gát
og fyrirhyggju
Forðast má þursabit og bakmeiðsli
með því að beygja sig rétt í flutn-
ingum.
Frá heimili til heimilis
Að ýmsu þarf að huga við bú-
slóðarflutninga, meðal annars að
verða sér úti um góða kassa. Þá
getur verið heillaráð að komast
yfir sterkbyggða kassa sem má
nota aftur og eins geyma hluta
af búslóð í um ótiltekinn tíma.
Plastkassar eru kjörnir til
þess en þá er meðal annars
hægt að nálgast í IKEA og eins
er hægt að fá sérstaka geymslu-
kassa í Kassagerðinni.
Eins er gott að flokka hluti í
kassa eftir einstaka herbergjum
og merkja innihald og herbergi
utan á kassa, til dæmis áhöld-
eldhús og þar fram eftir götum.
Gott getur verið að merkja
sérstaklega kassa með brot-
hættu innihaldi og gæta þess
að setja ekki aðeins þunga hluti
í einn kassa og létta í annan
heldur dreifa þungum hlutum í
nokkra kassa, til að létta undir
með flutningamönnum.
Þá er sniðugt að safna dag-
blöðum í nokkurn tíma fyrir bú-
slóðaflutning enda pappírinn
fljótur að hverfa þegar verið er
að pakka ofan í kasssa.
Pakkað
og merkt
Máli skiptir að velja sér góða kassa
en fallegt útlit skemmir heldur ekki
fyrir og getur verið til prýðis.
Flutningur.is er ný vefur sem
gerir bílstjórum kleift að nýta
ferðir sínar til hins ýtrasta. Tví-
burabræðurnir Stefán Halldór
og Kristján Árni Kristjánssynir,
sem standa að verkefninu,
hafa það að leiðarljósi að með
síðunni geti allir Íslendingar
nýtt sér betur ferðir sendibíl-
stjóra sem flakka landshorna
á milli.
Flutningur.is er þjónusta með
tvenns konar hlutverk. Annars
vegar geta bílstjórar skráð inn
ferðir á síðunni þegar þeir eru
með tóman bíl á heimleið og geta
boðið þá ferð á niðursettu verði.
Hins vegar getur almenningur
sent inn fyrirspurn eða ferða-
beiðni í gegnum síðuna sem reynt
verður að uppfylla.
„Við skulum segja að þú sért
bílstjóri og búinn að skrá þig
þarna inn,” segir Stefán. „Þá er
þitt símanúmer inni og allar upp-
lýsingar um þig. Þú skráir ferð
sem þú ert að fara og að þú losnir
kannski á Akureyri á morgun. Ef
einhver á Akureyri vill nýta þig
á heimleiðinni til Reykjavíkur,
spyrst viðkomandi fyrir um þig
á vefnum og bílstjórinn fær SMS-
skilaboð með símanúmeri kúnn-
ans og ferðina sem hann spurði
um. Þá er þetta orðið persónulegt
og bílstjórinn kominn í beint sam-
band við kúnnann.“
Stefán segir algjört aukaatriði
hvort kúnninn þurfi að láta flytja
fyrir sig bretti milli landshluta
eða búslóð til Noregs. Allt sé inni
í myndinni og aðalatriðið að bíl-
stjórar séu ekki að aka með tóma
bíla. „Ef ég fengi til dæmis flutn-
ing til Egilsstaða, þá set ég inn á
heimasíðuna flutning frá Egils-
stöðum og heim. Þá er ég að nýta
ferðina til baka, og þar af leið-
andi er sú ferð seld á kostnaðar-
verði. Nú eru allar bensínstöðvar
komnar með internet, svo það geta
allir farið inn á netið, uppfært og
tékkað. Þetta er allt orðið svo dýrt
hérlendis að síðan hlýtur að vekja
eftirtekt.“
Kristján, tvíburabróðir Stefáns,
vonast einnig til þess að síðan veki
verðskuldaða athygli. „Verði þessi
síða vinsæl meðal almennings þá
er viðbúið að einyrkjar láti í aukn-
um mæli vita af ferðum sínum.“
Hann bendir á að dæmigerð aug-
lýsing bílstjóra gæti hljóðað ein-
hvern veginn svona: „Er að fara
norður með vörur, losna fyrir
norðan, get tekið vörur til baka.“
Svo bætir hann við: „Ég fór til
dæmis með tóman bíl til Horna-
fjarðar að sækja vörur. Ég hefði
alveg viljað fara með vörur austur
í leiðinni fyrir lítið, bara til að fá
eitthvað upp í olíukostnaðinn. En
svona er þetta blessaða líf!”
- nrg
K & S sf. er með ellefu bíla. Þar af eru fimm litlir bílar og sex stærri. Af þeim stærri
eru fimm með alopnunarkassa; þrír þeirra tekið allt að fimmtán tonn og tveir geta
tekið níu tonn. Sjötti stóri bíllinn er kranabíll, sem er hentugur í útkeyrslu á hellum,
jarðvegi og fleiru. MYND/FLUTNINGUR.IS
Tvíburabræðurnir Stefán Halldór og Kristján Árni Kristjánsson reka flutningafyrirtækið K & S sf. og standa jafnframt á bak við
heimasíðuna flutningur.is. MYND/RÓBERT HAFSTEINSSON
Ferðir betur nýttar en áður