Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 2
2 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
Sveinn, leit Abbas við hjá þér?
„Nei, en ég kíkti á hann á Bessa-
stöðum. En hann er alltaf velkominn
í heimsókn til mín.“
Mahmoud Abbas, forseti Palestínu-
manna, var í heimsókn á Íslandi á þriðju-
dag. Sveinn Rúnar Hauksson er formaður
félagsins Ísland-Palestína.
VIÐSKIPTI „Vinnan er langt komin
og henni lýkur innan tíðar,“ segir
Kristinn Hallgrímsson hæstarétt-
arlögmaður en hann er formaður
skilanefndar eignarhaldsfélags
Samvinnutrygginga. Nefndin
vinnur að slitum á Samvinnu-
tryggingum og verður eignum
félagsins skipt á milli eigenda
félagsins. Rétt á greiðslum eiga
þeir sem tryggðu hjá félaginu á
árunum 1987 og 1988 en samtals
eru það rúmlega fimmtíu þúsund
einstaklingar.
Upphaflega átti að ljúka vinnu
við slitin á síðasta ári en vinnan
reyndist flóknari og umfangs-
meiri en menn höfðu reiknað með
í fyrstu og því tafðist málið.
Eignir og skuldbindingar voru
fluttar yfir í Gift ehf. í fyrra.
Eignir félagsins eru fyrst og
fremst í fjármálafyrirtækjum,
meðal annars Kaupþingi, og nema
þær tugum milljarða. - mh
Slit á Samvinnutryggingum:
Skilanefnd að
ljúka störfum
LÖGREGLUMÁL Forráðamenn Bygg-
ingafélags námsmanna (BN) munu
fara fram á opinbera rannsókn
efnahagsbrotadeildar Ríkislög-
reglustjóra á tilteknum þáttum í
rekstri félagsins á næstu dögum.
Þetta er gert í kjölfar ítarlegrar
úttektar endurskoðunar- og ráð-
gjafarfyrirtækisins KPMG á
rekstri BN. Málið verður rannsak-
að nokkur ár aftur í tímann.
Byggingafélag námsmanna er
sjálfseignarstofnun með sjálf-
stæðan fjárhag. Það annast kaup
og uppbyggingu húsnæðis til
rekstrar stúdentagarða í þágu
námsmanna.
Það var í kjölfar skyndilegrar
afsagnar og brotthvarfs fyrrver-
andi stjórnarformanns bygginga-
félagsins í desember sem núver-
andi forráðamenn félagsins fengu
KPMG til að gera úttekt á rekstri
BN. Í febrúar var svo ráðningar-
samningi við framkvæmdastjóra
félagsins rift.
Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins beinast sjónir manna
meðal annars að fyrirtækjum sem
fyrrverandi stjórnendur áttu. Þar
voru hvorki til staðar starfsmenn
né húsnæði, en BN mun hafa verið
í viðskiptum við þessi fyrirtæki
varðandi ýmsa þætti starfsemi
sinnar. Þá leikur grunur á að ekki
hafi farið fram útboð á öllum fram-
kvæmdum BN. Fleiri þættir á
starfstíma fyrrverandi stjórnenda
eru taldir þarfnast nánari athug-
unar. Ýmislegt þykir benda til þess
að ekki hafi verið farið að þeim
reglum sem félagið á að starfa
eftir, til að mynda varðandi inn-
kaupastefnu, á fyrrnefndu tíma-
bili. Þar kemur til kasta efnahags-
brotadeildarinnar, sem þegar mun
vera kunnugt um málið, þótt það
sé ekki komið þangað formlega.
Sigurður Grétar Ólafsson, núver-
andi stjórnarformaður BN, stað-
festi að KPMG hefði unnið úttekt á
rekstri félagsins að beiðni forráða-
manna þess. Henni væri ekki end-
anlega lokið. Hann neitaði hins
vegar alfarið að tjá sig um þær nið-
urstöður sem nú liggja fyrir eða
um einstök atriði málsins yfirleitt.
„Þær eru trúnaðarmál,“ sagði
hann, en kvaðst vilja undirstrika
að rekstur félagsins stæði fjár-
hagslega traustum fótum.
Niðurstöður úttektar KPMG
voru kynntar á aukafundi fulltrúa-
ráðs félagsins í mars. Ráðið er
æðsta stjórn félagsins.
jss@frettabladid.is
Opinber rannsókn á
byggingafélagi
Farið verður fram á opinbera rannsókn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglu-
stjóra á rekstri Byggingafélags námsmanna á næstu dögum. Þetta gera núver-
andi forráðamenn félagsins í kjölfar úttektar KPMG á rekstri þess.
BÓLSTAÐARHLÍÐ Bygginga-
félag námsmanna hefur
byggt íbúðir sem leigðar
eru stúdentum bæði í
Bólstaðarhlíð og víðar á
höfuðborgarsvæðinu.
SVEITARSTJÓRNARMÁL Nýr meiri-
hluti var ekki myndaður í
Bolungarvík í gær þrátt fyrir
þriggja klukkustunda fund A-lista
og Sjálfstæðisflokks. Ákveðið
hefur verið að hittast aftur annað
kvöld til frekari viðræðna.
Meirihluti A og K lista sprakk á
þriðjudag þegar Anna Guðrún
Edvardsdóttir, oddviti A-lista,
sleit tveggja ára samstarfi. Að
sögn Önnu Guðrúnar er ástæða
samstarfsslitanna umsvif Soffíu
Vagnsdóttur, oddvita K-lista,
Framsóknar og Samfylkingar-
fólks, í atvinnurekstri á staðnum.
Elías Jónatansson, oddviti
Sjálfstæðisflokks, er orðaður við
bæjarstjórastólinn sem Grímur
Atlason hefur setið í undanfarin
tvö ár. - shá
Viðræður í Bolungarvík:
Nýr meirihluti
ekki myndaður
LÖGREGLUMÁL Sýslumaðurinn í Borgarnesi telur mun
líklegra að 8.545 ensk pund í reiðufé sem fundust við
húsleit í íbúð nemanda í viðskiptaháskólanum á
Bifröst séu afrakstur fíkniefnadreifingar, eða ætluð
til að fjármagna innflutning og dreifingu á fíkniefn-
um, heldur en að nemandinn hafi fengið fjármunina
að láni.
Þetta kemur fram í málsgögnum, þar sem sýslu-
maður krafðist úrskurðar um ótakmarkað aðgengi að
upplýsingum um fjármál nemandans. Hann hefur nú
verið rekinn úr skólanum.
Það var í lok febrúar sem fjölmennt lið lögreglu- og
tollgæslumanna leitaði í þremur íbúðum nemenda á
Bifröst. Verðmæti ensku pundanna nemur 1,2
milljónum króna en auk peninganna fundust 0,3
grömm af kókaíni í íbúð mannsins.
Samnemandi mannsins mætti á lögreglustöðina í
Borgarnesi fáeinum dögum eftir húsleitina. Kvaðst
hann eiga fíkniefnin, sem fundist hefðu við húsleitina.
Þá fullyrti þriðji maður að hann hefði lánað nemand-
anum fyrrverandi 8.000 ensk pund.
Kröfu sýslumanns um aðgengi að fjármálum
mannsins var hafnað, bæði í héraði og Hæstarétti. - jss
VIÐSKIPTAHÁSKÓLINN Á BIFRÖST Lögregla leitaði í þremur
íbúðum nemenda á Bifröst í lok febrúar. Kannabisefni, amfet-
amín og kókaín í neysluskömmtum fundust í íbúðunum, auk
1,2 milljóna í enskum pundum.
Fíkniefni og fjármunir sem fundust við húsleit hjá nemanda á Bifröst:
Rúm milljón í enskum pundum
talin ágóði fíkniefnasölu
FJÖLMIÐLAR Ólafur Þ. Stephensen
hefur verið ráðinn ritstjóri
Morgunblaðsins og aðalritstjóri
útgáfufélagsins Árvakurs. Ólafur
tekur við ritstjórastarfinu af
Styrmi Gunnarsson, sem lætur af
störfum 2. júní, en hann hefur
verið ritstjóri Morgunblaðsins
frá árinu 1972. Hann hóf störf á
ritstjórn Morgunblaðsins 1965.
Gunnhildur Arna Gunnarsdótt-
ir verður næsti ritstjóri 24 stunda
en hún hefur verið fréttastjóri
blaðsins frá árinu 2006. Hún var
áður blaðamaður á Fréttablaðinu.
- mh
Breytingar hjá Árvakri:
Ólafur tekur
við af Styrmi
DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi í gær
liðlega fertugan mann, Böðvar Þór-
hallsson, í fjögurra ára fangelsi,
fyrir kynferðisbrot gegn sex stúlk-
um. Hæstiréttur þyngdi þannig
dóm héraðsdóms sem hafði dæmt
manninn í tveggja og hálfs árs
fangavist. Maðurinn var sakfelldur
fyrir misjafnlega gróf kynferðis-
brot gagnvart sex ungum stúlkum.
Brotin voru framin yfir langan
tíma og voru stúlkurnar misgaml-
ar. Elstu brotin voru framin gegn
stúlku sem fædd er 1984, en þau
voru framin á árunum 1988 til 1994.
Brotin gegn stúlku sem fædd er
1987 voru framin árið 1993 eða
1994. Fjórar stúlkurnar voru fædd-
ar 1992 og brotin gegn þeim voru
flest framin árið 2005.
Sumar stúlkurnar fékk maðurinn
til að hafa munnmök við sig, aðrar
fékk hann til fróa sér fyrir framan
hann eða nudda kynfæri hans. Þá
fékk hann tvær stúlknanna til að
skrifa með penna á kynfæri sín.
Hæstiréttur hækkaði miskabæt-
ur til tveggja stúlkna; úr 800 þús-
und krónum í eina milljón og úr 600
þúsund í eina milljón. Maðurinn
var dæmdur til að greiða fimm
stúlkum samtals 3,5 milljónir í
skaðabætur, minnst 300 þúsund
krónur.
Ekki er vitað hvenær maðurinn
hefur afplánun sína. - kóp
Hæstiréttur þyngdi dóm vegna brota gegn sex stúlkum:
Fjögur ár fyrir kynferðisbrot
ÞYNGDI DÓMINN Tvö og hálft ár í hér-
aðsdómi urðu að fjórum í Hæstarétti.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BRASILÍA, AP Björgunarsveitir í
Brasilíu fundu í gær úti fyrir
strönd landsins skærlitar helíum-
blöðrur, sem kaþólski presturinn
Adelir de Carli hafði notað til flugs.
Presturinn hefur þó ekki fundist.
Hann hugðist setja met í
blöðruflugi, spennti þær við sig á
þriðjudag og tókst á loft búinn
fallhlíf og GPS-staðsetningartæki.
Vindurinn hrakti hann hins vegar
af leið og út yfir hafið og var þá
þegar hafin leit að honum.
Presturinn hugðist slá það met
og safna í leiðinni fé til að reisa
hvíldaraðstöðu fyrir vörubílstjóra í
borginni Paranagua. - gb
Brasilískur prestur týndur:
Blöðrur fundn-
ar án prestsins
BLÖÐRUR Í HAFI Ekkert er vitað um
afdrif prestsins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL Þingflokkur Samfylk-
ingarinnar hafnar boðuðum
breytingum á löggæslustarfi á
Suðurnesjum og vill að þær verði
endurskoðaðar frá grunni.
Samkvæmt upplýsingum frá
Lúðvík Bergvinssyni, formanni
þingflokks Samfylkingarinnar, er
verið að leita lausnar á málinu en
ríkisstjórnin hefur samþykkt þær
með fyrirvara um samþykki
þingflokka.
Gangi breytingarnar eftir
verður yfirstjórn löggæslu-,
tollgæslu- og öryggismála á
Keflavíkurflugvelli ekki öll í
höndum lögreglustjórans á
Suðurnesjum eins og nú er. - mh
Löggæsla á Suðurnesjum:
Þingflokkur
leita lausnar
SPURNING DAGSINS