Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 28
28 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: 365 RITSTJÓRAR: Jón Kaldal og Þorsteinn Pálsson AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir, Kristján Hjálmarsson, Trausti Hafliðason og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál). FULLTRÚI RITSTJÓRA: Páll Baldvin Baldvinsson. VIÐSKIPTARITSTJÓRAR: Björgvin Guðmundsson og Björn Ingi Hrafnsson. Fréttablaðið kemur út í 103.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Akureyri og þéttbýlissvæðum á suðvesturhorninu. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. issn 1670-3871 Ég birti dóm um Hagskinnu, Sögulegar hagtölur um Ísland í Morgunblaðinu 21. ágúst 1997 og fór þar fögrum orðum um þetta vel samda og viðamikla rit og höfunda þess, Hallgrím Snorrason, þá hagstofustjóra, og samverka- menn hans. Ég jós verkið lofi í löngu máli. Undir lokin nefndi ég tvö atriði, sem mér fannst, að Hagskinna hefði mátt gera betri skil. Mér fannst vanta rækilegra efni um menntamál, og brást Hagstofan vel við þeirri áskorun. Í annan stað fannst mér „afleitt, að engar opinberar tölur skuli enn vera til í hagskýrslum um þá gríðarlegu eignatilfærslu, sem átt hefur sér stað í skjóli aflakvótakerfisins undanfarin ár. ... Tölur af þessu tagi eru í raun og veru forsenda þess, að menn geti myndað sér skynsamlega skoðun um sum mikilvægustu álitamálin á vettvangi stjórnmálanna. Hvernig eiga menn t.d. að geta tekið afstöðu með eða á móti íhalds- stefnu eða jafnaðarstefnu, ef menn hafa engar haldbærar tölur um jöfnuð og ójöfnuð í samfélaginu af völdum ólíkra stjórnarhátta?“ Bréf milli vina Við og við hef ég ásamt öðrum minnt Hagstofuna á þessa brýningu. Ég skrifaði hagstofu- stjóra 4. maí 2006: „Kæri Hall- grímur. Hvað líður útreikningum Hagstofunnar á Gini-stuðlum fyrir Ísland? Það er tilfinnanlegt, að þessar tölur um tekjuskiptingu skuli enn láta á sér standa. ... Hvað veldur drættinum? Hvað er mikilvægara eins og sakir standa? Kær kveðja, Þorvaldur.“ Hagstofustjóri svaraði daginn eftir og sagði, að sér þætti miður, að vinnan við að gera tekjuraðirn- ar nothæfar hefði ekki skilað árangri, hann væri sammála því, að æskilegt væri, að tekjuskipting- artölur væru reiknaðar fyrir langt tímabil, en það væri enn ekki hægt. Ég sendi síðan hagstofu- stjóra skeyti 25. október 2007 og sagði þar: „Kæri Hallgrímur. Mig langar að marggefnu tilefni að benda þér á bls. 215 í fjárlaga- frumvarpi norsku ríkisstjórnar- innar ... Þar kemur fram, að norska hagstofan hefur tekið saman tölur um tekjuskiptingu í Noregi a.m.k. aftur til ársins 1990 og norska ríkisstjórnin birtir þessar tölur á áberandi stað í eigin skýrslum og leggur út af þeim ... Tölurnar sýna, að tekjuskipting í Noregi hefur færzt talsvert í ójafnaðarátt, en þó hvergi nærri í sama mæli og á Íslandi skv. mælingum ríkisskatt- stjóra og annarra. Ég hef í a.m.k. áratug, ýmist opinberlega eða einkalega, hvatt Hagstofu Íslands og þig til að taka saman svipaðar tölur um Ísland, en þið sýnið samt ennþá engin merki þess, að þið hyggist verða við þeim áskorunum mínum og annarra. ... Aðgerðar- leysi Hagstofunnar hefur valdið skaða, meðal annars með því að gefa ósannindamönnum færi á því að fara með rangt mál og rugla almenning í ríminu, eins og gerðist fyrir kosningar í vor leið. ... Með beztu kveðjum og óskum, Þorvald- ur.“ Kortlagning tekjuskiptingar Snemma árs 2007 hafði Hagstofan loksins birt tvo Gini-stuðla fyrir Ísland 2003 og 2004. Síðan hefur Hagstofan bætt við stuðli fyrir 2005 án þess að kortleggja þróunina aftur í tímann. Tölurnar sýna, að Gini-stuðullinn hækkaði um eitt stig á ári 2003-2005 líkt og Gini-stuðlar ríkisskattstjóra, sem hækkuðu um rösklega eitt stig á ári að jafnaði allt tímabilið 1993- 2006 (hækkun þýðir aukinn ójöfnuð). Samanburður Hagstof- unnar á Íslandi og öðrum löndum 2003-2005 er því marki brenndur, að fjármagnstekjur, sem gerast æ mikilvægari í heildartekjum, eru ekki taldar með til fulls. Þetta skekkir samanburðinn, því að skattar á fjármagnstekjur eru langt undir sköttum á vinnutekjur hér heima öndvert mörgum nálægum löndum, þar sem minna misræmi, ef nokkurt, er í skatt- lagningu fjármagnstekna og vinnutekna. Þess vegna þarf að taka allar tekjur með í reikninginn og reikna dæmið aftur í tímann líkt og ríkisskattstjóri hefur gert til að reyna að gefa rétta mynd af þróun tekjuskiptingarinnar. Sumir stjórnmálamenn og erindrekar þeirra eru viðkvæmir fyrir auknum ójöfnuði, einkum skipu- lögðum ójöfnuði, þar eð þeir vita upp á sig sökina, og þræta fram í rauðan dauðann, þótt staðreyndir málsins blasi við öllu sjáandi fólki. Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gaf 2001 út skýrslu um tekjuskiptingu á Íslandi eftir fimm hagfræðinga: Ásgeir Jónsson, Ástu Herdísi Hall, Gylfa Zoëga, Mörtu Skúladóttur og Tryggva Þór Herbertsson. Skýrslan lýsir stigvaxandi ójöfnuði í skiptingu ráðstöfunartekna að meðtöldum fjármagnstekjum 1993-2000: Gini- stuðullinn hækkaði úr 27 árið 1993 í 33 árið 2000 (bls. 87). Útreikning- ar ríkisskattstjóra vitna með líku lagi um rösklega eins stigs hækkun Gini-stuðulsins á hverju ári að jafnaði 1993-2006 eins og áður sagði og eru í góðu samræmi við skýrslu Hagfræðistofnunar um fyrri hluta tímabilsins. Aukinn ójöfnuður á Íslandi er bláköld staðreynd og á sér skiljanlegar skýringar. Opinberar hagtölur þurfa að spegla veruleikann. Ójöfnuður Enn um misskiptingu Í DAG | ÞORVALDUR GYLFASON UMRÆÐAN Jón Steindór Valdimarsson skrifar um framkvæmdir og atvinnulíf Mannvirkjagerð er mikilvæg uppspretta atvinnu- og verðmætasköpunar og sá þáttur iðnaðar sem vaxið hefur hvað mest. Til mannvirkjagerðar má rekja ríflega 10% verðmætasköpunar og um 16.000 manns starfa við greinina. Vöxtur og viðgangur mannvirkjagerðar skiptir því verulegu máli í þjóðarbúskapnum og það er hagur allra að vel gangi hjá fyrirtækjum innan hennar. Á nýliðnum fundi Samtaka iðnaðarins var fjallað um verklegar framkvæmdir og áhættu undir yfirskriftinni: Hver er sinnar gæfu smiður. Umræð- an þar sýndi glöggt að þeir sem standa í verklegum framkvæmdum eiga við ærinn vanda að etja við núverandi óvissu og sveiflur á markaði. Áhættan er mikil og við bætist að samdráttur er verulegur, a.m.k. á fasteignamarkaði. Þess vegna er það óþolandi að stjórnvöld, með Seðlabanka Íslands í broddi fylkingar, skuli leynt og ljóst nota atvinnugreinina til sveiflujöfnunar og telja það sjálfsagt. Þá virðast þeir háu herrar gleyma þeim fyrirtækjum og starfsfólki sem standa að baki. Nú er Seðlabankinn að reyna að ná niður verðbólgunni og þar sjá menn lausnina í því að kæla fasteignamarkaðinn eins og það er kallað. Með illu skal illt út reka. Nú skal tala markaðinn niður í alkul – sömu menn sem kvarta undan því að óvarlega sé talað um ágæti krónunnar. Þessar aðgerðir stjórnvalda eru óskiljan- legar því aðstæður í efnahagslífinu sjá hjálparlaust til þess að samdráttur verður, ástæðulaust er að ýta undir hann. Útlána- stopp bankanna, háir vextir, verðbólga og gengissveiflur hafa nógu slæm áhrif. Miklu frekar á að reyna að örva markaðinn og vinna gegn of miklum og snöggum samdrætti. SI hafa t.d. bent á að nú sé kjörið tækifæri til þess að fella niður stimpilgjöld að fullu. Þetta er gjaldtaka sem allir eru sammála um að sé úrelt og ósanngjörn. Mannvirkjagerð er því marki brennd að sveiflur í framkvæmdum hafa verið miklar. Það er öllum fyrirtækjum erfitt og því nauðsynlegt að leita allra leiða til þess að draga úr þeim. Stöðugleiki í efna- hagsumhverfi og jafn og öruggur vöxtur er mann- virkjagerðinni jafn mikilvægur og öðrum greinum iðnaðarins og atvinnulífsins alls. Höfundur er framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Með illu skal illt út reka JÓN STEINDÓR VALDIMARSSON Sturluð Samfylking Magnús Þór Hafsteinsson, aðstoðar- maður formanns Frjálslynda flokks- ins, sakar á bloggi sínu Samfylking- una um hræsni í samgöngumálum. Ekki hafi verið innistæða fyrir hinu digurbarkalega slagorði „Burt með sturlaðar samgöngur“ úr síðustu kosningabaráttu, til dæmis bóli ekkert á efndum loforðs um afnám gjalds í Hvalfjarðargöng. Í athuga- semdakerfinu bætir hann við að vanefnd- irnar verði Samfylk- ingunni dýrkeyptar, að minnsta kosti í Norðvesturkjördæmi, þar sem Samfylkingin „galt afhroð“ í fyrravor. Afhroð Guðbjartur Hannesson, þingmaður Samfylkingarinnar, blandar sér í leik- inn og spyr hvernig Magnús skilgreini „afhroð“. Það stendur ekki á svörum hjá Magnúsi: Afhroð er „þegar stærsti stjórnarandstöðuflokkurinn missir tvö prósent í kjördæminu frá 2003 og það með nýjan mann í brúnni. Svoleiðis er það bara“. Það er stórt orð afhroð. Og verður fróðlegt að vita hvaða orða Magnús Þór grípur til ef Samfylkingin skyldi einhvern tímann falla um fjögur prósent? Ósannspá Róttæklingnum Birgittu Jónsdótt- ur bauð líklega ekki í grun hvað dagurinn bæri í skauti sér þegar hún settist niður fyrir framan tölvuna sína klukkan 10.48 í gærmorgun og bloggaði: „Þora löggurnar bara að vera með ofbeldi gagnvart ungu fólki og friðarsinnum? Svo virðist vera. Þeir eru augljóslega skíthrædd- ir við bílstjórana eða kannski eru þeir bara sammála þeirra málstað og fara því um þá silki- hönskum.“ Skemmst er frá því að segja að það reyndist ekki rétt. bergsteinn@frettabladid.isÁ tök lögreglu við flutningabílstjóra og vegfarendur við Norðlingaholt í gær eru forvitnileg á ýmsa kanta. Af viðbrögðum við þeim að dæma virðist almenn samúð með aðgerðum flutningabílstjóra vera að fjara mjög hratt út. Enda er málstaður þeirra orðinn ansi þoku- kenndur. Það sem í upphafi leit út fyrir að vera barátta gegn of háu eldsneytisverði hefur snúist upp í mótmæli bílstjóranna gegn lögum um hvíldartíma. Fyrir vikið hafa aðgerðir þeirra tapað því yfirbragði að þær séu í nafni þjóðarinnar. Þær eru í þröngu eigin- hagsmunaskyni bílstjóranna sem vilja vera lengur á ferð á vegum úti en löggjafinn heimilar. Lög um hvíldartíma kveða á um að bílstjórar stórra flutninga- bíla megi ekki aka lengur en tíu klukkustundir á sólarhring. Þessi ákvæði eru ekki síst í þágu annarra ökumanna og farþega í umferð- inni og eiga að koma í veg fyrir að örþreyttir menn séu undir stýri á margra tonna trukkum á þjóðvegum landsins með tilheyrandi slysahættu. Það er borin von ef Sturla Jónsson og félagar halda að almennur stuðningur sé við að slakað verði á því lagaákvæði. En burtséð frá því hvaða augum hver og einn lítur á aðgerðir bílstjóranna þá vörpuðu atburðir gærdagsins mjög athyglisverðu ljósi á tvær opinberar stofnanir. Annars vegar Ríkissjónvarpið og hins vegar lögregluna. Ríkissjónvarpið brást hratt við og hóf snemma beina útsendingu frá vettvangi atburðanna. Fyrir vikið gátu þeir sem voru við skjá- inn fylgst með hver gerði hverjum hvað af allmikilli nákvæmni. Sjónvarpsáhorfendur sáu þegar bílstjórunum lenti saman við hjálmkædda lögreglumenn með plastskildi sér til varnar. Áhorf- endur sáu nákvæmlega á hvaða tímapunkti lögreglumennirnir ákvaðu að beita piparúða á þá sem að þeim sóttu og hvernig þeir báru sig að við að handtaka menn á vettvangi. Og sjónvarpsáhorf- endur sáu líka þegar að dreif fólk að því er virtist í þeim erinda- gjörðum einum að æsa ástandið enn meira. Hinir ungu dimitendar sem þrömmuðu um svæðið í einkenn- isklæðnaði nasista urðu sjálfum sér og skóla sínum til mikillar minnkunar. Um þá var ekki hægt að hugsa annað en mikið geta ungir menn stundum verið mikil fífl. Þeir voru þó skömminni skárri en kjánarnir sem tóku upp á því að grýta eggjum og öðru lauslegu í lögreglumennina. Hverju skyldi sá hópur hafa verið að mótmæla? Ekki er hægt að segja annað en að lögreglumennirnir hafi sýnt þeim ólátabelgjum óvenju mikla þolinmæði. Þetta sjónarspil allt flutti Ríkissjónvarpið af kostgæfni á skjái landsmanna. Og á hrós skilið fyrir. Þetta er í fyrsta skipti fjörutíu ár sem lögreglan lendir í átökum við almenning. Það er sannar- lega fjölmiðlun í almannaþágu að sýna beint frá svo sögulegum atburðum. Og lögreglunni til mikils hróss þá reyndi hún á engan hátt að takmarka aðgengi fjölmiðla að vettvangi. Fréttamenn, ljósmynd- arar og tökumenn fengu að fara óáreittir um svæðið. Það eykur skilning og stuðning við störf lögreglunnar þegar svona er staðið að verki. Þarna voru greinilega menn að störfum sem höfðu ekkert að fela. Ríkissjónvarp og lögreglan standa vel að verki. Norðlingaholts- bardaginn JÓN KALDAL SKRIFAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.