Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 35
FIMMTUDAGUR 24. apríl 2008 3
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Herrarnir verða betur klæddir en nokkru sinni í sumar. Lykilorðið er
„élégance“, karlmaðurinn á að vera fágaður og stílhreinn. Jakkafötin
eru ómissandi og eiga helst að vera hvít eins og hjá Hugo Boss, Paul
Smith eða Yohji Yamamoto. Sama á við um ódýrari merki eins og Zara
og H&M. Kannski ekki það besta fyrir íslensk rykmistur! Við jakkaföt-
in eru notaðar þunnar fallegar peysur eða bolir og skyrtur fyrir þá sem
vilja vera fínni. Enn eru bermúdabuxurnar flík sumarsins líkt og í
fyrra og við þær eru notaðir skór, bæði mokkasíur og sandalar úr leðri
en ekki þvengskór úr plasti. Til þess að gera þær fínni eru gjarnan
notuð falleg belti og skyrtur með. Bermúdabuxurnar eru að sjálfsögðu
hvítar eins og jakkafötin en einnig í litum eða munstraðar eins og hjá
H&M sem í samstarfi við finnska merkið Marimekko hefur hannað
sumarlínu fyrir H&M bæði fyrir dömur og herra.
Slim-tískan er á hraðri útleið og í sumar má jafnvel sjá útvíðar
gallabuxur að nýju en þær hafa verið algjörlega bannaðar um nokk-
urra ára skeið, frá því að Heidi Slimane, fyrrverandi herrahönnuður
Dior, kom renglutískunni á kortið með fyrirsætum sem minntu helst á
karlkyns átröskunarsjúklinga. Herraímyndin 2008 er allt önnur og nú á
karlmaðurinn að vera með form. Mjóu svörtu bindin sjást minna og nú
eru bindin bæði breiðari og litríkari en nokkru sinni fyrr. Hjá Lanvin
sést skemmtileg blanda af klassískum og frjálslegum klæðnaði líkt og
síðustu misseri, til dæmis eru klassískir jakkar notaðir við buxur úr
jogging-efni og prjónabindi.
Fyrir yngri herra og þá sem vilja vera frjálslegir í klæðnaði er
auðvitað margt í boði. Litirnir eru þó sterkir, til dæmis í skyrtum, hvort
sem þær eru með stuttum eða síðum ermum og gjarnan með stórum
blómum eða munstri. Einnig eru pólóbolir í óteljandi útgáfum, jafnt frá
Lacoste eða Mangó sem nú býður upp á herralínu, svo aðeins tvö dæmi
séu tekin.
Herrahandtöskur hafa algjörlega fest sig í sessi síðan þær komust í
tísku fyrir nokkrum árum. Auðvitað eru tískuhúsin hæstánægð með
þessa nýju ,,nauðsynjavöru” fyrir herrana sem hækkar sölutölur og
hagnað. Fínu tískuhúsin sem og önnur merki senda nú ekki frá sér
tískulínu öðruvísi en að hafa ýmsa fylgihluti með í línunni til að draga
að fleiri viðskiptavini og selja hverjum og einum fleiri en eina flík og
þannig hækka ,,meðal innkaupakörfu“ hvers viðskiptavinar sem er eitt
af ,,boðorðunum tíu” hjá kaupmönnum. Hjá herrum eru lakkskór enn í
fullu gildi þó að þeir sjáist minna í sumar hjá dömunum og reyndar er
hippatíska, blóm og friður nokkuð á skjön við herratískuna í sumar
sem er miklu fágaðri. bergb75@free.fr
Á hvítum sumarbuxum
Lífræn snyrtilína
Í SNYRTIVÖRUNUM FRÁ ORIGINS
ERU ENGIN AUKAEFNI.
Origins er lífræn snyrtivörulína án
allra aukaefna. Meðal nýrra vara í
línunni eru hárolía sem nærir og
veitir hárinu fyllingu og vítamín,
andoxunarandlitskrem sem fyrir-
byggir vökvatap, mýkir og sefar
rósroða og vara-
salvi fyrir þurrar og
sprungnar varir.
Blaðberum
Fréttablaðsins
fjölgar um
30.000
Við stöndum
upp úr
Atvinna í boði... ...alla daga
Atvinnublað Fréttablaðsins
er með 60% meiri lestur en
atvinnublað Morgunblaðsins
miðað við 20–40 ára
sk
v.
k
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
1
. n
óv
. 2
00
7–
31
. j
an
. 2
00
8
24,5%
39,3%
At
vi
nn
ub
la
ð
M
or
gu
nb
la
ðs
in
s
At
vi
nn
ub
la
ð
Fr
ét
ta
bl
að
si
ns