Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 24
24 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 298 5.203 +0,63% Velta: 3.965 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,30 -0,55% ... Bakkavör 42,30 -0,24% ... Eimskipafélagið 22,85 -0,22% ... Exista 11,99 +2,04% ... FL Group 6,37 -0,31% ... Glitnir 16,60 +0,61% ... Icelandair Group 23,30 -2,71% ... Kaupþing 837,00 +0,72% ... Landsbankinn 30,80 +0,65% ... Marel 90,10 +0,45% ... SPRON 4,86 -0,82% ... Straumur-Burðarás 12,26 +0,74% ... Teymi 3,98 +0,00% ... Össur 93,50 +3,32% MESTA HÆKKUN ÖSSUR 3,32% EXISTA 2,04% FØROYA BANKI 1,41% MESTA LÆKKUN ATLANTIC AIRWAYS 8,68% FLAGA 3,41% ICELANDAIR 2,71% Guðjón Karl Reynisson, fyrrverandi framkvæmda- stjóri 10-11, hefur verið ráðinn forstjóri bresku leik- fangakeðjunnar Hamley´s sem er í eigu Baugs. Keðjan veltir tíu milljörðum króna og skilaði 500 milljónum í hagnað í fyrra. Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs Group, sem er eigandi Hamley´s, segir félagið hafa vantað nýjan for- stjóra þar sem Nick Mather, sem verið hefur forstjóri Hamley´s síð- astliðin tvö ár og fjármálastjóri félagsins þar á undan, ákvað að láta af störfum til þess að skoða ný tæki- færi. Hann þvertekur fyrir að Math- ers hafi verið sagt upp störfum. „Nick hefur gert góða hluti fyrir Hamley´s enda félagið verið á mik- illi siglingu að undanförnu,“ segir Gunnar. Hann segir Guðjón strax hafa komið til greina sem eftirmað- ur Mathers enda gert mjög góða hluti með 10-11 verslanirnar. Hvað reynsluleysi Guðjóns á leik- fangamarkaðinum og þar að auki á breska markaðinum varðar, segir Gunnar að innan Hamley´s sé öflugt og ferskt lið sem þekki geirann inn og út. Það sé hans trú að persónu- leiki Guðjóns, reynsla í rekstri, ferskleiki og dugnaður, eins og Gunnar orðar það, henti vel inn í þann hóp sem þarna fer. Guðjón hefur störf í byrjun maímánaðar og hefur Sigurður Reynaldsson, nú þegar tekið við starfi hans sem framkvæmdastjóri 10-11 búðanna. Hamley´s veltir í kringum tíu millj- örðum króna á ári og var hagnaður félagsins í fyrra um hálfur milljarð- ur íslenskra króna. Alls eru versl- anirnar orðnar 15 talsins, þrjár í Danmörku, ein á Regent-stræti í Lundúnum, sex í verslunum House of Fraser, sem eru einnig í eigu Baugs, þá eru fjórar flugvallarbúð- ir og ein á lestarstöð í Lundúnum. Og nóg verður að gera hjá Guðjóni því fyrirhugað er að opna þrjár Hamley´s verslanir til viðbótar á næstunni, eina í Jórdaníu í júní og eina í Dubai í desember. „Síðan er verið að skoða fleiri tækifæri í öðrum löndum,“ segir Gunnar. Guðjón er íþróttakennari að mennt auk þess sem hann lauk rekstrar- og viðskiptanámi frá EHÍ árið 2000 og MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2002. - ss Hagnaður Hamley‘s hálfur milljarður króna „Mikil ábyrgð fylgir orðum seðlabankastjóra, ekki síst á erlendri grundu. Því þarf hann að gæta orða sinna sérstaklega vel,“ segir Erlendur Hjaltason, formaður Við- skiptaráðs Íslands. Ummælin hljóti að teljast óheppileg, enda þótt þau hafi verið mistúlkuð að verulegu leyti. Fram kom í danska við- skiptablaðinu Börsen, að Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri lýsti áhyggjum af stórum fjárfest- um í íslenskum bönkum. Enn frem- ur sagði blaðið að hrun hjá fjárfest- um gæti þýtt verulegt tap fyrir íslensku bankana. Eiríkur sagði í samtali við Markaðinn, að hann hefði gefið danska blaða- manninum svar við fræði- legri spurningu. Ekki væri til þess vitað að slík vandamál væru í uppsigl- ingu. Hann lét þess enn fremur getið að erfiðleik- ar á markaði gætu reynst smærri bönkum illa og leitt til sameininga. Erlendur segir það ekki hlutverk seðlabankastjóra að spá fyrir um sameiningu eða fækkun fjármálafyrirtækja. „Að sama skapi eru ummæli um mögu- leg vandamál hjá eigendum stærstu bankanna afar óheppileg og gætu valdið misskilningi.“ - ikh Seðlabankastjóri gæti orða sinna „Húsnæðislánavextir banka og sparisjóða eru töluvert hærri nú en vextir Íbúðalánasjóðs, enda þurfa þeir að taka mið af peningamála- stefnu landsins, ólíkt því sem virð- ist gilda um Íbúðalánasjóð,“ segir Guðjón Rúnarsson, framkvæmda- stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Vaxtalækkun sjóðsins í byrjun vik- unnar sé ekki til þess fallin að styðja við virkni peningamála- stefnu Seðlabankans. Íbúðalánasjóður lækkaði vexti niður í 5,2 prósent með uppgreiðslu- ákvæði, og niður í 5,7 prósent án slíks ákvæðis. „Fyrir þær tugþúsundir lands- manna sem greiða af verðtryggð- um húsnæðislánum í íslenskum krónum er stærsta hagsmunamálið að það takist að ná niður verðbólgu í landinu,“ segir Guðjón. Hann vitnar til nýlegrar skýrslu OECD, þar sem segir að sjóðurinn þurfi að halda sig frá aðgerðum sem dragi úr virkni peningamála- stefnunnar og að hann þurfi að geta starfað án opinberra afskipta. Nið- urgreiðsla húsnæðisviðskipta, með ríkisábyrgð Íbúðalánasjóðs, skipti þó mestu máli. „Það hefur aldrei reynt á þessa ríkisábyrgð Íbúðalánasjóðs,“ segir Ingibjörg Þórðardóttir, formaður Félags fasteignasala. Hún segir kjör sjóðsins á markaði skýrast fyrst og fremst af því að hann sé góður skuldari „með traust og góð fasteignaveð og lítil vanskil. Þess vegna skil ég ekki þessi brigsl um annað.“ Hún segir Íbúðalánasjóð mjög mikilvægan fyrir íslenskan fasteignamarkað, eins og staðan nú sýni, enda þótt galli sé á fyrirkomu- lagi hámarkslána. Haft var eftir félagsmálaráðherra í síðasta Mark- aði að vegna stöðunnar í verðbólgu- málum væri ekki tímabært að miða lán sjóðsins við markaðsverð. - ikh Mikilvægast að ná verðbólgunni niður ERLENDUR HJALTASON HAMLEY‘S Í LONDON Baugur rekur alls 15 Hamleys búðir og áætlar að opna fleiri. Finnur Ingólfsson er enn stór hluthafi í Icelandair Group í gegnum félagið Langflug. Fréttir af sölu Finns á hlutum í félaginu í fyrra- sumar, báru með sér að þá hefði Finnur sagt skilið við félagið. Þá seldi félag Finns FS7 tæplega 15,5 prósenta hlut sinn. Finnur staðfestir að hann eigi nú tvo þriðju hluta hlutafjár í Langflugi, á móti Fjárfestingafélaginu Gift, sem á þriðjung. Langflug er stærsti hlut- hafinn í Icelandair Group, með 23,8 prósenta hlut. Samkvæmt ársreikningi Lang- flugs fyrir árið 2006 átti Eignar- haldsfélagið Samvinnutryggingar, forveri Giftar, 75 prósenta hlut, en Finnur fjórðung prósenta. „Þetta var einhvern tímann á síðasta ári,“ segir Finnur, þegar hann er spurður um hvenær hann jók hlut sinn í Langflugi. Í lok desember sátu þrír menn í stjórn Lang- flugs. Finnur Ingólfs- son, Helgi S. Guðmunds- son og Ólafur Friðriksson. Finnur er nú stjórnarformaður Samvinnusjóðsins, sem líklega á þriðjungs hlut í Gift, og verður stærsti hluthafinn í Gift. Ólafur Friðriksson er fyrr- verandi stjórnarformaður Giftar. Allir þrír hafa setið í svonefndu Fulltrúaráði eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga. Fulltrúaráð- ið velur sig sjálft en þar eru innan borðs ýmsir sem meðal annars tengjast Kaupfélögunum og Sam- bandi íslenskra samvinnufélaga. - ikh FINNUR INGÓLFSSON Á ennþá 15 prósent Góður gangur Fjölmiðlar hafa verið duglegir við að segja fréttir af erfiðleikum fyrirtækja við að sækja sér lánsfé til að standa undir áframhaldandi rekstri og framtíðaruppbyggingu. Það á samt ekki við um öll fyrirtæki. Á meðan álverð fer hækkandi er fýsilegt að byggja fleiri álver hér á landi. Að því stefnir Norðurál í Helguvík. Í síðustu viku voru forsvarsmenn Norðuráls, sem er í eigu Century Aluminium og með höfuðstöðvar í Kali- forníu, í Bandaríkj- unum og ræddu við þarlenda banka. Og ekki vantar áhugann. Höfðu stærstu bankar Bandaríkjanna samband að fyrra bragði til að ræða hugsanlegt lán til uppbyggingar í Helguvík. Auk þess að auka hlutafé og taka fjármagn úr rekstrinum er ætlunin að taka nokkur hundruð milljónir dollara að láni. Og kjörin munu ekki vera verri en það sem gilti fyrir lánsfjárkrepp- una. Það er engin kreppa í álinu. Bíður rólegur Það er gömul saga og ný, að niðursveifla á markaði getur skapað góð kauptæki- færi fyrir þá sem eiga fjármuni á lausu. Björgólfur Thor Björgólfsson sagði við danska viðskiptablaðið Börsen í gær, að verð á dönskum fasteigna- félögum myndi lækka á næstunni þar sem einhverjir bankar myndu neyðast til að selja fyrir hönd umbjóðenda sinna. Hann geri því ekkert fyrir jól, enda hafi hann nógan tíma. Peningaskápurinn ... MARKAÐSPUNKTARSeðlabanki Noregs hefur hækkað stýrivexti í 5,5 prósent, um 0,25 prósentustig. Í Vegvísi Landsbankans kemur fram að hækkunin hafi verið í takt við væntingar sérfræðinga. Í Nor- egi hefur verið uppgangur sem skýrist að stórum hluta af háu olíuverði, sem er helsta útflutningsvara Noregs. Vegvísir fjallar einnig um stýrivexti í Svíþjóð sem tilkynnt var að væru óbreyttir í 4,25 prósentum. Uppgjör fyrirtækja vegna fyrsta ársfjórðungs fara nú að líta dagsins ljós. Í dag koma þau fyrstu, en Nýherji og Eik Banki ríða á vaðið. „Uppgjörs- hrinan skellur svo á af fullum krafti í næstu viku en þá munu átta félög á Aðallista Kauphallarinnar birta upp- gjör fyrir fyrsta ársfjórðung,“ bendir greiningardeild Kaupþings á. Viltu skjól á veröndina? www.markisur.com og www.markisur.is Veðrið verður ekkert vandamál Hrein fjárfesting ehf, Dalbraut 3, 105 Reykjavík Upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 um kvöld og helgar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.