Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 6
6 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL „Markmið okkar var
að opna veginn,“ segir Hörður
Jóhannesson, aðstoðarlögreglu-
stjóri á höfuðborgarsvæðinu, um
aðgerðir lögreglu þegar flutninga-
bílstjórar stöðvuðu umferðina á
Suðurlandsvegi í gær.
„Þess vegna tókum við lyklana
af þeim og færðum bílana. Lagt
var hald á sextán flutningabíla og
þeim verður haldið eins og þarf.
Það er heimild til að halda munum
til tryggingar á greiðslu sektar,
kostnaðar og annars þess háttar.“
Milli fimmtíu og sextíu lög-
reglumenn af höfuðborgarsvæð-
inu voru á staðnum þegar mest
var. Að auki bættust sérsveitar-
menn í hópinn til aðstoðar. Lög-
reglumenn höfuðborgarsvæðisins
sem voru á staðnum voru úr
umferðardeild, almennri deild og
rannsóknardeild, auk aðgerðar-
hóps úr almennu deildinni.
Tuttugu menn voru handteknir
á staðnum, að sögn Harðar og eiga
þeir yfir höfði sér kærur fyrir að
hunsa fyrirmæli lögreglu, brjóta
umferðarlög, auk brota á hegning-
arlögum með því að raska almenn-
ingssamgöngum.
Spurður hvað hafi orðið til þess
að upp úr sauð svo að til átaka kom
segir Hörður að bílstjórarnir hafi
safnast saman í gærmorgun til að
loka veginum.
„Við höfum alltaf verið með við-
búnað sem við höfum ekki þurft
að beita. Að þessu sinni urðu þeir
við tilmælum um að fara, en ein-
hver hluti þeirra fór ekki langt
eða kom til baka og lokuðu vegin-
um aftur. Þeir sinntu ekki ítrekuð-
um fyrirmælum. Þetta var orðið
stjórnlaust af þeirra hálfu því það
var enginn í forsvari fyrir þessu.
Það var því bara maður á mann.
Hörður sagði að ekki hefði tekist
að ná í talsmann bílstjóranna um
fjögurleytið í gær þrátt fyrir
ítrekaðar tilraunir.
Spurður um hvað gerist stöðvi
bílstjórarnir umferð í dag eða
næstu daga segir Hörður að lög-
regla grípi ætíð til þeirra aðgerða
sem séu viðeigandi hverju sinni.
„Það sem við gerðum nú, svo
sem að beita úða er algjör undan-
tekning. Við grípum ekki til svona
aðgerða nema ef og þegar aðrar
aðgerðir duga ekki. Þarna var
kominn mikill mannsöfnuður og
það er allt betra en líkamleg átök.
jss@frettabladid.is
Sextán flutningabíl-
ar voru kyrrsettir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tuttugu menn og lagði hald á sextán
flutningabíla í gær. Bílarnir hafa verið kyrrsettir um óákveðinn tíma til trygg-
ingar á greiðslu sekta og kostnaðar. Hinir handteknu eiga kærur yfir höfði sér.
ÁTÖK Í NORÐLINGAHOLTI
ER SVIFRYKIÐ AÐ KÆFA OKKUR?
DAGSKRÁ MÁLÞINGS
Setning
Eygerður Margrétardóttir, stjórnarkona í Félagi umhverfi sfræðinga á Íslandi.
Upp úr hjólfarinu. Um hjólreiðar og hlutverk heimspekinnar
Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimsspeki við Háskóla Íslands.
Loftgæði, lungu og heilsa
Sigurður Þór Sigurðarson, læknir.
Loftgæði í Reykjavík
Anna Rósa Böðvarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi á Umhverfi s- og samgöngusviði Reykjavíkurborgar.
Visthæfar samgöngur
Pálmi Randversson, sérfræðingur í samgöngumálum á Umhverfi s- og samgöngusviði
Reykjavíkurborgar.
UMRÆÐUR
Fundarstjóri:
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Félags umhverfi sfræðinga á Íslandi.
ALLIR VELKOMNIR
Málþing Félags umhverfi sfræðinga á Íslandi
um vistvænan lífsstíl, samgöngur og loftgæði.
Yale, fundarsal Radison SAS, Hótel Sögu, 2. hæð
á Degi umhverfi sins, föstudaginn 25. apríl kl. 15:00-17:30.
FÉLAG UMHVERFISFRÆÐINGA
Á ÍSLANDI
Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri í
Reykjavík, telur heppni að ekki fór
verr en raun ber
vitni við Norðlinga-
holt í gær. „Ég tel að
við höfum sloppið
fyrir horn og hvet
til þess að þessum
mótmælum verði
fundinn annar
farvegur þannig að ekki stafi af þeim
hætta,“ sagði Ólafur í samtali við
Fréttablaðið.
Hann segir mikilvægt að draga
lærdóm af atburðum gærdagsins,
þannig megi koma í veg fyrir að þeir
endurtaki sig. „Það er mikilvægara að
menn sameinist um að þetta gerist
ekki aftur en að leita að sökudólgi
eða blórabögglum.“
Borgarstjóri er formaður stjórnar
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Á
fundi hennar á föstudag var rætt um
aðgerðir bílstjóra og lýst áhyggjum
af þeirri hættu sem þeim getur fylgt
vegna tálmunar slökkviliðs- og sjúkra-
bíla. Ólafur segir slökkviliðsstjóra hafa
rætt við talsmenn bílstjóranna og
gert þeim grein fyrir hættunni. Vonar
hann að bílstjórarnir hafi þessi atriði
eftirleiðis í huga. „Það varðar líf og
öryggi fólks að þessir bílar geti komist
um göturnar,“ segir hann.
SLUPPUM
FYRIR HORN
Piparúði lögreglunnar er hættulítill
eða hættulaus fullyrðir vakthaf-
andi læknir á slysadeild. Hann
valdi sviða en nóg sé að skola
augun. Þeir sem leituðu á slysa-
deild voru afklæddir og skolað af
þeim í bílskúrnum af því að úðinn
getur smitast yfir á aðra sjúklinga.
- kóp
Piparúðinn er
hættulítill
Telur þú að beinið sem fannst
í Dýrafirði á sunnudag sé frá
Spánverjavígunum?
Já 34%
Nei 66%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Þekkir þú kröfur vörubílstjóra?
Segðu skoðun þína á vísir.is
Æstir unglingar Nokkur fjöldi unglinga safnaðist saman á Norðlingaholti þegar fréttist af átökum. Unglingarnir köstuðu eggjum að
lögreglu og létu ófriðlega. Lögreglan þurfti hvað eftir annað að skakka leikinn. FRÉTTABLAÐTÐ/STEFÁN
HANDTEKINN Ungur maður var handtekinn við mótælin. Hann kvartaði sáran undan
því að fá ekki að þurrka piparúðann úr augum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Dómsmálaráðherra hefur ekkert út á framgöngu lögreglu að setja :
Gaf ekki fyrirmæli um aðgerðir
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra gaf ekki fyrirmæli til lög-
reglunnar um að hefja aðgerðir
gegn mótmælum bílstjóra í gær.
Hann segist ekki hafa neitt út á
framgöngu lögreglumanna að
setja.
„Það stefndi í að upp úr syði, ef
haldið yrði áfram á sömu braut,“
segir hann.
Hann segir ekki hægt að full-
yrða um það hvort lögregla muni
framvegis bregðast við mótmæl-
um með þessum hætti. „Lögregla
tekur ákvarðanir sínar í samræmi
við lög og mat á aðstæðum hverju
sinni.“
Hann hefur ekki tekið afstöðu
til þess hvort hann muni óska eftir
skýrslu um málið frá lögreglu-
stjóranum á höfuðborgarsvæðinu.
Enn fremur segir hann að unnt sé
að óska eftir því við ríkissaksókn-
ara að hann láti rannsaka fram-
göngu lögreglunnar þyki mönn-
um tilefni til þess.
Aðspurður um hvað honum
þyki um mótmælin segir hann,
„ég tel, að í okkar þjóðfélagi eigi
að leiða mál til lykta með viðræð-
um en ekki á þann hátt að trufla
þjóðlífið með ólögmætum aðgerð-
um“. - jse
KJÖRKASSINN