Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 83

Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 83
FIMMTUDAGUR 24. apríl 2008 51 folk@frettabladid.is > GIFTUR Það lítur allt út fyrir að Beyoncé og Jay- Z hafi í raun gengið í hjónaband 4. apríl síðastliðinn, því skjöl sem lögð voru fram í New York-ríki á föstu- dag staðfesta það. Mikil leynd hvíldi yfir hjónavígslunni, eins og reyndar yfir öllu sambandi söngfuglanna sem leggja ofuráherslu á að halda því út af fyrir sig. Svíar koma víða við í Eurov- ision í ár eins og oft áður því vinsælt hefur verið hjá ýmsum þjóðum að kalla til sænska popphjálp þegar mikið liggur við. Fyrir utan að semja sænska lagið voru fjórir Svíar fengnir til að berja saman sjóræningja- stuðlagið fyrir Letta. Möltu- menn hafa nú ýtt á rauða popptakkann til Svíþjóðar og fjórir sænskir karldans- arar munu stíga dans við lagið Vodka sem er fulltrúi Möltu í ár. Thomas Benstem fer fyrir hópnum og semur dansinn. Hið kraftmikla Vodkalag er sungið af Morenu, 23 ára. Hún er á blússandi uppleið heima fyrir og gjarnan kölluð „eld- fjall Miðjarðahafsins“. Að syngja um hinn vinsæla drykk gæti orðið sniðugt bragð hjá Möltumönnum og ekki skemmir fyrir að lagið er grípandi og gífurlega hresst. Möltumenn eiga það sam- eiginlegt með okkur að vera lítil eyþjóð. Þeir eru þó aðeins fjölmennari, rúmlega 400.000 talsins. Þeir eiga líka svipaða Eurovision-sögu. Tóku reynd- ar fyrst þátt árið 1971 en hafa bara tekið þátt tuttugu sinn- um í allt. Malta hefur aldrei unnið en tvisvar lent í öðru sæti og tvisvar í því þriðja. Vodka verður flutt í seinni milliriðla-þættinum svo við eigum kost á að kjósa Morenu áfram. Hún yrði eflaust þakk- lát enda hafa Möltumenn setið eftir í milliriðli síðastliðin tvö ár. Svíar stíga maltneskan vodkadans MALTA BÍÐUR UPP Á VODKA Morena syngur en Svíar dansa. Henry Birgir Gunnarsson, íþróttafréttamaður á Fréttablað- inu, byrjar með nýjan útvarps- þátt á X-inu 977 föstudaginn 2. maí. Verður hann á dagskrá alla virka daga milli 12 og 13. „Ég er gríðarlega spenntur. Það verður mjög skemmtilegt að takast á við þetta verkefni. Markmiðið er skýrt, að búa til besta íþróttaþátt í sögu íslenskrar útvarpssögu,“ segir Henry. „Þetta verður alvöruþáttur með alvöruumræð- um. Þar fyrir utan mun ég fá til mín menn með sterkar skoðanir sem þora að tjá þær. Þetta verður lifandi og kraftmikill þáttur.“ Enn á eftir að ákveða nafn þáttarins og auglýsir Henry eftir tillögum á bloggsíðu sinni www. blogg.visir.is/henry. Með nýjan útvarpsþátt HENRY BIRGIR GUNNARSSON Kvikmyndagerðarmaðurinn Rúnar Rúnarsson keppir um aðalverðlaunin í flokki stuttmynda á Cannes-hátíð- inni. „Ég sagði við þau hjá ZikZak þegar við vorum að gera myndina að þau yrðu að splæsa í smóking þegar við færum til Cannes. Þau samþykktu það strax og nú er komið að ögurstund; þegar ég fer og vel Armani-smókinginn,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Rúnar Rúnarsson. Ekkert lát er á velgengni Rún- ars því nýjasta stuttmynd hans, Smáfuglar eða 2Birds, keppir um aðalverðlaunin á Cannes-kvik- myndahátíðinni sem fram fer um miðjan maí. Rúnar viðurkennir að hann hafi ekki átt fínu fötin sem hann klæddist þegar hann fór á Óskarinn með Síðasta bæinn en hann ætli sér ekki að gera sömu mistökin tvisvar. Þetta er aðeins í annað sinn sem íslenskri kvikmynd hlotnast þessi heiður en árið 1993 keppti stuttmynd Ingu Lísu Middleton, Ævintýri í okkar landi, um þessa sömu verð- laun. Í fréttatilkynningu frá kvik- myndafyrirtækinu ZikZak kemur fram að myndin sé hrá, sjokker- andi og jafnvel grimmileg og að hún eigi eftir vekja umtal. Rúnar kemur sér hjá því að svara spurn- ingunum tengdum þessum sterku lýsingarorðum eins og sannur stjórnmálamaður, segir þetta ekki vera sín orð og forðast að ljóstra nokkru upp. Myndin var að öllu leyti tekin upp á gamla varnar- svæðinu í Reykjanesbæ, skömmu eftir að varnarliðið hafði yfirgef- ið land og þjóð og Rúnar segir það vissulega hafa verið kost að hafa heilt bæjarfélag út fyrir sig. „Þetta var óneitanlega eins og að vera í draugabæ.“ Rúnar á nú ár eftir í námi við konunglega kvikmyndaháskólann í Kaupmannahöfn og leikstjórinn segist vera með í smíðum tvær kvikmyndir í fullri lengd sem verði farið af stað með eftir útskrift. „Smáfuglar er hins vegar önnur myndin í þríleik og ég ætla mér að klára hann áður en ég dembi mér út í löngu myndirnar,“ segir Rúnar. freyrgigja@frettabladid.is ZikZak splæsir smókinginn MIKILL HEIÐUR Rúnari Rúnarssyni hefur á örskömmum tíma tekist að vera tilefndur til Óskars- og Cannesverðlauna. 29 DAGAR TIL STEFNU GÓ‹ SUMAR- TILBO‹ E N N E M M / S ÍA / N M 3 3 3 5 5 VEX ME‹ MÉRKomdu og upplif›u ævint‡ri innandyra í Holtagör›um! Stubbasmi›jan er n‡ og spennandi verslun sem sérhæfir sig í húsgögnum og alhli›a lausnum fyrir hressa stubba. Fjölbreytt úrval af fallegum sumargjöfum! Höfum opi› í dag, sumardaginn fyrsta, frá kl. 12-18 GLE‹ILEGT SUMAR! Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.