Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 10
10 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
KJARAMÁL Formenn félaga innan
Bandalags háskólamanna, BHM,
hunsuðu fund sem boðaður hafði
verið með samninganefnd ríkis-
ins í Karphúsinu síðdegis í gær.
Félögin hafna því að senda full-
trúa á slíkan fund enda ætla þau
öll að semja hvert með sinni
samninganefnd.
Í svari sem samninganefnd
náttúrufræðinga sendi til samn-
inganefndar ríkisins, segir að
fundurinn hafi verið boðaður án
dagskrár. Samninganefnd félags-
ins vilji eiga „milliliðalaus sam-
skipti við SNR og hafnar því að
senda fulltrúa á fund sem boðað-
ur er án dagskrár“.
Þá ítrekar nefndin kröfu um
samningafund tafarlaust og
bendir á að í viðræðuáætlun sé
gert ráð fyrir að 23. apríl sé staða
viðræðna metin með tilliti til þess
hvort endurskoða skuli viðræðu-
áætlun eða vísa málinu til sátta-
semjara.
Páll Halldórsson, formaður
Félags íslenskra náttúrufræð-
inga, FÍN, segir að hvert félag
innan BHM fari með sitt samn-
ingsumboð og ekki hafi verið
fjallað um að láta það af hendi. Í
síðustu viku hafi náttúrufræð-
ingar fallist á að fresta samn-
ingafundi. „Nú erum við að ýta á
að það verði boðað til fundar og
að við komumst að borðinu,“
segir hann.
Náttúrufræðingar hafa kynnt
kröfugerð sína fyrir samninga-
nefnd ríkisins. Grundvallarkraf-
an er sú að lágmarkslaun nátt-
úrufræðings með BS-próf verði
300 þúsund krónur en lágmarks-
launin eru í dag 210 þúsund krón-
ur. Til viðbótar eru kröfur sem
snúa að réttindamálum og öðru.
Páll segir að ákveðnir hópar
hafi setið eftir. Hann nefnir sem
dæmi starfsmenn LSH „þar sem
launakjör eru með þeim hætti að
ekki verður við unað. Það eru alls
konar svona mál sem verður að
leysa. Mönnum er ekki vel við að
þessum málum sé alltaf ýtt út af
borðinu með heildarsamning-
um.“
Elsa B. Friðfinnsdóttir, for-
maður FÍH, segist ekki hafa séð
neina ástæðu til að þramma á
fundinn því að þar myndu ekki
eiga sér stað neinar samninga-
viðræður. Beðið sé eftir samn-
ingafundi.
Forystumenn innan BHM
mættu hinsvegar til fundar við
samninganefnd ríkisins í gær-
morgun og svöruðu þá tilboði rík-
isins um þriggja ára samning.
Ekki náðist í Gunnar Björns-
son, formann samninganefndar
ríkisins. ghs@frettabladid.is
Mættu ekki
til fundar
með ríkinu
Stéttarfélög innan BHM mættu ekki til fundar með
samninganefnd ríkisins í gær. Félögin ætla að semja
hvert í sínu lagi og sjá ekki tilgang funda með einstök-
um forystumönnum sem boðaðir eru án dagskrár.
SLEPPTU ÞVÍ AÐ MÆTA Stór BHM-félög á borð við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
og Félag íslenskra náttúrufræðinga slepptu því að mæta á fund með samninganefnd
ríkisins í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR SIGURÐSSON
Nú erum við að ýta á að
það verði boðað til fundar
og að við komumst að borðinu.
PÁLL HALLDÓRSSON
FORMAÐUR FÍN
RV
U
N
IQ
U
E
04
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Réttu tækin í þrifin
- háþrýstidælur, ryk- og vatnssugur frá 8.888 kr.
Nilfisk P160 1-15 B X-tra
Dæluþrýstingur: 160 bör
Vatnsmagn: 650 l/klst.
Nilfisk E140 2-9 X-tra
Dæluþrýstingur: 140 bör.
Vatnsmagn: 500 l/klst.
Nilfisk C100 4-5
Dæluþrýstingur: 100 bör.
Vatnsmagn: 320 l/klst.
Nilfisk Buddy 18
ryk- og vatnssuga
Loftflæði: 3600 l/mín.
Mótor: 1300W
15 l tankur
Nilfisk C120 2-6
Dæluþrýstingur: 120 bör.
Vatnsmagn: 520 l/klst.
20%
afslá
ttur
Vinningur í hverri viku
DÓMSMÁL Þrennt var í gær dæmt í
máli Tryggingarstofnunar (TR)
gegn fyrrverandi starfskonu. Alls
eru 20 manns ákærðir í málinu, en
eftir á að rétta yfir höfuðpaurnum,
45 ára gamalli konu.
Æskuvinkona hennar, sem er
75% öryrki, var dæmd í níu mán-
aða fangelsi fyrir að heimila ríf-
lega 11 milljóna króna innlagnir á
reikninga sína. Hún hlaut helming
upphæðarinnar í sinn hlut.
Þá var nágrannakona hennar
dæmd í fjögurra mánaða fangelsi
fyrir viðtöku ríflega 4,6 milljóna,
en fyrir það fékk hún tæpar 540
þúsund krónur. Fyrrverandi sam-
býlismaður höfuðpaursins hlaut
tveggja mánaða fangelsi, en hann
tók við 1,3 milljónum og ráðstafaði
samkvæmt vilja konunnar. Allir
dómarnir eru skilorðsbundnir.
Þingfesting málsins var sú fjöl-
mennasta í sögu Héraðsdóms
Reykjavíkur. - kóp
Enn dæmt í fjársvikamáli Tryggingastofnunar:
Þrennt fer á skilorð
UMFANGSMIKIÐ MÁL Tuttugu manns eru
ákærðir í fjársvikamáli tengdum Trygg-
ingastofnun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM