Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 48
24. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR10 ● fréttablaðið ● gæludýr
Gullfallegur en eilítið skömmustulegur bolabítur í hjónarúmi. NORDICPHOTOS/GETTY
Sagt er að gullfiskar hafi ein-
ungis þriggja sekúndna minni
og því finnst sumum kannski
ekki liggja á að þrífa búrið
þeirra. En því er nú öðruvísi
farið að sögn Sigursteins
Þorsteinssonar, verslunarstjóra
Fiskó, Dalvegi 16.
„Það er gott að skipta um tut-
tugu til þrjátíu prósent af vatn-
inu og þrífa dælur ekki sjaldnar
en einu sinni í mánuði. Hægt er að
þrífa sandinn meðan verið er að
þrífa dælurnar og skipta um vatn.
Glerið þarf að vera hreint svo
heimilis vinirnir sjáist nú og því er
upplagt að skafa glerið þegar það
fer að verða skítugt. Þessar um-
hirðuleiðbeiningar eiga við allar
tegundir fiska,“ segir Sigursteinn.
Að hans sögn eru gullfiskar
eftirsóttustu fiskarnir, en rán-
og skrautfiskar geta líka verið
skemmtileg viðbót á heimilið þar
sem þeir búa oft yfir mesta per-
sónuleikanum. Spennandi getur
verið að fylgjast með þegar rán-
fiskar hrygna og verja síðan hrogn
og seiði. „Bæði karlkyns og kven-
kyns fiskar hrygna á botn-
inum og kvenfiskur einnar
tegundar tekur hrognin upp
í sig og klekur þeim út uppi í sér,“
útskýrir hann.
Sigursteinn tekur fram að aldrei
megi þó setja ránfiska í búr með
öðrum tegundum þar sem þeir
geti reynst þeim hættulegir. „Rán-
fiskar geta bara verið í búri með
öðrum ránfiskum sem eru svipað-
ir að stærð. Þeir
eru mjög
skrautlegir,
í raun mun
skraut-
legri en skrautfiskar. Þegar þeir
stækka þurfa þeir svo öðruvísi
mat en aðrir fiskar, það er fóður í
bitum en ekki þunnum flögum.“
Að lokum tekur hann fram að
gullfiskum líði best í stofuhita
en þeir geti verið í 4-30°C hita án
þess að verða meint af. „Ef vatn-
ið er undir 10°C eru þeir í eins
konar dvala og éta ekki. Rán- og
skrautfiskar þurfa meiri hita því
þeir koma frá heitum löndum. Hjá
þeim þarf hitinn að vera í kring-
um 24 til 26°C,“ bendir hann
á og bætir við að hægt
sé að fá frekari upp-
lýsingar í
síma 564-
3364. - liz
Hamingja í lítratali
Nauðsynlegt er að skipta reglulega um vatn í fiskabúrum, þrífa dælur og sand, svo
þessum smáu heimilisvinum heilsist sem best að sögn Sigursteins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fiskar þrífast við mismunandi
hitastig; gullfiskar til dæmis
við mun minni hita en skraut-
fiskar.
Það hefur löngum verið vitað að
knús og nærvera við hunda geta
linað bæði andlegan og líkam-
legan sársauka. Slíkt réttlætir þó
ekki alltaf að leyfa hundum að
sofa uppi í rúmi hjá húsbændum
sínum.
Langflestir hundaþjálfarar og
sérfræðingar í atferli hunda mæla
gegn því að hundar sofi í rúmum
fólks.
Í mörgum tilvikum er það
vissulega saklaust og bara sætt,
en margt ber að varast og hafa í
huga. Óvandir hvolpar sem enn
eiga flest ólært í siðum og um-
gengni við fólk ættu ekki að fá
aðgang að rúmi eigenda sinna,
og aldrei skyldi bjóða skapmikl-
um hundum til hvílu. Stjórnsamir,
ódælir og ruddalegir hundar, sem
ekki bera virðingu fyrir húsbónda
sínum, geta beinlínis verið hættu-
legir rekkjunautar og hika ekki
við að sýna vald sitt þar sem þeir
líta á rúmið sem sitt eigið, um-
fram eiganda sinn.
Séu ung börn á heimilinu er ör-
uggast að hundum sé aldrei leyft
að fara upp í rúm né sófa. Mörg-
um eldri börnum þykir notalegt
að kúra hjá heimilishundinum, en
þá þurfa foreldrar að meta hvort
slíkt sé áhættunnar virði. Sé barn
mjúkhent og rólynt, og skap hunds
stöðugt og gott, ættu kostirnir að
vega upp á móti því sem vanalega
þyrfti að varast.
Hundur þarf að vera að fullu
húsvanur til að mega sofa í sama
rúmi og manneskjur. Hann verður
að kunna að hlýða skipunum um
að fara úr rúminu og ekki eiga það
til að missa stjórn á sér né fara í
varnarham þegar hann vaknar
óvænt.
Sofið hjá húsbóndanum
Auglýsingasími
– Mest lesið
Blaðberum
Fréttablaðsins
fjölgar um
30.000