Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 24. apríl 2008 5
Á morgun er Dagur umhverfisins. Af því tilefni
opna umhverfisráðuneytið, Úrvinnslusjóður og
Sorpa sýninguna Vistvænan lífsstíl í Perlunni.
„Með sýningunni viljum við skapa vettvang þar sem
almenningur fær tækifæri til að kynna sér vistvæn-
ar vörur og þjónustu sem í boði eru, en með því von-
umst við til að áhugi neytenda aukist á að skipta við
vistvæn fyrirtæki og að láta sig umhverfissjónarmið
varða í innkaupum og daglegu lífi,“ segir Guðmund-
ur Hörður Guðmundsson, upplýsingafulltrúi hjá
umhverfisráðuneytinu, um sýninguna sem verður
opnuð á morgun og lýkur á laugardag.
„Á sýningunni nú verða minni fyrirtæki sem þjón-
usta almenning í daglegu heimilishaldi og samgöng-
um. Við finnum vel fyrir vaxandi umhverfisvitund
almennings en heyrum líka kvartanir um að ekki sé
nóg framboð af vistvænum vörum til heimilishalds-
ins. Með sýningu sem þessari reynum við að leiða
saman framboð og eftirspurn, og hjálpa fólki að
hugsa og framkvæma grænt,“ segir Guðmundur, en
á sýningunni í Perlunni má glöggt sjá að heimilishald
getur verið umhverfisvænt frá grunni.
„Þarna má finna umhverfisvænar vörur fyrir ung-
börn og mæður, vistvæn leikföng og fatnað, lífrænar
náttúruafurðir, hreinlætisvörur og matvæli, endur-
vinnslutunnur, sælkeramat, listmuni og snyrtivörur,
svo fátt sé upp talið.
Úrvalið er fjölbreytt og auðvitað leggja menn mis-
mikið á sig, en ef þeir ætla að hugsa grænt ofan í
kjölinn er rétta leiðin að hugsa það allt frá grunni
hússins, og velja vistvæna málningu, parkett og
fleira í þeim dúr. Það er því hægt að vera umhverfis-
vænn á marga vegu. Auðvitað þurfa menn ekki að
vera algrænir, þótt það sé auðvitað best,“ segir Guð-
mundur kankvís og bendir á áhugaverðan bás á Vist-
vænum lífsstíl.
„Umhverfsstofnun, sem sér um hið virta umhverfis-
merki Svaninn, hefur leitað uppi flestar umhverfis-
vænar heimilisvörur á íslenskum markaði. Þær
verða til sýnis í stórum bás og kemur á óvart hversu
mikið er til, allt frá sápu, rúmum, sláttuvélum og raf-
magnsbílum,“ segir Guðmundur, en þess má geta að
gestum býðst að reynsluaka rafmagnsbíl frá Perlu-
kafaranum og fá ókeypis ástandsskoðun á reiðhjól-
um.
„Það er óskandi að sýningin veki fólk enn betur til
vitundar og þeir sem koma verða örugglega margs
vísari. Landvernd kynnir verkefnið Vistvernd í verki
og dreifir í samvinnu við umhverfisráðuneytið bæk-
lingnum Skref fyrir skref sem geymir endurbættar
leiðbeiningar um vistvænan lífsstíl. Fólk getur því
fengið margar góðar hugmyndir í Perlunni og farið
heim með betri vitnesku um hvar það á að byrja.“
Aðgangur á Vistvænan lífsstíl í Perlunni er
ókeypis. Vakin er athygli á uppboði Góða hirðisins á
Hundinum eftir Guðmund frá Miðdal. Uppboðið fer
fram á laugardag klukkan 14. Lágmarksboð er tut-
tugu þúsund krónur. thordis@frettabladid.is
Grænt og gott heimilislíf
Guðmundur Hörður Guðmundsson, upplýsingafulltrúi umhverfisráðuneytisins, hvetur landsmenn til að fjölmenna á sýninguna
Vistvænan lífsstíl í Perlunni, en þar gefur að líta flestallt sem lýtur að grænna og umhverfisvænna heimilishaldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gleðilegt upphaf
að góðum degi
SMILEY-BOLLAR KÆTA.
Mörgum þykir gott að hefja daginn með heitum
kaffibolla eða te til að koma sér í rétta gírinn. Þá er
nú ekki verra ef fallegt bros fylgir í kaupbæti en segja
má að þetta tvennt sameinist í þessum glaðlega bolla
sem kallast Smiley og fæst í versluninni Byggt & búið í Kringlunni.
Bollinn og undirskálin eru einnig fáanleg í bláu og eru fjögur stykki
seld saman á 1.999 krónur.
www.eico.is
Skútuvogi 6 / Sími 570 4700
Opið virka daga 09-18 og laugardaga 10-14
Vandaður búnaður á aðeins
25.900 kr. Tilvalinn fyrir
heimilið eða sumarbústaðinn
Alvöru
pakkatilboð
Formúlan í opinni dagskrá á ITV
YFIR 100
FRÍAR RÁSIR