Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 16
 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR Kynntu þér námið á www.hr.is MSc í alþjóðaviðskiptum Námið byggir bæði á fræðilegum grunni og hagnýtri þekkingu á alþjóðaviðskiptum og fer kennsla fram á ensku. Uppbygging námsins miðar við reynslu margra bestu háskóla heims. Allir nemendur dvelja erlendis eina önn. MEISTARANÁM Í VIÐSKIPTADEILD MSc í reikningshaldi og endurskoðun Námið er ætlað þeim sem vilja verða löggiltir endurskoðendur, eða hafa áhuga á að starfa sem sérfræðingar eða stjórnendur á sviði reikningshalds í fyrirtækjum. Útskrifaðir nemendur eru eftirsóttir til ýmissa stjórnunarstarfa í atvinnulífinu, einkum hjá stórfyrirtækjum í alþjóðlegri starfsemi. MSc í fjármálum Námið er sérsniðið að þörfum fjármálafyrirtækja og framsækinna alþjóðlegra fyrirtækja. Hægt er að sérhæfa sig í fjárfestingarstjórnun eða fjármálum fyrirtækja. Meistaranám við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík er fjölbreytt og krefjandi nám sem getur opnað þér dyr að margvíslegum starfstækifærum. Umsóknarfrestur er til 30. maí Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is Þar sem tryggingar snúast um fólk VERTU MEÐ ALLAR TENGINGAR Í LAGI HÚSVAGNATRYGGING VÍS Húsvagnatrygging VÍS er alhliða trygging fyrir tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi, sem tekur m.a. til áreksturs, veltu, útafaksturs, eldsvoða, skriðufalls og innbús svo eitthvað sé nefnt. Hafðu samband við þjónustuver VÍS í síma 560 5000 eða komdu við á næstu þjónustu- skrifstofu og fáðu nánari upplýsingar. VESTMANNAEYJAR „Það er höfnin og ferðaþjónustan sem bera mest úr býtum í þessari þriggja ára áætl- un,“ segir Elliði Vignisson, bæjar- stjóri í Vestmannaeyjum um nýja þriggja ára áætlun Vestmanna- eyjabæjar sem nær yfir árin 2008 til 2011. Stefnt er að byggingu stór- skipahafnar norðan við Eiðið. Rúmar 700 milljónir eru teknar frá til framkvæmdarinnar sem samsvarar 40 prósentum af kostn- aði en samkvæmt gildandi hafn- arlögum greiðir ríkið 60 prósent af gerð hafnarmannvirkja. „Stórskipahöfn norðanvert við Eiðið myndi gera okkur kleift að taka á móti næstu kynslóð af stór- skipum og auka þjónustu við alla hafnsækna stafsemi, bæði tengda sjávarútvegi, léttiðnaði og nýfengnum tækifærum til dæmis í vatnsútflutningi,“ segir Elliði. Hann segir bæjarstjórnina hafa gert samgönguyfirvöldum grein fyrir þessari áætlun sinni og að viðbrögð hafi verið góð. Áætlunin byggir að nokkru á úttekt Háskólans á Bifröst á því hvaða byggðarleg áhrif Land- eyjahöfn muni hafa á atvinnulíf og búsetugæði í Eyjum þegar siglingaleiðin styttist úr tæpum þremur klukkustundum í hálfa klukkustund. „Þeir meta það sem svo að það séu gríðarlega miklar breytingar framundan sem við þurfum að búa okkur undir.“ Áætlunin gerir ráð fyrir að íbúum í Eyjum hætti að fækka árið 2008 og fjölgi um eitt prósent á ári næstu þrjú árin þar á eftir. „Á síðasta ári var minnsta fækk- un sem verið hefur frá árinu 1993 og það sem af er þessu ári er fjölgun. Þannig að þetta er að snú- ast við núna.“ En fleira verður gert en byggð stórskipahöfn. Áhersla verður einnig lögð á uppbyggingu ferða- þjónustu svo sem byggingu menn- ingarhúss, Náttúrugripasafns, nýs útivistarsvæðis og alger upp- bygging miðbæjarins. Alls er gert ráð fyrir að kostnaður sveitarfé- lagsins við þessar sérstöku fram- kvæmdir verði 1.853 milljónir króna. „Ég hugsa að þetta séu mestu framkvæmdir sem sveit- arfélagið hefur ráðist í eftir að uppbyggingu eftir gos lauk. Við erum afar bjartsýn.“ olav@frettabladid.is Landeyjahöfn kallar á stór- skipahöfn Í nýrri þriggja ára áætlun Vestmannaeyjabæjar er gert ráð fyrir framkvæmdum fyrir tæpa tvo millj- arða króna. Þar ber hæst framkvæmdir vegna nýrr- ar stórskipahafnar á utanverðu Eiðinu. FRÁ VESTMANNAEYJUM Eiðið heitir í raun Þrælaeiði og er sandeyri milli Klifsins og Heimakletts. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON UMHVERFISMÁL Fólki gefst kostur á að reynsluaka vetnis-, metan- og rafbílum á Miðbakkanum í dag. Þá fer fram sýning á þeim fjöl- mörgu visthæfu bifreiðum sem komnar eru í umferð hérlendis. Bílasýningin fer fram á milli klukkan 11 og 15. Við opnun sýningarinnar verður Nýsköpunarmiðstöð Íslands afhentur þrettándi vetnisfólksbíll- inn sem fer í almenna umferð hér- lendis. Þetta er Ford Focus efna- rafalabíll. Í tilkynningu frá Bílgreinasam- bandinu kemur fram að vetnis- bílafloti Íslendinga sé orðinn einn sá stærsti í heiminum. Þá fjölgi öðrum visthæfum bílum hérlendis jafnt og þétt. - ghs Sýning á Miðbakka á sumdardaginn fyrsta: Vetnisbílar prófaðir AFHENTUR Í DAG Gestum gefst kostur á að reynsluaka vetnis-, metan- og rafbílum á Miðbakkanum í Reykjavík milli ellefu og þrjú í dag eftir að nýr efnarafalabíll hefur verið afhentur. ÞÝSKALAND, AP Otto Schily, fyrr- verandi ráðherra í ríkisstjórn Gerhards Schröder, þarf að greiða þýska þinginu sekt fyrir að vilja ekki gefa þingforseta upplýsing- ar um tekjur sínar. Schily segist ekki vilja gefa upp tekjur af lögfræðistörfum sínum utan þings vegna trúnaðar- skyldu við skjólstæðinga sína. Þingið samþykkti að krefja hann um 22 þúsund evrur í sekt, rúmlega 2,5 milljónir króna. Þetta er í fyrsta sinn sem þing- manni í Þýskalandi er refsað fyrir að gefa ekki upp tekjur. Hann getur þó áfrýjað ákvörðun þings- ins. - gb Þýskur þingmaður neitar að gefa upp tekjur: Greiði þinginu sekt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.