Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 50
 24. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR12 ● fréttablaðið ● gæludýr Bólusetning ver hunda og ketti gegn skæðum sjúkdómum. Hanna María Arnórsdóttir, dýra- læknir á Dýraspítalanum að Kirkjulundi 13, Garðabæ, segir bólusetningu katta og hunda bráð- nauðsynlega til að verja þá gegn illvígum sjúkdómum. „Það á að byrja á bólusetningu hunda við smáveirusótt þegar þeir eru átta vikna. Svo aftur þegar þeir eru tólf vikna og ef mikil hætta er fyrir hendi er bólusett aftur þegar þeir eru orðnir fjögurra mánaða. Svo koma þeir ársgamlir og eftir það er bólusetningin annað hvert ár.“ Fái hundur smáveirusótt kemur hún fram í miklum uppköstum, jafnvel með blóði og einnig blóð- ugum niðurgangi, háum hita, slappleika og jafnvel meðvitundar- leysi að sögn Hönnu. Mjög há dán- artíðni er meðal hunda sem smit- ast af smáveirusótt eða fast að níu- tíu prósentum. „Hunda þarf síðan að bólusetja árlega gegn svoköll- uðum hótel-hósta eða kennel-hósta þegar það á við. Nafngiftina má rekja til þess að hundar sem helst fá hótel-hósta hafa verið innan um marga hunda, til dæmis á hunda- hótelum eða -sýningum. Hótel- hósti lýsir sér sem þurr og þrálát- ur hósti, rennsli úr augum og trýni og sumir fá hita. Hóstinn getur varað í þrjár til fjórar vikur.“ Ekki hefur verið hægt að bólu- setja gegn lifrarbólgu undanfarin ár þar sem framleiðslu var hætt á efninu að sögn Hönnu en nú er komið nýtt bóluefni sem dýralækn- ar bíða í ofvæni eftir. „Nóg verður að bólusetja hunda annað hvert ár með nýju bólusetningunni. Smit- ist hundur af lifrarbólgu getur það lýst sér með lystar leysi, upp- köstum, niðurgangi og blæðingu í húð sem endar oft með dauða, þótt sumir sýni engin önnur einkenni en bláma á auga.“ Að sama skapi þarf reglulega að bólusetja ketti. „Byrjað er að bólu- setja þá átta til tólf vikna og aftur fjórum vikum síðar fyrir katta- fári og kattainflúensu og einstaka sinnum við klamydíu sem er önd- unarfærasjúkdómur hjá köttum. Kattainflúensa lýsir sér með nef- og augnrennsli, hnerra og hita. Kattafár lýsir sér með hita, upp- köstum og blóðugum niðurgangi. Kisan heldur engu niðri og ef hún er ekki bólusett getur kattafár dregið hana til dauða á skömm- um tíma.“ Hanna segir hins vegar óþarfa að bólusetja nagdýr eins og kanínur, hamstra og naggrísi. - liz Nauðsynlegt að bólusetja Hér sést Hanna skoða hvolp sem þarf að bólusetja. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Þessir hvolpar voru hressir og kátir að sjá efitr að hafa fengið bólusetningu. Þökkum frábærar viðtökur á Belcando hundafóðrinu Fiskislóð 18 · 101 Reykjavík · Sími 552 7400 Afgreiðslutími er virka daga frá 11.00 - 18.00 og á laugardögum frá 11.00 - 16.00 Við höfum allt sem þarf til gæludýrahalds, hvort sem er fyrir hunda, ketti, fiska, nagdýr, fugla eða hesta. Við leggjum áherslu á gæðafóður fyrir hunda og ketti frá Belcando og Leonardo. Einnig erum við með mikið úrval af ýmsum sérvörum fyrir þessi dýr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.