Fréttablaðið - 24.04.2008, Page 4
4 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
Valdi var beitt í gær til að rýma
Suðurlandsveg við Norðlingaholt
af mótmælendum sem skeyttu
engu um margítrekuð fyrirmæli
lögreglu um að yfirgefa veginn.
Tuttugu voru handteknir og fjöl-
margir fengu piparúða í andlit.
Atvinnubílstjórar höfðu truflað
umferð með því að leggja tugum
flutninga- og sendibíla á og við
Suðurlandsveg til móts við þjón-
ustustöð Olís frá því um klukkan
níu um morguninn. Þeir hunsuðu
fyrirmæli lögreglu um að víkja.
Þegar klukkan var 25 mínútur
gengin í ellefu kallaði stjórnandi
lögreglunnar á vettvangi út tvo
flokka manna úr óeirðalögreglunni
sem beðið höfðu átekta í sendibíl-
um þar álengdar. Stilltu lögreglu-
mennirnir sér upp í fylkingu á veg-
kantinum andspænis
mótmæl endum sem neituðu stað-
fastlega að hopa. Að auki var mik-
ill fjöldi annarra lögreglumanna á
staðnum.
Handtökur boðaðar
„Farið af götunni! Þeir sem ekki
hlíta fyrirmælum geta átt von á
því að verða handteknir. Þetta eru
ólögleg mótmæli!“ hrópaði foringi
lögreglumannanna hvað eftir
annað. Hann uppskar aðeins háðs-
glósur og fúkyrði frá mótmælend-
um sem hvikuðu hvergi heldur
skoruðu á fleiri úr sínum röðum að
stilla sér upp á götunni. Umferð
var á þessum tímapunkti beint
fram hjá þessum kafla og um
Norðlingabraut, handan við Olís-
stöðina.
Smátt og smátt bjuggu meðlimir
óeirðalögreglunnar sig undir átök
með hjálmum, skjöldum, kylfum
og piparúða. Þegar kom í ljós að
lögregla væri reiðubúin að beita
piparúðanum drógu sumir mót-
mælendanna upp olíuúðabrúsa.
Þegar klukkuna vantaði þrettán
mínútur í ellefu var lögreglumönn-
unum skipað í viðbragðsstöðu.
„Strákar mínir, þannig að þetta
fari ekkert á milli mála: Við viljum
ekki þurfa að beita valdi gegn
ykkur. Þannig að við viljum mæl-
ast til þess með góðu að þið rýmið
götuna,“ sagði stjórnandi lögreglu
á vettvangi og ítrekaði að það væru
hans síðustu skilaboð.
Upp úr sýður
Klukkan fimm mínútur í ellefu
sauð loks upp úr. Einn bílstjóranna
hugðist fara í bílinn sem hann
hafði lagt á Suðurlandsveginum.
Þangað vildu lögreglumennirnir
ekki hleypa honum og kom til
stympinga milli hópanna og var
táragasi beitt. Ökumaðurinn og
fleiri voru handteknir. Tveimur
mínútum síðar notaði lögregla
aftur piparúða og þvingaði mann-
skapinn af veginum með skjöldum
sínum. Fleiri voru handteknir.
Eftir þetta tók við um fimm
klukkustunda atburðarás þar sem
framan af skarst reglulega í odda
milli lögreglu og mótmælenda og
enn bættist í hóp handtekinna. Víg-
línan færðist frá Suðurlandsvegi
og að lóðamörkum Olís og þar á
milli, fram og til baka. Eggjum og
fleiru var kastað að lögreglumönn-
um sem svöruðu á stundum með
piparúða.
Fjölmenni drífur að
Stöðugt bættist í hóp mótmælenda
og voru framhaldsskólanemar
áberandi, sérstaklega þeir sem
voru að dimitera. Mætti þar meðal
annarra Adolf Hitler úr Iðnskólan-
um í Hafnarfirði. Af innlendum
stjórnmálamönnum sást aðeins til
Grétars Mars Jónssonar, alþingis-
manns úr Frjálslynda flokknum.
Á meðan lögregla glímdi við að
fjarlægja þá flutninga- og sendi-
bíla sem kyrrsettir voru á Suður-
landsvegi óku aðrir atvinnubíl-
stjórar ýmist löturhægt eða
stöðvuðu bíla sína alveg á
Norðlingabraut sem var hjáleið á
meðan á óeirðunum stóð. Um
klukkan fjögur var loks unnt að
opna Suðurlandsveg að nýju.
gar@frettabladid.is
ÁTÖK Í NORÐLINGAHOLTI
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
14°
16°
18°
15°
13°
15°
18°
16°
13°
19°
24°
20°
16°
18°
27°
26°
28°
16°
4
Á MORGUN
NA-8-13 m/s á Vest-
fjörðum annars hægari.
13
LAUGARDAGUR
5-10 m/s en hægari
á Suðurlandi.
8
11
13
12
11
9
10
9
12
10
5
1
4
1
2
6
6
6
6
6
10
8
1011
2 2
2
1010
GLEÐILEGT
SUMAR
Jæja þá er sumarið
loksins komið. Það
heilsar með ágæt-
isveðri enda þótt
einhver væta sé
með landinu sunn-
anverðu. Það eru
reyndar horfur á að
það kólni á landinu
norðanverðu um
helgina, sérstaklega
á sunnudag og þá
með slyddu eða
snjókomu norðan
og austan til.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
Piparúða beitt á bílstjóra
Tuttugu manns voru handteknir þegar óeirðalögregla beitti táragasi gegn bílstjórum sem neituðu að víkja
af Suðurlandsvegi í gær. Átök brutust út hvað eftir annað meðan lögregla var að fjarlægja flutningabílaana.
PIPARÚÐA ÓSPART BEITT Aðgerðadeild lögreglunnar sprautaði piparúða til að fá mótælendur til að hlýða fyrirmælum. Hér hefur leikurinn borist inn á starfsstöð Olís.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDTEKINN Tuttugu manns voru yfirbugaðir og færðir til skýrslutöku.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við stóðum bara og fylgdumst
með mótmælunum, réttum megin
við gula borðann, þegar lögreglan
úðaði allt í einu
piparúða yfir
hópinn. Ég fékk
gusu beint í
augun,“ segir
Kolbrún
Valsdóttir.
Kolbrún og
Björgvin
Hermannsson
segja ekkert hafa
kallað á þessi
viðbrögð lögreglu. Kolbrún fékk
aðhlynningu í sjúkrabíl.
Róbert Guðmundsson frá
Eyrarbakka festist á Olísplaninu á
leið til vinnu. „Ég sá lögregluna
byrja að berja einn bílstjórann
sem vildi fara. Ég stóð við dæluna
og horfði á og allt í einu fékk ég
gusu í augun. Ég þurfti að fá
skolun á Slysavarðstofunni. Ég hef
haft samband við lögfræðing og
mun kæra,“ segir Róbert. - kóp
Saka lögreglu um harðræði:
Úðuð piparúða
Sturla Jónsson, talsmaður
atvinnubílstjóra, segir upphaf
átakanna í gær lögreglu að kenna.
„Hún meinaði
einum bílstjóra
að færa bílinn
sinn og tók hann
fantatökum í
staðinn. Við það
kviknuðu
mótmælin,“
segir Sturla.
Hann segir að
menn séu alls ekki hættir mótmæl-
um enda fullvissir um að þjóðin
standi með þeim. Sjálfur varð hann
fyrir táragasi frá lögreglu og
yfirgaf svæðið þess vegna.
Lögregla braust síðar inn í bíl
Sturlu og dró burtu. „Ég hef haft
samband við lögfræðing og mun
klárlega kæra eignaspjöll, enda
bílnum löglega lagt,“ segir Sturla.
-kóp
Sturla segir lögreglu bera sök:
Alls ekki hættir
KOLBRÚN
VALSDÓTTIR
STURLA JÓNSSON
GENGIÐ 23.04.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
150,0292
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
73,40 73,76
146,09 146,81
117,11 117,77
15,694 15,786
14,794 14,882
12,579 12,653
0,7115 0,7157
120,65 121,37
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR