Fréttablaðið - 24.04.2008, Síða 18
18 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Mannabein
„Þetta stóð út úr bakka,
þar sem sjór hefur brotið af
landi, þegar ég sá þetta.“
ÁRNI ÞÓR HELGASON STÁLSMIÐUR
Á ÍSAFIRÐI
Fréttablaðið 22. apríl
Óvissa
„Alvara málsins er sú að
tæplega þriðjungshlutur í HS
er í óvissu.“
ÁSGEIR MARGEIRSSON FORSTJÓRI
GEYSIS GREEN ENERGY
Morgunblaðið 22. apríl
Meistaranemar í sögu og
heimspeki við Háskóla
Íslands vinna að rannsókn-
arverkefnum í tengslum
við tölvuleikinn EVE-On-
line. Samfélag leiksins er
heppilegur vettvangur fyrir
rannsóknir, segir forstjóri
CCP.
„Það er athyglisvert að sjá hvernig
lýðræðinu reiðir af í þessu
skemmtilega samfélagi,“ segir
Pétur Jóhannes Óskarsson, meist-
aranemi í heimspeki, sem vinnur
nú að rannsókn á þróun lýðræðis í
tölvuleiknum EVE-Online.
Rannsóknin er unnin í samstarfi
við CCP, sem framleiðir leikinn, og
er um leið lokaverkefni Péturs við
Háskóla Íslands. „Ég er að skoða
hvernig hugmyndir manna um lýð-
ræði lifa af í þessu samfélagi sem
leikurinn er. Meðal annars skoða
ég kenningar heimspekinganna
Jean-Jacques Rousseau og John
Rawls í þessu samhengi og hvern-
ig þær samrýmast lýðræðisþróun í
leiknum,“ segir Pétur.
Leiðbeinandi Péturs í verkefn-
inu er Róbert H. Haraldsson próf-
essor við hugvísindadeild.
Hilmar Veigar Pétursson, for-
stjóri CCP, segir það færast í vöxt
að háskólarannsóknir séu unnar í
samstarfi við CCP. Leikurinn sé
heppilegur til rannsókna. „Það
kemur okkur ekki á óvart að EVE-
Online samfélagið sé notað til
margvíslegra háskólarannsókna.
Við höfum
talað fyrir því
frá upphafi að
samstarf við
háskóla væri
heppilegt og
starfsemi af
því tagi er
sífellt í vexti,“
segir Hilmar
Veigar. „Það
er vel mögu-
legt að byggja
brýr inn í
háskóla með
samfélagi leiksins og eftir að við
réðum dr. Eyjólf Guðmundsson
sem yfirhagfræðing hefur áhugi á
rannsóknarverkefnum verið að
aukast töluvert.“
Erlendir háskólar hafa sýnt sam-
félagi EVE-Online áhuga og er
MIT (Massachusetts Institue of
Technology) í Boston, í gegnum
Háskólann í Reykjavík, meðal
háskóla sem vinna að rannsóknum
sem tengjast samfélagi leiksins.
EVE-Online leikurinn hefur
vaxið og dafnað ár frá ári síðan
honum var komið á laggirnar árið
2003. Samtals eru 236 þúsund
manns sem spila leikinn reglulega.
Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt
frá því leiknum var komið á.
Spilarar leiksins koma flestir
frá Evrópu og Bandaríkjunum, um
fjörutíu prósent af heildarfjölda
úr hvorri heimsálfu. Um tuttugu
prósent spilara eru frá öðrum
heimsálfum. Örlítið brot af spilur-
um leiksins kemur frá Íslandi,
nokkuð innan við eitt prósent.
magnush@frettabladid.is
Rannsaka sögu
og lýðræði EVE
PÉTUR JÓHANNES
ÓSKARSSON
■ Vinstri umferð
á sér langa sögu.
Þegar vopnaðir
menn mættust
var tryggast að
hafa höndina sem sverðinu brá
sömu megin og sá var, sem
á móti kom. Hægri umferð
verður rakin til frönsku stjórn-
arbyltingarinnar. Fram að henni
náði stéttaskiptingin til umferð-
arinnar. Aðallinn ók vögnum
sínum vinstra megin og bolaði
alþýðunni út á hægri kantinn.
Gangandi almúgamenn héldu
sig til hægri og viku út á vegkant
fyrir umferð höfðingjanna. Eftir
byltinguna 1789 töldu aðalsmenn
tryggara að láta lítt á sér bera og
slógust í för með borgurunum.
VINSTRI UMFERÐ
FYRSTA FORVÖRNIN
„Það er allt það besta að frétta af mér. Allt vit-
laust að gera í vinnunni, heilu auglýsingaherferð-
irnar með tökum og öllu tilheyrandi fram undan í
maí og mikið stuð,“ segir Dröfn Ösp Snorradóttir,
einnig þekkt sem DD-unit. Dröfn starfar sem
viðskiptastjóri og hugmyndasmiður á auglýs-
ingastofunni Fíton milli þess sem hún skrifar um
heitasta slúðrið á vinsælli bloggsíðu sinni,
eyjan.is/dd-unit.
„Ég er ekki alveg nógu dugleg við
að uppfæra síðuna mína en það er
klárlega á dagskránni að herða
mig í þeim efnum,“ segir
Dröfn. Aðspurð um sum-
arið fram undan segist
Dröfn hafa ýmislegt
skemmtilegt í bígerð. „Í
fyrsta sinn á ævinni fæ
ég fimm vikna sumarfrí
og er hæstánægð með
það, líður nánast eins ég hafi unnið í lottó. Ég hef
hugsað mér að ferðast í fríinu, ætla til dæmis að
keyra hringinn í kringum landið og í enda maí
ætla ég að skella mér til Berlínar í viku. Ég hef
aldrei komið þangað en hef heyrt frá mörgum að
borgin sé frábær, og þá sérstaklega austurhluti
hennar.“
Það verður þó ekki stanslaus útivera hjá
Dröfn í sumar því hún hefur hug á að fylgjast
vel með EM í knattspyrnu í sjónvarpinu. „Ég
fylgist alltaf með stórmótunum í boltanum
og kom til dæmis skjannahvít heim úr
útskriftarferðinni minni til Spánar því ég
eyddi mestum tímanum inni á bar að
horfa á HM í fótbolta. Mínir menn
Englendingar og Danir eru því miður
ekki með í ár en líklega styð ég bara
Portúgal. Ronaldo spilar nú einu
sinni með þeim,“ segir Dröfn og hlær
tvíræðum hlátri.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? DRÖFN ÖSP SNORRADÓTTIR VIÐSKIPTASTJÓRI
Býr sig undir EM í knattspyrnu
ÚR LEIKNUM Mikill fjöldi tekur þátt í netleiknum Eve-Online. Meistaranemi í heim-
speki rannsakar nú hvernig lýðræðinu reiðir af í leiknum.
Markús Andri Gordon Wilde, meist-
aranemi í sagnfræði við Háskóla
Íslands, vinnur að fimm eininga
einstaklingsverkefni þar sem saga
leiksins EVE-online er til rannsókn-
ar. „Ég heyrði Hilmar forstjóra CCP
ávarpa Fan-fest-hátíð fyrir spilara
leiksins í nóvember síðastliðnum
þar sem hann bar saman manns-
ævir sem höfðu farið í að reisa
Kárahnjúkavirkjun annars vegar og
svo gerð EVE-online hins vegar. Þá
fékk ég þessa hugmynd að það væri
gaman að skoða sögu leiksins og
hvernig samfélag í leiknum hefur
verið að þróast. Það er mikil vinna
margra að baki því samfélagi sem
spilarar eru nú þátttakendur í,“ segir
Markús Andri.
Hann nálgast viðfangsefni sitt út
frá tveimur rannsóknarspurning-
um: Á yfir höfuð að vera skrá sögu
EVE-online? Og: Hvernig er best að
huga að skrásetningu sögunnar?
„Ég talaði við Dr. Eyjólf [Guðmunds-
son], akademískan tengil hjá CCP, í
nóvember síðastliðnum og byrjaði
svo að huga að verkefninu í febrúar.
Þetta er spennandi,“ segir Markús
Andri.
SAGA EVE-ONLINE RANNSÖKUÐ
Netverð á mann miðað við
2, 3 eða 4 í stúdíó, íbúð eð
a hótelherbergi.
Enginn barnaafsláttur. Inni
falið er fl ug, gisting í 7 næ
tur, fl ugvallarskattar
og íslensk fararstjórn.