Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 22
22 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
Tveggja ára ströngu ferli
lauk formlega á þriðjudag
þegar íslenskum háskólum
voru afhentar viðurkenn-
ingar menntamálaráðuneyt-
isins á þeim fræðasviðum
sem þeir starfa. Í ávarpi
menntamálaráðherra við
það tilefni kom fram að
niðurstöður sérfræðinga-
nefnda hvettu til aukinnar
samvinnu og sameiningar
háskóla.
Smæð íslenska háskólakerfisins
gerir það að verkum að íslenskir
háskólar þurfa að vinna meira
saman, sérstaklega þeir sem
starfa á sömu fræðasviðum. Mjög
litlir skólar geta aldrei haldið
uppi háskólakennslu á sama
gæðastaðli og stórir háskólar, og
því er æskilegt að sameina
háskóla til að byggja upp og efla
fræðilega hæfni þeirra. Þetta er
meðal þeirra ábendinga sem
ítrekað komu fram í niðurstöðum
sérfræðinganefnda sem fjallað
hafa um umsóknir íslenskra
háskóla um viðurkenningu á þeim
fræðasviðum sem starfsemi
þeirra tekur
til, á síð-
ustu
tveimur árum.
Einnig kemur fram í niðurstöð-
unum gagnrýni á innra gæðaeft-
irlit háskólanna og telja nefnd-
irnar íslenska háskóla almennt
skorta skýrari stefnumótun. Þeir
dreifi kröftunum óþarflega mikið
með því að halda úti mörgum,
veikburða námsleiðum í stað þess
að forgangsraða og sérhæfa sig á
afmarkaðri sviðum.
„Ég mun beita mér fyrir auknu
samstarfi og spái því að við
munum sjá enn frekari umbreyt-
ingar á háskólasamfélaginu á
næstu misserum en verið hefur,“
segir Þorgerður Katr-
ín Gunnars-
dóttir
mennta-
málaráð-
herra. „Í sumar munum við upp-
lifa stóra og mikilvæga
sameiningu í átt til eflingar kenn-
aramenntunar þegar Kennarahá-
skólinn og Háskóli Íslands verða
sameinaðir. Við skulum bíða og
sjá með allar frekari sameining-
ar en þetta eru vissulega álita-
efni sem okkur ber að taka alvar-
lega.“
Sérfræðinganefndirnar voru
hins vegar mjög ánægðar með
aðlögun skólanna að viðmiðum
um æðri menntun og prófgráður.
Einnig töldu nefndirnar að í nær
öllum tilfellum væri aðbúnaður
starfsfólks og nemenda til fyrir-
myndar. kjartan@frettabladid.is
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
44
6
1.
43
4
nám, fróðleikur og vísindi
Opið hús verður hjá Háskólanum á Akur-
eyri, Borgum í dag, sumardaginn fyrsta
milli klukkan 13 og 15. Þá verður opið hús
í Háskólanum á Bifröst frá klukkan 14 til
17. Fólk fær tækifæri til að kynna sér nám
við háskólana og spjalla við nemendur og
kennara skólans. Á Akureyri fá öll börn sem
mæta sumargjöf og ís auk þess sem nem-
endur í leikskólakennarafræði munu lesa
valda kafla úr uppáhaldsævintýrum sínum.
Á Bifröst geta börnin farið á hestbak og leikið sér í leiktækjum á háskólatorg-
inu. Boðið verður upp á veitingar.
■ Kynning á starfsemi skóla
Opið hús hjá HA og Bifröst Mælt með sameiningu
háskóla á landinu
Kjarni málsins
> Fjöldi kennara í framhaldsskólum, með og án kennslu-
réttinda, skólaárið 2006-2007
Svafa Grön-
feldt, rektor
Háskólans
í Reykjavík,
segir skipta
gríðarlegu
máli að
nemendur
og kenn-
arar hafi
valkost þegar
kemur að
háskólum. „Við þurfum fleiri en
einn og fleiri en tvo öfluga háskóla.
Hins vegar er það afar mikilvægt að
skólarnir verði ekki það margir og
það litlir að þeir nái ekki að standa
á eigin fótum.“ Aðspurð um álit sér-
fræðinefndar um æskilega samein-
ingu háskóla segir Svafa það alls ekki
eiga við Háskólann í Reykjavík. „Við
og HÍ erum af þeirri stærðargráðu
sem vel getur staðið í innlendum og
erlendum samanburði.“
SKIPTIR ÖLLU AÐ
HAFA VALKOST
SVAFA GRÖNFELDT,
REKTOR HR
Háskóli Íslands: á sviðum hugvís-
inda, lista, náttúruvísinda, verk- og
tæknivísinda, heilbrigðisvísinda og
félagsvísinda
Háskólinn í Reykjavík: á sviðum
verk- og tæknivísinda og félagsvís-
inda
Háskólinn á Akureyri: á sviðum
félagsvísinda, heilbrigðisvísinda og
auðlinda- og búvísinda
Landbúnaðarháskóli Íslands: á
sviðum náttúruvísinda og auðlinda-
og búvísinda
Kennaraháskóli Íslands: á sviðum
félagsvísinda, sem kennaramennt-
unin fellur undir
Háskólinn á Bifröst: á sviði félags-
vísinda
Háskólinn á Hólum: á sviðum
auðlinda- og búvísinda
Listaháskóli Íslands: á sviði lista
VIÐURKENNINGAR
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTISINS
„Sameining er
ekkert töfraorð
í sambandi við
háskóla frekar
en það er töfra-
orð í sambandi
við viðskipti og
fyrirtæki. Sumir
álíta að svo sé
en það er ekki
þannig, þetta fer
eftir aðstæðum
hverju sinni,“ segir Ágúst Einarsson,
rektor Háskólans á Bifröst, aðspurður
um það álit sérfræðinefndanna að
aukin sameining háskóla sé æskileg.
Ágúst segir samvinnu vera af hinu
góða en engin sameiningaráform séu
á döfinni á Bifröst. „Okkur gengur
ágætlega í þeirri einingu sem við
erum í hér og meðan svo er höldum
við áfram í þeim ramma sem nú er
búið að veita okkur viðurkenningu
fyrir.“
SAMEINING ER EKKI
TÖFRAORÐ
ÁGÚST EINARSSON
REKTOR Á BIFRÖST
Þorsteinn
Gunnars-
son, rektor
Háskólans á
Akureyri, telur
sameiningu af
einhverju tagi
ríma fremur
illa við hlutverk
skólans.
„Við teljum
okkur gegna
því afar mikilvæga hlutverki að byggja
upp háskólamenntun á landsbyggð-
inni. Sameining okkar við háskóla
í Reykjavík myndi vinna gegn því
markmiði að mínu mati. Hins vegar
eigum við í góðu samstarfi við marga
háskóla, bæði innanlands og erlendis,
og slíkt samstarf höfum við í hyggju
að rækta,“ segir Þorsteinn.
SAMRÝMIST ILLA
HLUTVERKI OKKAR
ÞORSTEINN GUNN-
ARSSON, REKTOR HA
TILBOÐ
kr.: 129.900
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna
frá Miele
Miele gæði
Miele þvottavélar
M
eð
k
en
ns
lu
ré
tt
in
di
Án
k
en
ns
lu
ré
tt
in
da
VIÐURKENNING Háskólar
fengu viðurkenningu
menntamálaráðuneytis-
ins á þriðjudag.
Hans Pjetursson stundar BA-nám í upptöku-
fræðum við School of Audio Engineering í
London, einn stærsta hljóðmenntunarskóla
heims. Hann segir gremju með eigin kunn-
áttuleysi hafa ráðið því að hann ákvað að
leggja upptökufræði fyrir sig. „Ég hef lengi
verið að fikra mig áfram með að búa til
tónlist og með það að markmiði keypti ég
mér pro-tools upptökugræjur fyrir nokkrum
árum. Ég kunni ekkert á græjurnar og náði
engu almennilegu hljóði út úr þeim að mér
fannst, þannig að rökrétt næsta skref var
að skella sér í skóla og læra að gera þetta
almennilega.“
Hans er nýfluttur til London þar sem
hann lýkur við síðari hluta námsins, gráðu-
hlutann, en hann gengur að öllu leyti út
á bóklegt nám og ritgerðir. Verklega hluta
námsins, diplómuhlutann, stundaði Hans
hins vegar í Liverpool á síðasta ári. „Fyrri
hlutinn snerist um að læra listina á bak við
upptökur í hljóðveri, að taka upp hljóm-
sveitir, mixa, útsetja og slíkt. Þeir bjóða
ekki upp á að taka gráðuárið í Liverpool,
því miður, því ég kunni afskaplega vel við
mig þar og hefði gjarnan viljað vera lengur.
Í Liverpool eignaðist ég heilan haug af
góðum vinum og þar er mikið um skemmt-
anir og góða tónleika. Smæð samfélagsins
í borginni átti líka mjög vel við mig, en
London er töluvert stærri og varla hægt að
líkja borgunum saman. Á móti kemur að
hér í London er hægt að gera bókstaflega
allt. Námið er mjög skemmtilegt og gaman
að geta hellt sér út í það sem vekur áhuga
manns.“
Hans segir framtíðina verða að leiða í
ljós í hvað hann nýti námið í framtíðinni,
en draumarnir eru skýrir. „Ég ætla að stofna
mitt eigið stúdíó og verða næsti Þorvaldur
Bjarni. Svo langar mig að vinna með Björk,
og þegar því er lokið vil ég vinna með Stuð-
mönnum. Þá verður takmarkinu náð,“ segir
Hans og hlær.
NEMANDINN HANS PJETURSSON LEGGUR STUND Á UPPTÖKUFRÆÐI Í LONDON:
Ætlar að verða næsti Þorvaldur Bjarni