Fréttablaðið - 24.04.2008, Page 40
● fréttablaðið ● sumar í lofti 24. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR2
Náttúran er í eðli sínu óhamin,
þótt víða sé skipulag á óreiðunni.
Mannfólkið gerir skurk í því að
hemja illgresi og arfa, kantskera
grasbala, raða blómum saman í
litaröð og stilla upp álfum og gos-
brunnum fyrir augað að njóta. Í
garðyrkjustörfum er oft mikið um
að vera eins og sjá má á moldugum
höndum og stráum í hári þeirra
sem verkin vinna. Í því felst líka
sjarmi útiveru og gróðurræktar,
sem fyllir sálina vellíðan. Og þótt
aurug stígvél og lúnar skóflur séu
ekki alla jafnan til uppstillingar
bera þau vitni um náið og gagn-
virkt samband mannsins við sköp-
unarverk og náttúru. - þlg
Vinnan göfgar manninn
Garðáhöld og stígvél fjölskyldunnar í návist blóma uppi við snjáða hurð.
NORDICPHOTOS/GETTY
Skógrækt áhugamannsins er
yfirskrift námskeiðs á vegum
Skógræktarfélags Íslands í
byrjun maí.
„Alls kyns ræktun er mjög rík í
eðli mínu. Ég er fæddur og upp-
alinn norður í Skagafirði og rak
þar búskap á árunum 1957-1967.
Þetta gerði ég samhliða námi en
flutti síðan suður og starfaði sem
skólastjóri í Hagaskóla í áratugi.
Skógræktin kom til sögunnar hjá
mér um 1975 og hefur síðan verið
mitt helsta tómstundastarf,“ segir
Björn Jónsson, sem mun leiða
námskeið hjá Skógræktarfélagi Ís-
lands í byrjun maí. Námskeiðið ber
yfirskriftina „Skógrækt áhuga-
mannsins“ og er miðað að þörfum
áhugafólks sem vill ná árangri í
ræktunar starfinu.
„Ég hóf skógrækt fyrir alvöru
fyrir austan að Sólheimum í Land-
broti. Konan mín, Guðrún Magnús-
dóttir, er þaðan en við tókum við
þeirri jörð þegar búskapur lagð-
ist af. Þetta er mikill dýrðarstaður
sem fjölskyldan hefur mikla
ánægju af,“ útskýrir Björn, sem
segir garðinn heima á Seltjarnar-
nesinu frekar hefðbundinn. „Þá
byrjaði ég að planta öllum algeng-
ustu trjátegundum á borð við greni,
furu og ösp. Þó ekki birki, sem
þrífst ekki fyrir austan. Ég náði
mjög góðum árangri með ræktun-
ina og var í kjölfarið beðinn um að
halda námskeið fyrir áhugamenn,“
segir Björn, sem telst til að um
tvö þúsund manns hafi sótt þessi
námskeið frá upphafi árið 1995.
„Þetta er ýmist fólk sem á sumar-
hús eða landspildu í sveit eða fólk
með skógræktar áhuga. Síðan er
mjög ánægjulegt að allir sem hafa
sótt námskeiðin segja að ræktun-
in gangi mun betur,“ segir Björn
og nefnir þrjá þætti sem forsendu
fyrir góðri rækt. „Á síðustu öld,
þegar menn voru að þreifa fyrir sér
í skógrækt á Íslandi, plöntuðu þeir
of þétt og voru hræddir við notk-
un á áburði. Ég hins vegar passa að
planta með góðu millibili og blanda
saman lífrænum og tilbúnum
áburði. Það er ein helsta forsend-
an fyrir velgengninni, í bland við
heilbrigða skynsemi. Þetta gekk
þó nokkuð erfiðlega í byrjun, en ég
lærði smám saman af reynslunni,“
segir Björn, sem sýnir litskyggn-
ur af ræktunarstarfi og talar ítar-
lega með á námskeiðinu. Auk þess
hvetur hann fólk til að spyrja sem
mest. Einnig getur fólk haft sam-
band eftir námskeið og Björn hefur
fengið ófá símtöl úr görðum héðan
og þaðan. „Ég hef bara gaman af
því að leiðbeina fólki og því er vel-
komið að hringja. Síðan hef ég líka
kíkt á ræktun og hef fengið ágætis
skemmtun út úr þeim ferðum,“
segir Björn.
Námskeiðið er haldið dagana
7. og 8. maí kl. 20-22.30 og kostar
kr. 10.000 á mann, en 6.500 fyrir
félagsmenn í skógræktarfélagi.
Innifalin eru námskeiðsgögn og
kaffi. Veittur er tuttugu prósenta
hjónaafsláttur. Þátttakendafjöldi
er takmarkaður á hvert námskeið.
Skráning fer fram á skrifstofu
Skógræktarfélags Íslands í síma
551-8150 eða á skog@skog.is. Allar
nánari upplýsingar. www.skog.is
- rh
Myndarlegt ræktunarstarf
Skógræktin er rík í eðlinu segir Björn Jónsson, sem leiðbeinir áhugasömum um
ræktun á námskeiði í byrjun maí. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
● SANNKALLAÐ ÞARFAÞING
Garðstólar eru sannkallað þarfaþing í garðinum
á sumrin. Eftir að garðurinn hefur verið tekinn
í gegn er gott að geta sest niður til að horfa á
afrakstur dagsins, setjast niður með góða bók eða
gera hreinlega ekki neitt, njóta veðurblíðunnar
og hafa það gott. Þar
að auki geta fallegir
garðstólar gert mikið
fyrir umhverfið.
Garðstólar fást í
ýmsum gerðum
og stærðum.
Akralind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 4656 • Fax 544 4657 •
Husqvarna Construction Products
STEINSAGIR, kJARNABORVÉLAR, GOLF OG VEGSAGIR
DM 230
K750
K2500
K3600K3600
FS 400
Steinsagablöð og kjarnaborar