Fréttablaðið - 24.04.2008, Síða 44
● fréttablaðið ● sumar í lofti 24. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR6
Hengirúm hafa yfir sér heillandi
töfraljóma og lokkandi blæ. Þau
eru rómantísk fyrir elskendur að
kúra í saman og njóta hvors ann-
ars, en kunnust fyrir að draga nær
alla þá sem vilja njóta slökunar
nánast umsvifalaust á tálar.
Hengirúm eru víða vinsæl sem
afdrep til lesturs, hvíldar, kelerís
og kossaflangs.
Algengt er að sjá litrík og
værðar leg hengirúm í bakgörð-
um, við sumarhús og á milli trjáa
við vötn og strendur, þar sem þau
veita vörn gegn heitri sumarsól og
skordýrum, ásamt því að skaffa
hið fullkomna næði fyrir áreiti
umhverfisins. Hengirúm eru
einnig notuð sem hvílur í skip og
geimflaugar. - þlg
Hangið í sumarsól
Það er erfitt að standast hvíldarstund í hengirúmi, enda kjörinn staður fyrir lestur, ró
og næði. NORDICPHOTOS/GETTY
Fuglahús gleðja gjarnan augað en þau þurfa líka að uppfylla
hlutverk sitt sem er að veita íbúunum skjól og hlýju.
Fátt er yndislegra en fjörlegur fuglasöngur í garði. Margir vilja hlúa að
smávinum fögrum með sætum fuglakofum í görðum sínum, en þegar
fuglahúsi er komið fyrir utanhúss til að lokka að fagran fugl með unga,
skal hafa í huga að með húsinu verður þú ábyrg(ur) fyrir lífi fugls og
unga.
Fuglar gera sér hreiður til að vernda unga sína fyrir veðri og
rándýrum. Flest fuglahús í búðum eru aðallega fyrir auga mannfólks-
ins gerð og veita fuglum ekki nauðsynlega vernd. Þúsundir fugla slasast
eða láta lífið í krúttlegum en óvönduðum fuglahúsum á hverju ári.
Ekki setja út fuglahús ef það hefur á sér fuglaprik, því það auðveldar
rándýrum að gera árás á hreiður. Fuglahús úr þunnum við ber að varast
þar sem húsin ofhitna í sólskini og verða of köld um nætur.
Fuglahús má aldrei byggja úr sedrusvið, sem inniheldur sýrur sem
valda sumu fólki astma, og kæfa unga við innöndun á heitum dögum.
Fuglahús verða að hafa fullnægjandi loftræstingu. Ungar drepast
annars á heitum dögum þegar móðir þeirra situr í loftopinu í baráttu við
að reyna að ná andanum. - þlg
Heim í hreiðrið trausta
Að mörgu þarf að huga við gerð fuglahúsa svo þau uppfylli fullnægjandi kröfur.
Dýr eins og kettir eiga sjálfsagt ekki
greiðan aðgang að þessu fuglahúsi.
Fuglar eru hrifnir af eplum og hugulsamt að gauka að þeim sætindum náttúrunnar í
bland við gómsæti í garðinum. NORDICPHOTOS/GETTY
Fuglahús þurfa að vera þannig úr garði gerð að íbúum þess heilsist vel.
Einstaklega litríkt fuglahús sem sómir
sér vel í þessu fallega blómabeði.
Reykjalundur er rótgróið fyrirtæki og á sér langa sögu í framleiðslu á plast-
vörum. Fyrirtækið hefur nú í seinni tíð aukið þjónustu á öðrum sviðum t.d. í
plastfittings, dælubúnaði hverskonar, gólfhitakerfum svo fátt eitt sé talið.
Reykjalundur framleiðir hina kunnu Búreks girðingastaura sem hafa notið mikilla
vinsælda og reynst vel í margbreytileika íslensks veðurfars og landslags.
Einnig býður Reykjalundur paströr, allt frá hefðbundnum vatnsrörur til röra, sem
henta vel til ræsagerðar.
Starfsmenn söludeildanna í Mosfellsbæ og á Akureyri veita ráðgjöf við efnisval
ásamt frekari upplýsingar um vörur og þjónustu Reykjalundar.
Aukin þjónusta
Reykjalundar
um allt land
PLASTRÖR, DÆLUR, FITTINGS, RAFGIRÐINGAR
Þórsstíg 4, 600 Akureyri, sími 460 1760, 270 Mosfellsbær, sími 530 1700, rp@rp.is