Fréttablaðið - 24.04.2008, Qupperneq 46
24. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR8 ● fréttablaðið ● gæludýr
Gunnar Vilhelmsson, eigandi
Dýraríkisins, á sér dyggan en
nokkuð sérstakan aðdáanda.
Þegar Dísa kom til landsins frá
Hollandi fyrir þremur árum
hefur hún sjálfsagt ekki átt von á
því að verða yfir sig ástfangin. En
sú varð einmitt raunin þegar hún
féll fyrir Gunnari Vilhelmssyni
verslunareiganda. Vandamálið er
hins vegar að Dísa er fugl af teg-
undinni cacatua sulphura.
„Það tók nokkurn tíma fyrir
ástina að kvikna en ég hef ekki
hugmynd um hvað olli þessari
breytingu,“ segir Gunnar bros-
andi, en hann er eigandi Dýra-
ríkisins þar sem Dísa býr. „Dísa
gerir mikinn mannamun. Suma
elskar hún en þá sem henni líkar
ekki við bítur hún og það fast.
Raunar má segja að Dísa leggi
sig fram um að bíta þá sem henni
líkar ekki við.“
En bit eru fjarri huga Dísu
þegar Gunnar tekur hana á
fingur sér. Þá kyssir hún hann
stanslaust. „Ég hef ekkert gert
til að gera Dísu hændari að mér
en önnur dýr hér í versluninni,“
segir Gunnar, en þegar hann birt-
ist í versluninni byrjar Dísa að
blaka vængjum og hleypur til og
frá á priki sínu. „Hún er mikill
karakter og ákvað upp úr þurru
að ég væri makinn hennar.“
Dísa er óvenju fallegur fugl af
sérstakri fuglategund, cacatua
sulphura. „Þeir fuglar eru í út-
rýmingarhættu svo það er ólík-
legt að annar fugl af þessari ein-
stöku tegund komi til landsins,”
segir Gunnar, en verðið á Dísu er
um hálf milljón króna. „Ég keypti
Dísu af fuglaræktanda í Hollandi,
en tegundin kemur frá Indónes-
íu. Dísa gæti náð háum aldri, því
fuglar af þessari tegund geta orðið
sextíu til sjötíu ára gamlir.“
Gunnar segir að hann bindist
dýrunum í búðinni sterkum bönd-
um og oft sé eftirsjá að þeim sem
seljast. Hann nefnir í því sam-
bandi fugla af tegundinni African
Grey sem seldust fyrir nokkrum
mánuðum og er sárt saknað. „Ég
var með mikið af fuglum hér fyrir
jólin 2006 og þá voru til dæmis sex
gaukar í sóttkvíarýminu. Þá leit
Dísa nú ekki við mér! Nú hefur
það hins vegar breyst mikið og ef
hún yrði seld veit ég að ég myndi
sakna hennar mikið.“ - liz
Á vængjum ástarinnar
Þessi fallegi páfagaukur heitir Lovísa og er af tegundinni Red-Sided Eclectus.
Fjöldi skrautfiska fæst í Dýraríkinu. Hér má sjá skrautfisk af tegundinni Black and
White Butterfly.
Kakadúinn Dísa getur ekki leynt hrifningu sinni á Gunnari Vilhelmssyni, eiganda Dýraríkisins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Verslanir Dýraríkisins eru nokkrar og þykir sú nýjasta að Miðhrauni afar glæsileg.
Fjölskyldu- og húsdýragarður-
inn býður upp á skemmtileg
og fræðandi sumarnámskeið
þar sem börn komast í kynni
við veröld dýra og vísinda.
„Hani, krummi, hundur, svín er
heiti á námskeiði sem er ætlað
börnum á aldrinum tíu til tólf ára
þar. Þar læra þau að sjá sjálf um
dýrin í eina viku og komast tíu
krakkar að hverju sinni,“ segir
Unnur Sigurþórsdóttir, deildar-
stjóri fræðsludeildar Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins í Laugardal.
„Þetta er gert til að börn kynn-
ist dýrunum og læri hvernig á að
umgangast þau. Einn dagur fer
í að sjá um hestana, einn dagur í
að sinna gæludýrunum, einn í að
sinna villtu dýrunum í garðin-
um og að lokum er umhverfis- og
leikjadagur.“
Unnur segir algengt að börn-
in óttist dýrin í upphafi, þá helst
minkana og refina, og séu óörugg í
návist þeirra. „Það lagast yfirleitt
á þeirri viku sem þau eru á nám-
skeiðinu og svo ná þau að bindast
dýrunum órjúfanlegum böndum.
Þau heillast mest af hestunum og
fá að fara að hestbak. Svo finnst
þeim mikið sport að gefa selunum.
Þessi námskeið njóta ótrúlegra
vinsælda. Það er algengt að börn-
in komi á námskeið sumarið eftir
og sum þeirra eru jafnvel í þrjú
sumur.“
Námskeiðið er annað tveggja
sem er í boði í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum, en hitt námskeið-
ið kallast Vísindakrakkar og er
sömuleiðis ætlað börnum á aldr-
inum tíu til tólf ára, þar sem tíu
komast að hverju sinni. „Hús-
dýragarðurinn leggur áherslu á
að börnin kynni sér vel undra-
veröld vísindanna, sem og sjávar-
dýragarð safnsins, þar með talið
selina. Á þessu námskeiði er lögð
sérstök áhersla á vísindaveröld
garðsins og gerðar eru skemmti-
legar og einfaldar vísindatilraunir
með þátttakendum. Börnin fara
í ratleiki sem tengjast efni nám-
skeiðsins og heimsækja önnur dýr
garðsins.“
Námskeiðin eru viku í senn og
er dagskráin frá klukkan 10 til 15
en eftir það tekur við frjáls tími
innan garðsins til klukkan 18.
Skráning hefst 7. maí en hún fer
fram á Rafrænni Reykjavík eða
réttara sagt á heimasíðunni www.
reykjavik.is. Hægt er að afla sér
nánari upplýsingar á www.hus-
dyragardur.is.
- liz
Kennt að umgangast dýr
Unnur Sigurþórsdóttir, deildarstjóri
fræðslusviðs Fjölskyldu- og húsdýra-
garðsins, segir sumarnámskeið fyrir
börn njóta mikilla vinsælda. Hér sést
Unnur með kiðling sem fæddist í garðin-
um á dögunum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI