Fréttablaðið - 24.04.2008, Page 78
46 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
bio@frettabladid.is
Á ári hverju fyllist franska
rivíeran af kvikmynda-
stjörnum, blaðamönnum og
forvitnum ferðamönnum
þegar Cannes-kvikmynda-
hátíðin hefst. Óvenju fáar
stórstjörnur keppa um Gull-
pálmann þetta árið.
Hinar sólríku frönsku strendur
við Miðjarðarhafið hafa heillað
kvikmyndagerðarmenn síðast-
liðna sex áratugi. Og varla skemm-
ir það fyrir að geta notið alls þess
besta í alþjóðlegri kvikmyndagerð
á meðan sopið er á fínu frönsku
kampavíni undir sólhlíf. En það er
ekki bara hitinn og hvítir sandar
sem fá stjörnurnar til að flykkjast
til Frakklands því Gullpálminn
góðkunni er jafn eftirsóknarverð-
ur og Óskar frændi.
Eastwood í flottum hópi
Clint Eastwood er stærsta nafnið í
keppninni um Gullpálmann sem
nítján leikstjórar reyna að kló-
festa. Kvikmynd Eastwoods,
Changeling, gerist 1920 og segir
sögu ungrar konu sem leitar sonar
síns eftir að honum er rænt. Þegar
hann snýr aftur heima renna á
konuna tvær grímur og hana grun-
ar að sá snáði sé alls ekki hennar.
Líkt og í öðrum kvikmyndum East-
woods er engin hörgull á stórleik-
urum en meðal aðalleikara eru
Angelina Jolie, John Malkovich og
Amy Ryan.
Þrátt fyrir að nafn Eastwoods
sé bæði stórt og fyrirferð-
armikið er slíkt engin
ávísun á velgengni hjá
áhorfendum í Cannes.
Þeir eru ósparir á lof en
hika ekkert við að láta í
ljós óánægju sína ef
þeim mislíkar eitt-
hvað, með tilheyr-
andi bauli og öðru
látbragði. Hann
ætti þó að eiga
hauk í horni
hjá formanni dómnefndarinnar
sem er Sean Penn en þeir gerðu
saman Óskarsverðlaunamyndina
Mystic River.
Eastwood fær þó verðuga sam-
keppni. Þýski sérvitringurinn
Wim Wenders gæti velt spagetti-
vestrahetjunni úr sessi með The
Palermo Shooting en þar fer rokk-
drottningin Patti Smith með lítið
hlutverk við hlið Dennis Hopper
og Milu Jovovich. Bandaríski leik-
stjórinn Steven Soderbergh gerir
Che Guevara skil í stórmynd sinni
The Argentine en þar verður
Benicio Del Toro í hlutverki
byltingarhetjunnar. Meðal ann-
arra leikstjóra sem ætla sér
að hljóta náð fyrir augum
dómefndarinnar má nefna
Walter Salles en hann
sló einmitt í gegn
með Mótorhjóla-
dagbókunum, en
þær fjölluðu
einnig um Che
Guevara.
B a r c e l o n a -
Allen
Skipuleggjend-
ur Cannes
kynntu þennan
fríða hóp á blaða-
mannafundi í París í
gær og var eftir því
tekið að fá stór nöfn ætluðu að
blanda sér í baráttuna um Gull-
pálmann. Fransmennirnir voru
hins vegar ekki lengi að svara
slíkum vangaveltum og útskýrðu
skýrt og skilmerkilega að hollvin-
ir hátíðarinnar væru önnum
kafnir við sín störf.
Gestir Cannes ættu þó ekki að
kvíða fyrir stjörnuleysinu því
meðal kvikmynda sem sýndar
verða utan keppni er nýjasta Indi-
ana Jones-myndin. Fastlega má
gera ráð fyrir því að augu alheims-
ins beinist að viðbrögðum áhorf-
enda við fjórðu myndinni um
fornleifafræðinginn sem spek-
ingar spá að gæti orðið einn
stærsti smellur 21. aldarinnar.
Þeir sem vilja kynna sér hugar-
heim Quentins Tarantino ættu að
fara að hlakka til því leikstjórinn
verður með svokallað masterclass-
námskeið meðan á hátíðinni
stendur. Aðdáendur Woody Allen
fá líka sitthvað fyrir sinn snúð
því kvikmynd hans, Vicky Christ-
ina Barcelona, verður frumsýnd
á hátíðinni. Allen, sem fyrir löngu
gafst upp á Hollywood, fékk
spænsku Óskarsverðlaunahafana
Penelope Cruz og Javier Bardem
til að leika aðalhlutverkin þótt
Scarlett Johansson sé auðvitað
ekki langt undan á kreditlistanum.
-fgg
Eastwood stjarnan í Cannes
HOLLYWOOD-LAUS
Woody Allen vill sem
minnst af Hollywood
vita og nýjasta mynd
hans skartar þannig
spænskum leikurum
upp til hópa.
MANNRÁNSDRAMA Clint Eastwood frumsýnir mannránsdramað Changeling á Cann-
es og vonast eflaust til þess að heilla dómefndina frægu upp úr skónum.
Síðasta kvikmynd Ang Lee var erótísk
njósnamynd úr seinni heimsstyrjöldinni. Þar
áður hafði hann gert samkynhneigðu
smölunum góð skil í Brokeback Mountain
eftir að hafa fært græna skrímslið Hulk í
kvikmyndabúning þar áður. Og því kemur
það engum á óvart að næsta kvikmynd
leikstjórans skuli ekki vera í neinum
tengslum við neinar kvikmyndir sem hann
hefur áður gert því hún er um hippahátíðina
frægu, Woodstock. Og er gamanmynd, nema
hvað. Þetta kemur fram á kvikmyndavef
Empire.
Myndin er byggð á sögu Elliots Tiber,
mannsins sem þótti Woodstock-svæðið henta
vel undir tónleikahald. Tiber sá einnig um að
öll nauðsynleg leyfi væru fyrir hendi en eins
og flestum ætti að vera kunnugt safnaðist
stór hluti bandarísku hippakynslóðarinnar
saman á túninu við bæinn Bethel árið 1969 og
hlustaði á margar af fremstu stjörnum
tónlistarheimsins leika listir sínar undir
friðarsólinni. Myndin mun þó að mestu
einblína á líf Tibers sem vann á gistihúsi
foreldra sinna þar til hann breytti, nánast
uppá sitt eigið einsdæmi, ímynd heillar
kynslóðar.
Lee mun þó hafa haft annað verkefni í
bígerð, A Little Game, en henni hefur verið
slegið á frest. Sú fjallaði um par sem telur
öllum trútt um að þau séu hætt saman og fá í
kjölfarið að heyra hversu ömurlegt ástarlíf
þeirra hafi verið frá sínum nánustu.
Ang Lee úr erótík á Woodstock
ÓLÍKINDATÓL Lee hefur sannað það á ferli sínum að
aðdáendur hans vita aldrei hvað hann tekur sér fyrir
hendur næst.
Myndasögukóngurinn Stan Lee er
síður en svo dauður úr öllum æðum.
Hann hefur samið við Virgin Com-
ics um að hanna og teikna tíu nýjar
ofurhetjur. Það hefur þá væntan-
lega í för með sér að minnsta kosti
tíu ný illmenni. Ofurhetjurnar
byrja að birtast árið 2009 en auk
myndasögublaða er gert ráð fyrir
því í samningnum að stutt teikni-
myndabrot verði sýnd á netinu. Lee
er í fríðum flokki stórstjarna sem
samið hafa við fyrirtækið að und-
anförnu því innan vébanda Virgin
Comics eru leikararnir Nicholas
Cage og Hugh Jackman og ´80 hetj-
urnar í Duran Duran. Stan Lee er
hálfgerð goðsögn í myndasögu-
heiminum en hann skapaði hetjur á
borð við Köngulóarmanninn og X-
Men sem hafa þar að auki malað
gull í Hollywood. Þá eru hetjur Lee
áberandi í stórmynda-sumrinu því
græni risinn Hulk í meðförum
Edwards Norton verður frumsýnd
auk Iron Man með Robert Downey
Jr. í broddi fylkingar.
Lee gerir tíu nýjar ofurhetjur
MEISTARI Stan Lee er meistari mynda-
söguhetjanna og ætlar að skapa tíu
nýjar hetjur fyrir Virgin Comics.
Samkvæmt bloggsíðunni Ugo.com hefur
fjórðu myndinni um Tortímandann verið ýtt
út af borðinu. Ekki liggur fyrir hvort
þráðurinn verður tekinn upp aftur eða ekki
en ljóst þykir að eitthvað mikið hefur gengið
á við undirbúning myndarinnar. Erlendar
vefsíður hafa tekið málið upp á sína arma en
komist lítið áleiðis við að grafa upp hvort
hreinlega hafi verið hætt við gerð
myndarinnar. Ugo.com hefur eftir
einum starfsmanni kvikmyndar-
innar að hann hafi nægan tíma
um þessar mundir þar sem
framleiðslunni hafi verið hætt.
Miklar vonir voru bundnar við
fjórðu myndina eftir að sú
þriðja þótti fremur misheppnuð
og vond. Leðurblökumaðurinn
Christian Bale hafði verið
ráðinn í hlutverk John Connor
og Josh Brolin sem nýr Tortím-
andi. Jafnvel stóð til að Paul
Haggis myndi sjá um að slípa
handritið til en aðdáendur
þessarar heimsendasyrpu verða
að bíða frekari fregna af málinu.
Fjórða Tortímandan-
um eytt tímabundið
> GÖTUKÓNGAR Í BÍÓ
Kvikmyndin Street
Kings verður frum-
sýnd í Reykjavík um
helgina. Myndin
skartar þeim Keanu
Reeves og Forest
Whitaker í aðalhlut-
verkum en hún þykir
þvottekta löggumynd
frá Los Angeles.
BÚIÐ SPIL Fjórða myndin um
Tortímandann verður hugsanlega
aldrei gerð.