Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 80
48 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
maturogvin@frettabladid.is
Veitingastaðurinn Vox á Hilton
Reykjavík Nordica hefur síðustu
vikur boðið upp á svokallað „High
Tea“. Um er að ræða aldagamlan
evrópskan sið sem hefur upp á
síðkastið gengið í endurnýjun líf-
daga, og þá helst í Englandi, þar
sem fólk hittist yfir tebolla og
hefðbundnum léttum veitingum.
„Þetta hefur eiginlega gengið
framar vonum,” segir Björk Ósk-
arsdóttir, Chef Garde Manger á
Vox, sem sér um veitingarnar.
„Þetta virðist vera skemmtileg
nýjung inn í það flæði sem við
höfum fyrir. Það hefur verið
mikið um að hópar hittist hérna í
High Tea, og jafnvel verið haldin
afmæli hjá okkur,“ segir hún.
Boðið er upp á úrval af tei, og
ýmiss konar veitingar. „Við erum
með þessar hefðbundnu litlu
samlokur; agúrkusamlokur með
reyktum laxi, parmaskinku- og
pestó eða salamisamloku með
eggjasalati. Í þessu sæta blönd-
um við svo saman okkar sérís-
lensku sætindum og þeim hefð-
bundnu,“ útskýrir Björk. Einnig
er hægt að fá High Tea, eða síð-
degiste, með barnvænum veit-
ingum, svo sem litlum pitsum, og
hollari veitingar fyrir þá sem
vilja minni sykur. Herlegheitin
eru borin fram á tveggja og
þriggja hæða bökkum, á hefð-
bundinn hátt.
Björk segist þó í raun ekki
hissa á því að siðurinn eigi upp á
pallborðið hér á landi. „Við erum
svo nýjungagjörn, og líka orðin
svo alþjóðleg. Það eru margir
sem hafa prófað þetta erlendis.
Ég átti líka alveg eins von á því
að fólk myndi verða hrifið af
þessu, alveg eins og brönsinn
varð vinsæll,“ bætir hún við.
Hægt er að fá High Tea á Vox
alla daga vikunnnar á milli 14 og
18. - sun
High Tea á upp á pallborðið
Kartöflusalat...
...stendur alltaf fyrir sínu.
Þú þarft ekki að fara á
majónes-fyllerí til að
uppskera gott kartöflu-
salat, því þau eru til í
aragrúa af mismunandi
útfærslum. Sýrður rjómi
eða sinnepsdressing eru
á meðal þess sem getur
komið í stað majónesdoll-
unnar.
Hvaða matar gætirðu síst verið án? Það
eru ávextir og skyr. Ég er nútímamaður
með blandara.
Besta máltíð sem þú hefur fengið:
Það var bara um daginn, þegar mér og
leikhópnum úr Kommúnunni var boðið í
mat heim til ömmu Gael García í Mexíkó.
Það var kjúklingur í chili-súkkulaðisósu
sem amman gerði, þessi sextán barna
móðir. Það er allt önnur upplifun að fara
svona í heimahús en að borða mexíkóskan
mat á veitingastað, þá fyrst fattar maður
hvað þessi matur er góður.
Er einhver matur sem þér finnst vondur?
Ég er ekki undir sama þaki og svið. Fjöl-
skyldan mín lætur mig alltaf vita ef svið eru
á boðstólum, þá kem ég eftir mat.
Leyndarmál úr eldhússkápnum: Gufu-
suðupotturinn minn, tvöfaldur
pottur sem maður getur gufusoðið í
grænmeti og fisk. Hitt leyndarmál-
ið er að eiga rautt chili-mauk og
kókosmjólk, þá er maður kominn
langt á veg.
Hvað borðar þú til að láta þér
líða betur? Eitthvað gott græn-
metisfæði. Svo dett ég oft í
ísskápinn á nóttunni. Ég
er með mjög heilbrigðar
matarvenjur í björtu,
en þegar enginn sér til
ligg ég í osti og brauði.
Sambýlisfólk mitt er
svo ómerkilegt að það
kaupir brauð öðru
hvoru. Og súkkulaði-
sojamjólk. Það er dásamlegt gervibragð af
henni.
Hvað áttu alltaf til í ísskápnum? Ég á
alltaf skyr, grænmeti og ávexti. Svo setur
pakkið, sambýlisfólkið, öðru hvoru osta
og brauð inn í ísskáp.
Ef þú yrðir fastur á eyðieyju, hvað
tækirðu með þér? Ég tæki með mér
hrísgrjón og mikið af háfjallasam-
lokum, úr grófu brauði með
hnetusmjöri og bláberjasultu.
Hvað er það skrítnasta sem
þú hefur borðað? Maurar
sem ég fékk í Mexíkó.
Okkur var ekki sagt að
þetta væru maurar fyrr en
eftir á, en þeir voru bara
ógeðslega góðir.
MATGÆÐINGURINN ÁRNI PÉTUR GUÐJÓNSSON LEIKARI
Besta máltíðin hjá ömmu Gaels García
Tabbouleh-salat á rætur sínar að
rekja til Líbanons en er borið á
borð víða í Austurlöndum nær. Þar
sem kryddjurtir og sítrónusafi ljá
því léttan blæ er tabbouleh tilvalið
þegar léttur kvöldverður eða
hádegisverður er efst á óskalista.
Það er oftast borið fram með sal-
atblöðum, en það er þó ekkert sem
kemur í veg fyrir að seilst sé í
brauðkörfuna.
Þessa uppskrift að tabbouleh er
að finna á uppskriftavefnum epic-
urious.com.
½ bolli búlgúrhveiti
3 msk. ólívuolía
1 bolli sjóðandi vatn
2 bollar fínt söxuð fersk flatblaðs-
steinselja
½ bolli fínt söxuð fersk mynta
2 tómatar, skornir í litla bita
½ steinalaus gúrka, skorin í litla
bita
3 msk. sítrónusafi
¼ tsk. salt
¼ tsk. svartur pipar
Afhýðið gúrkuna, fjarlægið kjarnann
og skerið í litla bita.
Hrærið saman búlgúrhveiti og 1 msk.
af olíu í hitaþolinni skál. Hellið sjóð-
andi vatni yfir og strengið plastfilmu
yfir skálina svo ekkert loft komist
að. Látið standa í 15 mínútur, sigtið
búlgúrhveitið frá vatninu og reynið
að pressa sem mestan aukavökva úr
hveitinu.
Setjið búlgúrhveitið í aðra skál og
blandið öllu saman við, ásamt 2 msk.
af olíu, þar til allt hefur blandast vel.
Berið fram.
Ferskt tabbouleh
Þau leiðu mistök urðu hér á matar-
síðunni fyrir viku að uppskrift
Sigrúnar Baldursdóttur að brúnni
randalínu reyndist röng. Þar stóð
að til baksturins þyrfti 50 g af
hveiti, en þar átti að standa 500 g,
eins og bakstursvanir lesendur
hafa eflaust margir áttað sig á.
Uppskriftin birtist hér í sinni réttu
mynd.
Brún randalína
250 g smjörlíki
325 g sykur
500 g hveiti
2 egg
3 msk. kakó
1 tsk. matarsódi
2 tsk. negull
1 tsk. kanill
½ tsk. kardimommudropar
2 dl mjólk
Krem:
2 msk smjör/smjörlíki
2 bollar flórsykur
1 eggjarauða
2 msk. rjómi
Vanilludropar eftir smekk
Hrærið smjörlíki þar til lint og ljóst.
Setjið sykur og egg saman við og
hrærið.
Bætið hveiti, matarsóda, kryddi og
kakói út í og hrærið saman. Bætið
mjólk út í og hrærið þar til deigið
verður lint.
Smyrjið deiginu í fjórum hlutum á
bökunarplötu, svo hver lengja verði
um 0,5 cm á þykkt. Bakið við 200
gráður í 20 mín.
Hrærið innihaldi kremsins saman.
Raðið kökunni saman og smyrjið
kremlagi á milli lengja, svo samtals
verði þrjú lög.
Rétt randalína
KEIMUR AF AUSTURLÖNDUM Tabboul-
eh-salat er ættað frá Líbanon, en er
vinsælt víða í Austurlöndum nær.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hildur Ársælsdóttir, ein liðskona hljóm-
sveitarinnar Amiinu, hefur verið grænmet-
isæta frá unga aldri. Dahlið sem hún gefur
uppskrift að er uppáhaldshversdagsmatur-
inn hennar.
„Ég er uppalin grænmetisæta og þekki varla annað.
Ég reyndi aðeins að borða kjöt upp úr unglingsárum,
vegna einhvers hræðsluáróðurs, en það átti bara ekki
við mig,“ segir hún. Dahlið sem hún gefur lesendum
Fréttablaðsins uppskrift að er í uppáhaldi hjá Hildi,
en rétturinn er upphaflega ættaður frá Indlandi.
„Þessi útgáfa er nú
ekkert sérstaklega
indversk. Þeir nota
indverskt smjör í
réttinn og miklu meiri
fitu. Þetta er svona
heimatilbúin útgáfa,“
útskýrir Hildur.
Hún segir réttinn afar
einfaldan, enda er
hann uppáhalds-
hversdagsrétturinn á
heimili Hildar. „Það er
svo gott að grípa í
hann þegar það er
mikið að gera og
maður hefur ekki tíma
til að setja of mikið
púður í eldamennskuna. Maður hendir öllu í pott og
bíður bara,“ segir hún. Hildur notar oftast vatn við
gerð réttarins, en hún segir gott að skipta á hluta þess
og setja kókosmjólk eða sojamjólk ef fólk vill hafa
hann rjómakenndari. „Ég geri það þegar ég er í
hátíðaskapi,“ segir hún og brosir.
Eldamennska er annars eitt af áhugamálum Hildar.
„Ég hef mjög gaman af því að stússast í eldhúsinu. Ef
ég nenni að vera með vesen finnst mér rosalega
gaman að búa til góð grænmetisbuff, það er svona
klassík á heimilinu. Svo geri ég líka mikið af matar-
miklum salötum,“ segir hún.
Hildur hefur í nógu að snúast með Amiinu þessa
dagana, en hljómsveitin vinnur nú hörðum höndum að
því að undirbúa tvenna tónleika á Listahátíð 15. og 16.
maí. „Þetta er samstarf á milli okkar og Kippa
kanínus, sem er raftónlistarmaður, og svo erum við
búin að fá tíu aðra tónlistarmenn í lið við okkur. Þetta
verður svaka partí,“ segir Hildur.
Hildur mælir með grænmetiskrafti sem er laus við
msg, til dæmis frá Himneskri hollustu.
Byrjið á að steikja lauk og hvítlauk upp úr kókosolí-
unni. Látið malla vel og lengi á pönnunni þar til
laukurinn er orðinn gullinbrúnn og sætur. Á meðan
hann mallar er gott að setja dahlið af stað.
Setjið linsur, vökva, grænmetiskraft, karrí,
tómatpúrru og kanilstöng í pott. Látið suðu koma upp
og sjóðið í um 15 mínútur. Hrærið þá sítrónusafa út í.
Setjið dahlið á diska og steiktan laukinn, fullt af
ferskum kóríander og döðlubita ofan á. Berið fram
með góðu salati eða ofnbökuðu rótargrænmeti. .
sunna@frettabladid.is
Hversdagsmatur Hildar
SÚPER EINFALT DAHL
Fyrir 3-4
500 g rauðar split-linsur
1 lítri vatn
3-4 msk. grænmetiskraftur
1 msk. curry paste
2 msk. tómatpúrré
1 kanilstöng (má sleppa)
1 msk. sítrónusafi
Ofan á:
1 msk. kaldpressuð kókosolía
4 laukar, skornir í strimla
6 hvítlauksrif, fínt söxuð
ferskur kóríander
4 döðlur, í bitum
SÍÐDEGISTE SLÆR Í GEGN Björk Óskars-
dóttir segir viðtökurnar við svokölluðu
High Tea, eða síðdegistei, á Vox hafa
verið framar vonum.
DAHL Í UPPÁHALDI Hildur Ársælsdóttir segir sína útgáfu
af dahli, grænmetisrétti með rauðum linsum, uppáhalds-
hversdagsmatinn á heimili hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN